10 mars
það er til guð!
Það er semsagt hætt að rigna hérna hjá mér.... það hætti reyndar rétt fyrir helgina og núna skín sól í heiði hvern dag og það er alltaf að hitna, þó að ég haldi reyndar að það verði ekkert orðið neitt of heitt hérna áður en ég fer – því er nú verr og miður. Við vorum bara rólegar um helgina ég og joseé (nýja stelpan) fórum til frascati á laugardagin hittum söru og fengum okkur að borða og drekka á alveg rosalega sætum og kósí stað og síðan löbbuðum við um og spjölluðum. Á sunnudeginum plönuðum við svo að fara með margheritu og edo á golfvöllin eftir hádegi þannig að við fórum ekki til rómar en fórum bara út að slappa af og sleikja sólina. Því miður var hádegismaturinn svo seinn að eftir hann höfðum við bara tíma til að kíkja aðeins út á völl og sjá sólina hverfa bak við einu skýin á himninum uppúr kl 17.00 og setjast stuttu eftir það.
Í dag ákváðum við að vera alveg súper duglegar og fara að hlaupa í frascati á meðan edo var í skólanum þó að það hafi reyndar endað á stuttu hlaupi og svo löngum labbitúr og sólbað eftir á og ég er ekki frá því að ég hafi brennt andlitið á mér.... ekkert alvarlegt en alveg smá, en það mun vonandi bara breytast í brunnku á næstu dögum.
Boy oh boy er ég heppin að vera enn á lífi.... hmmm.... kannski hefur heppni ekkert að gera með það. Í gær (fimmtudag) þurftum við að skutla margheritu að taka lestina rétt fyrir um kl 11 en afþví við vorum í seinni kannrtinum þá bað hún mig um að skutla sér allaleið inní róm. Ég er því opinberlega búin að keyra í róm þó ekki í miðbænum og með mínum frábæru nýju ítölsku aksturshæfileikum (sem munu ábyggielga verða valdur af því að ég muni missa ökuskirteinuð viku eftir að ég kem heim- nei ok kannski ekki ef ég verð alveg voða dugleg að passa mig að keyra á löglegum hraða) að lenda ekki í neinum bílslysum og taka tvær U-beygjur eina sem var mögulega ólögleg við erum enn ekki alveg vissar og eina al-löglega. Við vorum samt sem áður alveg vel tímanlega á leiðinni að sækja edo í skólan þannig að við ákváðum að stoppá á kaffihúsi og fá okkur smá nasl og ís og eftir það að kíkja í súpermarkað til að kaupa afmælisdrykk handa Josee en hún á einmitt afmæli í dag. Þetta tók allt saman aðeins meiri tíma en var reiknað með og ofaná það þá vorum við í Ciampino (ég hafði aldrei komið þangað áður) þannig að vissum ekki hversu lengi við yrðum að keyra til frascati þannig að þegar við komum að skólanum akkurat á slaginu voru engin stæði laus. Í dag vslöppuðum við svo af í genzano eftir að við skutluðum edo og löbbuðum í bænum og fengum okkur kaffi og keyptum jarðaber (kostuðu 6 E/kg ó hvað ég væri hamingjusöm ef það væri þannig á íslandi) og fórum svo að sækja edo með afmælishatta og læti sem ég held að hafi ekki verið vel litið á í skólanum hans, ég er farin að halda að ítalirnir hafi ekkert of gott skopskin. Í kvöld erum við svo líklega að fara eitthvað út í tilefni af afmælinu og svo róm um helgina.
En ég er hætt í bili – ætla að skella mér í föt og útúr rúminum og henda þessu á netið. Ciao ciao – ætla bara að bæta því við að hér er stanslaus sól og hiti á við íslenskasumarið en ítalarnir eru enn í vetrarúlpunum á meðan við röltum um á stuttermabolunum.
Friday, March 13, 2009
Saturday, March 7, 2009
ekki mikid i gangi
14 febrúar
ja þessi mánuður bara hálfnaður líka... ég trúi þessu bara ekki, en það er rétt sem sagt er að tíminn flýgur þegar maður skemmtir sér (eða hefur bara of mikið að gera – sem er ekki ég)
síðasta sunnudag fór ég í labbitúr um róm með finnskri stelpu sem var mjög gaman... alltaf fínt að eignast nýja vini þó að ég sé alveg að fara héðan. Við tókum stutt rölt og svo var ég bara farin heim frekar snemma enda alveg uppgefin.
Á föstudagin fór ég svo með edo og mömmunni á sýnignu um Júlíus Sesar sem var alveg ótrúlega flott í húsi sem var kassi með garði í miðjunni.
6 mars
já kraftaverkin gerast ennþá! Ég verð þó að segja með skömm að ég er ekkert búin að blogga í febrúar, ég biðst afsökunar á því en það er bara ekki margt búið að gerast hérna hjá mér og ég hef ekki fundið neina þörf til að vera að blaðra út mínum hugsunum.
En hér er samt það markverðasta. Í síðustu viku var alveg frekar brjálað að gera hjá mér við vorum með einn afmælis brunch og eina veislu í tilefni carnivalsins og voru þessir atburðir hver á eftir öðrum sá fyrri á sunnudegi og hinn seinni á mánudegi. Dagarnir fyrir þetta fóru því í að taka til, riksuga og fleira í þeim dúr og svo á laugardeginum fórum við að elda. Það var mikið að skemmtilegum hlutum en það sem ég gerði aðalega var að bara muffins með zukkiní sem eru alveg ótrúlega góðar. Við vorum alveg ótrúlega heppin með veður þá vikuna og sólin skein í heiði og hitaði mann upp eins og hún fengi borgað fyrir það. Eftir veisluhöldin var húsið að sjálfsögðu eins og vígvöllur þannig að mestur partur vikunnar á eftir fór í að smátt og smátt taka til og ganga fá öllu dótinu.
Síðasta sunnudag fór ég svo til rómar.... nánartiltekið inní trastevere til að hitta jessicu sem er finnsk stelpa sem ég kynntis fyrir nokkrum vikum og eina vinkonu hennar, líka finni og við fengum okkur hádegismat þar, og á staðnum sem við fórum á kostaði pizzan aðeins 3 evrur sem er ansi gott verð fyrir mat í róm en í trastevere eru samt færri ferðamannastaðir og verðin eftir því. Eftir að við kláruðum að borða þurftu stelpurnar að fara heim en ég rölti mér uppá termini til að hitta söru sem er önnur au pair sem er ný byrjuð í skólanum mínum og með henni fór ég svo að hitta einna enn peru tess. Við fórum svo og löbbuðum aðeins um, horfðum yfir fori romani, röltum að pantheon og spjölluðum. Eftir það fórum við svo og kíktum í nokkrar búðir þar sem söru vantaði föt og að sjálfsögðu þá tókst mér að enda á að kaupa mér eitthvað.... réttara sagt 2 pils, eða þetta er sama pilsið nema bara í tvem litum og þau voru leifar af útsölunni í H&M og kostuðu bara 7 evrur stykkið. Eftir þetta var ég algjörelga uppgefin þannig að við héldum heim á leið.
Dagin eftir á mánudeginum kom svo stelpan sem að leysir mig af hérna hjá fjölskyldunni þannig að þessi vika er búin að vera ansi góð og ég er búin að vera í því að sýna henni hvernig þetta er hérna. Og í dag fórum við svo í stutta ferð inn í róm þrátt fyrir að verðrið hafi ekki verið neitt of gott – en það er búið að rigna alla þess viku – en það rættist samt ágætlega úr deginum og við fengum aðeins að sjá í sólina en ég held áfram að biðja, og vonandi verður hún komin í fulla vinnu á morgun og helt þagað til ég flýg aftur á frónið en það styttist alltaf í það.
Annað kvöld er svo planið að fara til frascati og fá okkur vín og eitthvað gott að borða með söru og ég ætla að gera mitt besta til að gera það að kjól og hvítt atburði, eða allavega hafa alla uppklædda en það er alltof langt síðan ég hef gert mig sæta.
Ég ætti kannski líka að minnast á það að ég er búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór – marilyn monroe.... ég er með algjört æði fyrir henni þannig að ef ég verð komin með krullur og rauðan varalit næst þegar þið sjáið mig og með alveg nýjan stíl þá muniðið samt vita að það er ég... en ég er hætt í bili
ef einhver veit hvad tad tidir tegar tad kviknar ljos i maelabordi a bilum sem er upphropunarmerki, inni hring innan sviga ma alveg senda mer linu

Subscribe to:
Posts (Atom)