Monday, December 29, 2008
jólablogg - eða eitthvað svoleiðis
já það eru komin jól, eða réttara sagt eru þau nánast komin og farin. Og þegar þetta verður sett á netið verður öll þessi jólavitleysa búin. Ekki að ég sé að fatta að það sé komin annar í jólun, mér líður meira eins og það séu nokkrir sunnudagar í röð hérna sem ég er að eyða með fjölskyldunni. Á aðfanga dag þá keyrðum við til Napólí og borðuðum kvöldmat heima hjá foreldrum pabbans, en sá matur var ekki svo frábrugðin því sem við borðum vanalega, nema kannski bara aðeins meira, pruschiutto (veit ekki hvort þetta er rétt skrifað) og silungur, pasta og svo ýmsir smáréttir. Á jóladag var svo önnur máltíð þó að í þetta sinn hafi það verið hádegismatur sem var ansi svipaður – pasta, brauð og prusciutto, grænmetirsréttur, kjöt og svo fiskur fyrir alla nema mig, en ég er einmitt svo óheppin að þeir borða alveg rosa mikin fisk hérna um jólin. Eftir matinn var svo farið í geggnum pakka brjálæðið og borðaðar kökur og kaffi. Eftir þetta fór ég svo með mömmunni og edo til frændfólks þeirra en pabbinn fór heim og ég hafði hugsað mér að fara með honum en hún vildi endilega að ég væri með fólki þannig að ég sættist á að fara með þeim og ætli þetta verði ekki allt saman í lagi – við sjáum til. En sem betur fer er planið að fara aftur heim á laugardag eða sunnudag eða ég held það allavega en hér eru plön samt ekki svo heilög þannig að það er aldrei að vita
Þetta er semsagt ójólabloggið mitt svona í ljósi þess á ég er ekki ennþá búin að fatta það að jólin séu komin og farin enda er enginn “jólasnjór” og kalt veður hér, meira í áttina að jólasól þó að hún hafi reyndar látið sig hverfa í gær.
28des
já núna erum við semsagt búin að flakka á milli ættingja í napólí og svæðinu þar í kring í þrjár nætur og búin að borða þrjár risastórar hádegismáltíðir. Og ég verð að segja að þó að ég hafi alltaf litið á það þannig að við borðum mikið um jólahátíðina á íslandi þá er það ekki neitt miðað við það sem þei gera hér. Á íslandi er þetta meira í áttina – við borðum mikið af matnum af því hann er svo góður (enginn getur neitað því) en hér þá borða þeir mikið af mat og mikið af honum, ég er farin að vera alvarlega áhyggjufull um að ég eigi eftir að rúlla heim. Allavegana í gær keyrðum við til Bari sem er í hælnum á ítalíu (ef einhver vill skoða þetta á korti) vegna þess að mömmunni hafði verið boðið að vera á þessu litla lúxus hóteli af vinkonu sinni. Í gær borðuðum við semsagt eina einn stóra máltíð en þó eilítið frábrugna – ég borðaði grillað kjöt og grillað grænmeti sem minnti mig alveg ótrúlega mikið á ísland og svo eftir það var alveg gríðarlegt magn af ávöxtum og kökum og sætindum (kallað dolce – ef einhver hefur áhuga) eftir matin fórum við svo í sund í heitupottunum og svo tókum við því bara rólega. Í dag er svo svipað plan eins og í gær – sund, matur og göngutúr og svo veit ég ekki alveg hvernig þetta verður.
Svona aðeins um önnur málefni þá Ítölskukenslan mín gengur ekkert of skínandi vel, ég get skilið alveg slatta en það er alveg ómögulegt fyrir mig að tala, eða eitthvað af viti allavega, ég get bara ekki myndað setningar í hausnum á mér ef ég þarf að segja eitthvað þannig að þetta endar allt í frekar miklu klúðri.
Wednesday, December 24, 2008
jólakveðjur
bestu jólakveðjur til allra á fróni frá ítalíu
Saturday, December 20, 2008
trastevere
halló hafnarfjörður helgin er komin og farin og góðaveðrið með henni. Já það er farið aftur að rigna og í dag á leiðinni heim úr skólanum lentum við í flóði, slabbi og hagli, þrumun og eldingum en ekki mikið meira en það. Ég ætla bara að taka það fram að ég er búin að vera viku að reyna að koma þessu saman.
Sunnudagurinn var mjög góður. Ég fór til rómar og í göngutúr um trastevere á vegum vefsíðu sem heitir friends in rome og sér um alskonar uppákomur og skemmtileg heit í róm auk þess að hjálpa fólki að eignast vini. Trastevere er gamla iðnaðarhverfið/fátækrahverfið í róm og er hinu meigin við ána sem liggur í gegnum róm. Við skoðuðum 4 kirkjur og ein af þeim er minnsta kirkjan í róm og ég held að það hafi verið áhugaverðasta kirkjan sem ég hef séð hérna, hún féll allavega ekki inní fjöldan og var enn ein kirkjan sem ég hef séð í róm. Kirkja númer 2 var byggð til heiðurs konu sem var kristin og maðurinn hennar stóð með henni en þegar það komst upp (þetta er fyrir kristnitökuna) þá var maðurinn hennar myrtur. Það átti svo að sjálfsögðu að drepa hana líka en bara ekki á jafn fljótan og sársaukalausan hátt þannig að þeir ákváðu að kæfa hana í gufu frá innanhús baðinu þeirra. Þar sat hún í þrjá daga án þess að deyja þannig að þeir ákváðu að hálshöggva hana. Því miður þá hlíður böðullinn að hafa verið nýr og stressaður því hann tók þrjú högg á hálsinn á henni en ekki fór hausinn af og hann var stoppaður áður en hann tók það fjórða. Það tók svo greyið konuna aðra þrjá daga að blæða út. En kirkjan er semsagt byggð þar sem þau áttu heima og er ein hliðin af lokuðum garði (courtyard – eins og þeir sem finnast á hringbrautinni og elín hefur einn svoleiðis nema þessi er bara lítill) hinar hliðarnar eru svo ef mér skildist rétt klaustur, og fjórðahliðin aðalega hlið. Þetta er samt aðeins farið að dofna úr minninu hjá mér þannig ég er ekki alveg viss. Í þriðju kirkjunni fórum við uppá loft og fengum að sjá herbergi þar sem san fransesco dvaldist á meðan hann var að semja við páfan og fjórða kirkja var svo santa Maria in trastevere en það er talin vera fyrsta kirkjan sem var byggð í róm og staðsetnungin var valin af því að þar fannst hrein olía sem var eitthvað sem fannst ekki og finnst ekki á hverju strái. Eftir þetta fórum við svo flest á bar og spjölluðum sem var mjög áhugavert, en flestir sem voru í hopnum voru aðeins eldri en ég en ég kinntist einni stelpu sem er líka au pair og hefur engan til að hanga með á gamlárskvöldi þannig að vonandi er ég búin að finna mér félaga fyrir það.
Monday, December 15, 2008
soldið sein með þetta
jamm það er komin desember og ég er búin að vera hérna í u.þ.b. 3 mánuði ef tíminn er að fljúga frá fleirum og jólin komin í alveg skuggalega nána framtíð. Í gær þá borðuðum við edo tex-mex í hádeginu en það var ný reynsla fyrir hann ótrúlelgt (en samt kannski ekki svo) en satt. En hann uppgvötaði einmitt hvað salsa er alveg ótrúlega gómæt eftir að ég keypti mér pakka af flögum og sósu.
Það virðist sem ekkert skemmtilegt sé að gerast hjá mér núna þessa vikuna bara það að mér er að ganga allveg ótrúlega illa í skólanum og satt að segja langaði mig mest bara til að hætta á fimmtudagin. Ég á í alveg ótrúlegum vandræðum með að skapa setningar og koma þeim útúr mér sem er ekki mjög gott það sem einmitt það er mjög stór hluti af þessari kennslu og felstir aðrir í bekknum mínum eru góðir í því þannig að ég er orðin algjörlega mesti blebbinn – án nokkurs efa.
8 des
jamm í dag er þjóðar hátíðisdagur í ítalí þanni að það var engin skóli í dag heldur bara afslöppun og leti. Eða allavega mestan partin. Við erum reyndar að reyna að klára að skreyta jólatréð en það gengur eitthvað hægt. Allavegana. Í gær fór ég með edo og mömmunni til Fiuggi sem er bær u.þ.b. 45 mín frá genzano og í næsta fylki og allt. Þar var mamman að fara að spila golf og ég og edo vorum kylfuberar eða hvað það nú heitir og töltum upp og niður völlin í 4 klukkutíma eða svo. Það er alveg mjög góð hreyfing að fara með fólki að spila golf þó maður taki ekki þátt. Þau áttu sumarhús í Fiuggi þannig að þau voru vön að vera þar heilmikið og þetta virkaði mjög skemmtilegur bær. Við tókum smá rúnt um bæin og fórum m.a upp að styttu að maríu mey sem situr efst uppi á súlu og gnæfir yfir manni og svo getur maður labbað upp heilmikin brattan stiga og farið alveg upp að henni sem við edo gerðum einmitt.
13 des
jamm.... það er búið að vera pínu brjálað veður hérna undanfarna daga, eða réttara sagt þá er búin að vera alveg brjáluð rigning. Það ringdi svo mikið að það þurfti að loka fleirri en einni götu í róm þar sem þær voru orðnar að ám. Ég fann nú samt ekki svo mikið til þess hversu mikið rigndi þar sem við lentum ekki í neinu svona hérna heima og leiðin í skólan var nokkuð góð, þó reyndar að núna þegar vatnið er að fara af götunum þá finnst mér að þær séu orðnar töluvert verri heldur er fyrir þessa vatna tíð. Vikan er búin að líða frekar hratt hjá mér. Ég er orðin húkt á nýjum bókaflokki en ég keypti fyrstu 2 bækurnar í twilight seríunni þegar ég fór til rómar á þriðjudags morgninum. Þið munið kannski eftir því að ég sagði ykkur frá bíómyndinni sem ég fór að sjá með edo, ég komst semsag að því að myndin var gerð eftir bók og að bókin var ekki ein heldur á hún 3 vini sem eru komnir í búðir og einn sem vonandi kemur út einhvertíman í náinni framtíð. Allavega þá er þetta nokkurskonar ástarsaga milli menskrar stúlku og vampíru og ég er hræddum að ég eigi ekki nokkra von um að komast undan. Skólin var skárri þessa vikuna en þá síðustu enda var ég í alveg hræðilegu formu, en ástæðan gæti verið sú að ég var ekki neydd til að tala neitt í tíma, eða allavega ekki of mikið og svo á föstudagin horfðum við á ítalska bíómynd frá 1964 sem heitir matrmonio all’italiana eða eitthvað svoleiðis og hún var mjög góð og mér tókst að skilja næstum helminginn sem er nokkuð gott.
Í gærkvöldi fór ég svo og hitti ítalska stelpu sem ein af bekkjasystrum mínum kom mér í samband við og við erum að scambio linguistica... eða að gera tungumálaskipti, ég hjálpa henni með ensku og hún mér með ítölskuna þó svo að við höfum talað mest á ensku svona í ljósi þess að ég er ennþá ófær um að mynda heila setningu á ítölsku. Allavega þá er bara allt við það sama hjá mér. Og alltaf styttist í jólin. Buona feste
soldið sein með þetta
jamm það er komin desember og ég er búin að vera hérna í u.þ.b. 3 mánuði ef tíminn er að fljúga frá fleirum og jólin komin í alveg skuggalega nána framtíð. Í gær þá borðuðum við edo tex-mex í hádeginu en það var ný reynsla fyrir hann ótrúlelgt (en samt kannski ekki svo) en satt. En hann uppgvötaði einmitt hvað salsa er alveg ótrúlega gómæt eftir að ég keypti mér pakka af flögum og sósu.
Það virðist sem ekkert skemmtilegt sé að gerast hjá mér núna þessa vikuna bara það að mér er að ganga allveg ótrúlega illa í skólanum og satt að segja langaði mig mest bara til að hætta á fimmtudagin. Ég á í alveg ótrúlegum vandræðum með að skapa setningar og koma þeim útúr mér sem er ekki mjög gott það sem einmitt það er mjög stór hluti af þessari kennslu og felstir aðrir í bekknum mínum eru góðir í því þannig að ég er orðin algjörlega mesti blebbinn – án nokkurs efa.
8 des
jamm í dag er þjóðar hátíðisdagur í ítalí þanni að það var engin skóli í dag heldur bara afslöppun og leti. Eða allavega mestan partin. Við erum reyndar að reyna að klára að skreyta jólatréð en það gengur eitthvað hægt. Allavegana. Í gær fór ég með edo og mömmunni til Fiuggi sem er bær u.þ.b. 45 mín frá genzano og í næsta fylki og allt. Þar var mamman að fara að spila golf og ég og edo vorum kylfuberar eða hvað það nú heitir og töltum upp og niður völlin í 4 klukkutíma eða svo. Það er alveg mjög góð hreyfing að fara með fólki að spila golf þó maður taki ekki þátt. Þau áttu sumarhús í Fiuggi þannig að þau voru vön að vera þar heilmikið og þetta virkaði mjög skemmtilegur bær. Við tókum smá rúnt um bæin og fórum m.a upp að styttu að maríu mey sem situr efst uppi á súlu og gnæfir yfir manni og svo getur maður labbað upp heilmikin brattan stiga og farið alveg upp að henni sem við edo gerðum einmitt.
13 des
jamm.... það er búið að vera pínu brjálað veður hérna undanfarna daga, eða réttara sagt þá er búin að vera alveg brjáluð rigning. Það ringdi svo mikið að það þurfti að loka fleirri en einni götu í róm þar sem þær voru orðnar að ám. Ég fann nú samt ekki svo mikið til þess hversu mikið rigndi þar sem við lentum ekki í neinu svona hérna heima og leiðin í skólan var nokkuð góð, þó reyndar að núna þegar vatnið er að fara af götunum þá finnst mér að þær séu orðnar töluvert verri heldur er fyrir þessa vatna tíð. Vikan er búin að líða frekar hratt hjá mér. Ég er orðin húkt á nýjum bókaflokki en ég keypti fyrstu 2 bækurnar í twilight seríunni þegar ég fór til rómar á þriðjudags morgninum. Þið munið kannski eftir því að ég sagði ykkur frá bíómyndinni sem ég fór að sjá með edo, ég komst semsag að því að myndin var gerð eftir bók og að bókin var ekki ein heldur á hún 3 vini sem eru komnir í búðir og einn sem vonandi kemur út einhvertíman í náinni framtíð. Allavega þá er þetta nokkurskonar ástarsaga milli menskrar stúlku og vampíru og ég er hræddum að ég eigi ekki nokkra von um að komast undan. Skólin var skárri þessa vikuna en þá síðustu enda var ég í alveg hræðilegu formu, en ástæðan gæti verið sú að ég var ekki neydd til að tala neitt í tíma, eða allavega ekki of mikið og svo á föstudagin horfðum við á ítalska bíómynd frá 1964 sem heitir matrmonio all’italiana eða eitthvað svoleiðis og hún var mjög góð og mér tókst að skilja næstum helminginn sem er nokkuð gott.
Í gærkvöldi fór ég svo og hitti ítalska stelpu sem ein af bekkjasystrum mínum kom mér í samband við og við erum að scambio linguistica... eða að gera tungumálaskipti, ég hjálpa henni með ensku og hún mér með ítölskuna þó svo að við höfum talað mest á ensku svona í ljósi þess að ég er ennþá ófær um að mynda heila setningu á ítölsku. Allavega þá er bara allt við það sama hjá mér. Og alltaf styttist í jólin. Buona feste
Friday, December 5, 2008
jólagleði
23 November
hæhæh
já helgin búin eða svona næstum því og ég þarf semsagt að vakna snemma í fyrramlálið. Skemmtilegt að segja frá því að ég held allveg örugglega að ég sé ekki búin að setja síðasta bloggið sem ég skrifaði á netið þannig að það er maraþonblogg næst held ég. á föstudagin var semsagt bíó dagur í skólanum. Þetta á að vera svona sirka vikulegt held ég, að sýna okkur mynd á ítölsku með ítölskumtexta. Ég var ein af fjórum sem mætti og engin af vinkonum mínum létu sjá sig. Það var samt ágætt þó svo að við horfðum reyndar ekki á ítalska mynd heldur bara ósköp venjulega Hollywood mynd með Adam Sandler. Eftir tíma fór ég svo og keypti nýju geðveiku töskuna mína sem er alveg geggað mikið flott! Síðan var restin af föstudeginum bara frekar rólegur.
Í dag slepti ég svo róm aftur og fór í staðin með edo og einum vini hans í bíó að sja mynd sem heitir twilight og er allveg gegguð – en ég er veik fyrir vampírumyndum þannig að það er ekki víst að þið fílið hana sérstaklega þar sem stærsti hluti þeirra sem lesa þetta blogg eru ættingjar mínir... eða ég veit ekki betur.
Mig langar bara að bæta við hérna fyrir þá sem eru ekki allveg að fatta það að þá er bara einn mánuður í jólin þó svo reyndar að ég geti mér þess til að það sé erfitt að láta það framhjá sér fara á íslandi þar sem jólaljósin ættu að vera komin upp allstaðar og jólagleðin alveg að komast í hámark. Hér á annaðborð er búið að hengja upp ljósin sumstaðar í bæjum en ekki kveikja á þeim sem mér finns alveg ofboðslega leiðinlegt þar sem ég er komin í alveg major jólaskap og 1. Í aðventu eftir viku:D jæja þangað til næst...
29 November
ciao. Það er komin önnur helgi og ef ég hef þetta rétt þá er nóvember nánast búin, fyrsti í aðventu á morgun og prófatíð framhaldsskóla að byrja á mánudagin, þanig að ég þið eruð að byrja í prófum þá gangi ykkur vel. Vikan leið ótrúlega hratt hjá mér og skólin.... hmmm já skólin gengur... við erum komin með afleysingakennara fyrir carmen sem á að kenna málfræði en hún er eitthvað veik held ég þannig að við fengum nýjan kennara sem ég man ekki hvað heitir en hún er rosa fín og hún þýðir stöff yfir á ensku þegar maður skilur ekki þannig að það gekk alveg glymrandi vel að læra sagnirnar eða allavega að byrja á þeim.
Því miður þá er ein af vinkonum mínum úr skólanum að fara eftir nokkra daga þannig að í gær þá borðuðum við “kvöldmat” í frascati nema þetta var ekki beint kvöldmatur við fórum á vínstað sem er með alskonar forrétti og borðuðum okkur nokkurnvegin södd á brauði, osti og pruschetto (ég kann ekki að skrifa þetta) eftir að okkur tókst nokkurnvegið að panta vín (því miður þá er ekkert okkar mjög frótt um vín þanig að þetta endaði bara í að þjónustustúlkan valdi fyrir okkur. Eftir þetta fórum við svo á kaffi hús og fengum okkur tiramisu (fyrsta skiptið mitt) sem er eftirréttur gerður út mascarpone osti og ýmsu öðru. Þar sátum við og töluðum í góða stund.
Ég veit ekki hvort það er ég eða orðin sem ég er að skrifa núna, eða allavega sum en mér finnst einhvernvegin eins og margt sé ekki að passa alveg eða sé vitlaust stafsett en ég er samt ekki viss þar sem ég get ekki fundið neitt annað til að segja. Ég held að það sé of langt síðan ég talaði íslenku af einhverju viti, þó ótrúlegt en satt þá sakna ég þess ekki beint en það gæti haft eitthvað með það að gera að ég á það til að tala við sjálfa mig, sérstaklega þegar ég er að keyra sem er nokkuð oft. Annars er bara ósköp fátt búið að gerast hjá mér þessa viku þannig að ég held að ég hafi þetta bara stutt. Ciao
30 nov
í dag er fyrsti í aðventu og við erum byrjuð að jólaskreyta hérna. Ég ætla ekki að segja mikið annað en að mér til mikillir mæðu er tölvan hans edos aftur komin í hass og mögulega er það varanlegt ástand þannig að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera núna....
Thursday, December 4, 2008
engin tolva
ekkert merkilegt buid ad gerast hja mer tannig ad tid erud ekki ad missa af miklu
Sunday, November 23, 2008
kvikmyndir
halló...
já ég fór semsagt í bíó á sunnudagskvöldinu á mynd sem heitir changling og er sönn saga sem gerðist í LA 1929 um konu sem lendir í því að syni hennar er rænt og nokkrum mánuðum seinna kemur lögreglan með dreng til hennar og segir henni að þetta sé sonur hennar þó að það sé ekki hann og þegar hún fer í fjölmiðla er henni stungið inn á geðsjúkrahús. Sagan fléttast svo við aðra sögu eigilega... -ef þið viljið sjá myndina þá ekki lesa of mikið en það var semsagt maður sem rændi 20 strákum og myrti þá á hrottalegan hátt. Myndir var góð en er ábyggielga betri ef maður skilur eitthvað meira en non é mio figlio en ég held að ég hafi samt overdose-að á ítölsku þetta kvöld en myndir er rétt tæplega 2,5 klst. Þannig að morgunin eftir tókst mér ekki að fylgjast of vel með í tíma en ég held að það hafi ekki verið of slæmt... nema ég veit bara eigilega ekki hvað við gerðum. Allavega þá var ekki tími í gær og í dag afþví kennararnig mínir voru að gera eitthvað annað sem var sagt á ítölsku og ég náði ekki en á morgun erum við að fara að horfa á ítalska bíómynd með ítölskum texta og læti, ég vona bara að ég skilji eitthvað, allavega söguþráðin þó að það sé yfirlett auðvelt.
á bæði mánudagin og þriðjudagin fórum við fjórar úr tíma að fá okkur kaffi og það er mjög athyglisvert þar sem samræðurnar fara fram á ensku, frönsku, ítölsku og spænsku. Við erum semsagt 4 og ein frá frakklandi sem talar ekki mjög mikla ensku en hinar tvær tala nokkur orð í frönsku þannig að þetta er mjög áhugavert en stundum dett ég alveg út.
Hún móðir mín var að byðja um uppskriftir en því miður þá er ég ekki búin að læra neitt nýtt eigilega en ef þið eruð að leita að einhverju einföldu þá er eggjahræra með mozzarella mjög góð og pasta með smjöri kom mér skemmtilega á óvart. Þá verður þetta ekki lengra í bili
23 November
hæhæh
já helgin búin eða svona næstum því og ég þarf semsagt að vakna snemma í fyrramlálið. Skemmtilegt að segja frá því að ég held allveg örugglega að ég sé ekki búin að setja síðasta bloggið sem ég skrifaði á netið þannig að það er maraþonblogg næst held ég. á föstudagin var semsagt bíó dagur í skólanum. Þetta á að vera svona sirka vikulegt held ég, að sýna okkur mynd á ítölsku með ítölskumtexta. Ég var ein af fjórum sem mætti og engin af vinkonum mínum létu sjá sig. Það var samt ágætt þó svo að við horfðum reyndar ekki á ítalska mynd heldur bara ósköp venjulega Hollywood mynd með Adam Sandler. Eftir tíma fór ég svo og keypti nýju geðveiku töskuna mína sem er alveg geggað mikið flott! Síðan var restin af föstudeginum bara frekar rólegur.
Í dag slepti ég svo róm aftur og fór í staðin með edo og einum vini hans í bíó að sja mynd sem heitir twilight og er allveg gegguð – en ég er veik fyrir vampírumyndum þannig að það er ekki víst að þið fílið hana sérstaklega þar sem stærsti hluti þeirra sem lesa þetta blogg eru ættingjar mínir... eða ég veit ekki betur.
Mig langar bara að bæta við hérna fyrir þá sem eru ekki allveg að fatta það að þá er bara einn mánuður í jólin þó svo reyndar að ég geti mér þess til að það sé erfitt að láta það framhjá sér fara á íslandi þar sem jólaljósin ættu að vera komin upp allstaðar og jólagleðin alveg að komast í hámark. Hér á annaðborð er búið að hengja upp ljósin sumstaðar í bæjum en ekki kveikja á þeim sem mér finns alveg ofboðslega leiðinlegt þar sem ég er komin í alveg major jólaskap og 1. Í aðventu eftir viku:D jæja þangað til næst...
Sunday, November 16, 2008
navi romani
buongiorno, come stai? Sto bene e non vado a roma oggi. Vó sjáið þið þetta.. jamm þetta er heil setning a ítölsku sem ég get sagt og skrifað með mögulega smávægilegum málfræði og/eða stafsetningar villum eða villum. Hver fattar munin hér?? Hahhah ok ég er semsagt ekki að fara til rómar í dag þó að það sé sunnudagur. Og ástæðan er að í morgun eða réttara sagt áðan rétt fyrir hádegi fórum við fjölskyldan í nemi museo de nevi romana eða skipasafn nemi. Lago Nemi (nemivatn) er rétt hjá þar sem ég bý og liggur í gíg (ég veit ekki hvort það á að vera ý eða í). Árið 1930 fundust tvö stykki gríðarlega risastór skip á vatnsbotninum. Þessi skip voru 70m löng og 20m breið sem er ekkert smáræði sérstaklega þar sem Lago Nemi er ekki svo stórt. Þið spyrjið kannski hvað voru tvö risaskip að gera á lokuðu vatni? Hérna er ástæðan – róverski keisarinn Caligula vildi fá sé nýtt sumar hús, eitthvað kósí og skemmtilegt (get ég ímyndað mér) og hvers vegna ekki að byggja vatna villu í orðsins fyllstu merkingu þannig að hann lætur byggja risastórt skip sem hann klæðin í brons og skreytir með mosaikgólfi úr marmara og marmarasúlum og heilum haug að skrautmunum. Ég er ekki alveg viss á söguni hérna en allavega þá enduðu risastór skipin á vatnsbotninum og var svo funndið á ný og ákveðið að byggja safn fyrir þau þannig að þau voru flutt upp á land og safnið byggt utanum þau. Því miður þá brann safnið árið 1944 og bæði skipin urðu eldinum að bráð að mestu leiti. Einhver sem er að pæla í tímasetningunni? Já þið giskuðuð rétt það voru nasistarnir sem ákváðu að fyrst seinni heimstyrjöldin væri að enda og þeir að tapa þá gætu þeir ekki tapað neitt á því að gera smá brennu og púff tvö rúmlega 2000 ára skip horfin. Safninu lokað til frambúðar eftir þetta en það hefur nýlega verið opnað aftur og inniheldur þá hluti sem björguðust ásamt styttum og ýmsu öðru. Ég verð að segja að persónulega hefði ég ekkert á móti því að eiga eina svona vatnavillu.
Í kvöld er ég svo að fara í bíó í fyrsta sinn síðan ég kom á mynd á ítölsku með vinum mínum úr skólanum en fyrst er hádegismatur og ferð á gólfvöllin. A presto. Arrivederci
Wednesday, November 12, 2008
verkfall, motmaeli og laeknir
góðan og blessaðan daginn... hvernig er maginn??
Ok þetta er búið að vera hmm.... kannski ekki sérstaklega áhugaverð vika en allavega hingað til er ég búin að fara ekki í skólan á mánudagin þar sem edo var veikur en ég missti víst ekki af miklu þar sem það var verkfall hjá lestarstjórum og umferðin var algjör killer.... ég er að tala um að á venjulegum degi er það slæmt en þarna voru allir að keyra þannig að ef einhverjum datt í hug að fara í bíltúr hefði sá hinn sami náð meiri hraða fótgangandi eða að æfa sig í að skríða eins og snigill á götunni... sem betur fer þá var þetta bara eins dags verkfall ef það entist svo lengi ég er ekki allveg viss en lestirnar eru allavega komnar aftur í gang.
Þriðjudagurinn var ósköp venjulegur fram til kl fjögur en þá fór ég til læknis vúuhúu til að fá læknisvottorð fyrir sundlaugina sem ég er mjög lúmskt búin að forðast af ótta við að fá yfir mig ræðu á ítölsku sem ég skil ekkert í... allavega ég hélt að þetta yrði bara svona eitthvað spurningaflóð en í staðin tók hann bara hjartalínurit af mér eða hjarta-eitthvað bla blabla sem ég hef ekki hugmynd um hvað er og ég gerði ekki einu sinni tilraun til að spurja.... enda var það algör óþarfi þar sem mér til mikillar gleði þá var mamman með mér og reyndar edo líka þar sem hann er í einhverri meðferð útaf hælnum á sér.
Í dag fór ég svo í skólan og það gekk bara vel, þó ég haldi að bekkurinn minn sé alltaf að minnka og það virðist vera að þeir fáu karlkyns nemendur sem voru í honum hafi látið sig hverfa. En það eru líka alltaf að byrja einhverjir nýir. Í dag átti að vera langur dagur þar sem ég er pínd til að tala bæði í conversazione og málfræði en málfræði kennarinn minn lét ekki sjá sig og engin veit hvers vegna – það eru tveir möguleikar, annar er sá að hún hafi farið að láta skipta um plástur á nefinu á sér (við vitum ekki hvað gerðist en hann er grunsamlega líkur lítaaðgerðar plástri) eða sem mér finnst eigilega líklegra að hún hafi verið að mótmæla nýjum gömlum lögum um skóla eða nám sem núverandi forsætisráðherra vill koma aftur á kjöl. Þegar við vorum búin í tíma snemma fór ég svo með bekkjasystrum mínum og við fengum okkur kaffi og svo fór ég og Amanda (frönsk) heim til Angie (kanadísk) þar sem við horfðum á byrjunina á roman holiday sem mig er einmitt búið að langa að sjá aftur síðan ég kom hingað þannig að maður gæti tekið roman holiday dag í róm og skemmtileg heit.
Ég var svo allveg major dugleg og fór í sund og fór glansandi í gegnum miða tékk og ofaní laug án nokkurra vandræða enda komin með skó og alles. Jam þannig að ég er núna óskaplega hamingju söm (allavega í augnablikinu) og að verða soldið svöng þannig að það er bara eitt enn.... þetta er til lindu sem svar við kommentinu sem hún skrifaði á síðastabloggið mitt... ég er því miður hrædd um að það verði ekki mikið af saumasögum héðan þó að að sé örugglega hægt aðkaupa vél einhverstaðar en ég held að ég einbeiti mér bara meira að því að finna óuppbyggjandi leiðir til að láta tíman líða eins og synda – mitt nýtil komna ofurátak og skrifa þessi tilgangslausu blogg til að skemmta mér meira en þeim sem les það – held ég en ég hef ekkert á móti því þannig.... ciao
Sunday, November 9, 2008
enn einn sunnudagur
halló halló halló.... er einhver þarna??
Þá er liðinn enn einn sunnudagur í lífi mínu og enn ein ein ferð til rómar afstaðin. Í morgun var ég alveg á mörkunum að nenna að fara, gæti haft eitthvað með það að gera að þegar maður er búin að fara með einhverjum er ekkert voðalega sjarmerandi að lölla af stað einn. Einhvernvegin þá var ég samt ekki allveg tilbúin að eyða frídeginum mínum í sjónvarpsgláp og leti þannig að ég dröslaði mér á stað og ákvað að gera aðra tilraun til aðfara í verslunnar leiðangur. Því miður hefur það ekki gengið neitt of vel hjá mér undanfarið og mig farið að “vanta” eitthvað nýtt – þ.e.a.s. jakka. Í ljósi þess að minni elskulegu systur tókst að sannfæra mig um að skilja það stykki sem ég ætlaði að taka með eftir. Ég er semsagt búin að vera alltaf með það á bak við eyrað að kaupa jakka en ekki fundið neinn sem ég var nógu ánægð með... fyrr en í dag, ég rakst inná búð sem selur “made in italy” vörur og þar sá ég þennan æðslega litla sæta, fjólubláa jakka sem kostaði ekki nema 50 E (sem í mínum heimi er 5000kr en í ykkar u.þ.b. 8, en ég hugsa ekki umm það) og er 80% ull... ekki svo shabby.
Þegar ég kom úr metró við piazza del popolo þá var hljómsveit og kór með æfingu og ég held að það hafi verið tónleikar í kvöld en ég er ekki viss... mér finnst alltaf soldið skrítið að hlusta á hljómsveitir, þar sem ég er vön að vera á hinum endanum. En það var mjög gaman að heyra en lét mig líka minnast þess hversu mikið ég sakna þess að vera í hljómsveit sjálf. Ég veit að ég gæti mögulega funndið eitthvað hérna kvartett eða trío jafnvel strengjasveit, en ég er satt að segja og löt til þess og það hálpar ekki að það að tjá sig við fólk sem þú skilur mjög illa og skilur ekkert af því sem þú segir, það er af einvherjum ástæðum ekki mjög kvetjandi í mínum augum. Hvað skólan minn varðar þá gengur það bara vel og ég skil meira með hverjum deginum en ég held að ég sé búin að segja það áður og ekkert þess vert að minnast á hefur gerst síðan þannig að ég er hætt í bili, caio
p.s. ég verð líka að segja að ég er ennþá frekar svekkt yfir því hversu lítið af kommentum þið eruð að senda mér... endilega að segja eitthvað.
Wednesday, November 5, 2008
hrekkjavakan
já fólk það er kominn nýr mánuður! Síðasta vika var frekar áhugaverð fyrir mig þar sem ég er núna allveg opinberlega byrjuð í skólanum. Ég verð að segja að það gekk ekkert of vel, mikið að fólkinu sem ég er með í tíma virðist kunna ansi mikið fyrir sér í ítölsku og mér líður eins og algjörum plebba sitjandi og ekki skiljandi neitt... eða allavega alveg óskaplega lítið. En mér til mikillar gleði þá er ég búin að eignast vini:D og í dag sem er sunnudagur ef einhverjir eru ekki allveg að fylgjast með dagsetningum þá fór ég með mayju (hún er með mér í skólanum) og manninum hennar óskari til rómar og við fórum og fengum okkur að borða á indverskum veitingastað i trastevere (er ekki allveg viss um að ég sé að skrifa þetta rétt en ég er of löt til að tékka á því) þar sem maturinn var ekkert sterkur og ég fékk mér samt kjúkling sem hét “hot” svona til að gera mig ennþá meira skiljanlega þegar ég segi ekki sterkur þá meina ég að mamma hefði getað borðað hann án nokkurra vandræða. Það var samt mjög gaman að borða eitthvað annað en pizzu eða pasta. Síðan röltðum við bara um og tókum svo lestina aftur til frascati þar sem þau búa og ég keyrði heim. Þegar ég kom heim var fjölskyldan ennþá í napólí, en í dag er nebblega dagur hinna dauðu þannig að þau fóru þangað til að hitt fjölskylduna- jafnt lifendur og framliðna.
Föstudagurinn var líka mjög skemmtilegur eða réttara sagt þá var föstudagskvöldið mjög skemmtilegt. Ef það fór fram hjá einhverjum á fróni þá var hrekkjavakan þann dagin og ég, edo og mamman fórum í partí. Ég var klædd eins og norn, eða ég var reyndar bara með hatt og í svörtum kjól sem mamman gaf mér og svo pínu fríkí máluð, með crazy hár. En ég held að hrekkjavakan sé einmit “the ultimate hair do day” en því miður verða þeir sem gleymdu þessum ameríska hátíðis og nammi-áts degi að bíða í annað ár með að sleppa sér í gleðinni. Partýið var haldið af fyrrverandi bekkjafélaga edos úr international skólanum þannig að allir sem voru þarna, eða allavega flestir töluðu ensku sem var mjög gott fyrir mig þar sem við orðaforði minn og kunnátta í ítölsku hefur nánast bara bæst við “no capito” sem er mjög mikil vægt að kunna þegar maður er að reyna að læra ítölsku á ítölsku og skilur bara 1/3 af því sem kennarinn segir.
Þetta er bara frekar stutt hjá mér í kvöld. Þannig að.... lifið heil og ekki gera of lítinn óskunda í lífinu það er bara tóm vitleysa
Friday, October 31, 2008
skoli
ok ég held að þetta verði síðasta bloggið mitt í oktober, sem er allveg pínu scary. Tíminn virðist alltaf vera að flýta sér. Ef að þið hafið ekki gefið upp allavon um nýtt blogg þá viti þið kanski að það komu heil 4 ný blogg inná í gær. Jamm tölvan er semsagt komin í gang aftur hérna heima jeiiiijj. Í dag er allveg ótrúlega leiðinlegt veður, rigning kallt og hráslagalegt sem er ekki mjög töff afþví að í dag fer edo í fótbolta.... þó að hann muni mæta pínu seint afþví hann er að fara í hitting eftir skóla.
Í gær var hinsvegar ágætis veður og einnig fyrsti dagurinn minn í skólanum. Persónulega verð ég að segja að ég hef mínar efasemndir um þetta að læra ítölsku á ítölsku dæmi en kannski þegar ég verð búin að læra eitthvað fer ég að skilja orð og orð af því sem kennararnir eru að reyna að segja. Fyrsti dagurinn fór sem sagt ekki svo vel. Ég skildi ekki neitt og aðeins minna en það en tókst samt nokkurnvegin að læra að segja stafrófið – þetta er allt að fara í rétta átt. Svo áttum við að stafa nöfnin okkar og mitt nafn fór satt að segja ekkert of vel, enda ekki svo auðvelt að stafa nafnið mitt, eða lesa það og sérstaklega ekki þegar kennarinn sem er að skrifa það niður á í erfiðleikum með að skilja það sem þú ert að segja en allt þetta esse enne (sem endaði reyndar sem elle) a e efffe erre í di ú erre og þá vorum við rétt komin í gegnum fyrra nafn mitt með erfiðleikum og tímin næstum búin eftir að ég þurfti að segja flesta stafina oftar en einu sinni og ég endaði sem slaefridur af því ég sá ekki ell-ið fyrr en tímin var búin (sem var um leið og mér tókst að stafa johannsdottir) og ég ákvað að það væri ekki þess virði að reyna að leiðrétta þennan misskilning. Allavega... þá gekk þetta ekki svo illa og ég hef bara ákveðið að fyrst ég skil ekki neitt þá get ég bara opinberað minn innri tossa og látið endurtaka allt endalaust oft. Reyndar þá verður hópnum skipt í tvö stig á miðvikudögum núll og eitt stig og ég er klárlega að fara í núll og vonandi mun mér takast að skilja eitthvað þar á morgun.
Ég get því miður ekki heillað ykkur neitt með ítölskukunnáttu minn (þar sem hún er ekki til staðar) en allavega þá er mánuðurinn næstum búinn og jóla brjálæðið að fara í gang.... er búið að hengja upp einhverjar skreytingar?? Arrivederci
Ok ég verð bara að bæta aðeins við þetta.... edo fór semsagt í afmæli áðan og ég að keyra og kemur þá ekki þessi svaðalega rigning allveg eins og helt sé úr fötu. Ég skemmti mér allveg konunglega en ég er búin að komast að því að rigning gerir mig létt geggaða og ég er ekki endilega viss um að það sé á góðan hátt. Þar sem ég var keyrandi í kvöld þá leið mér soldið eins og ég væri á íslandi... get samt ekki allveg fundið út hvaða árstíð þar sem það er myrkur hér og frekar kalt en samt ekki þannig að þetta passar eigilega hvorki fyrir sumar né vetur en ég ætla samt að halla mér að vetrinum sérstaklega í ljósi þess að ég er komin í mitt árlega alltof snemma jólaskap sem verður að öllum líkindum búið að láta sig hverfa til geðheilbrigðaðra mannesja í byrjun desember.... =O) :*
Monday, October 27, 2008
og enn meira af rom
og spurningunni er hér með svarað sem sé nei. Tölvan er ennþá dáin og ég ekki búin að finna heitan reit neinstaðar í þessu landi, ekki ennþá allavega. Ég er búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að skipta þessu sem ég er búin að skrifa niður í 4 blogg eða gera þetta að einu maraþonbloggi.... ég held samt persónulega að það sé betra að skrifa mörg lítil þar sem það er óttalega erfitt og leiðinlegt að lesa. Hmmm margt er búið að gerast, eða að fara að gerast. Á morgun er fyrsti dagurinn minn í skólanum spennandi og ég er búin að redda bókini eða ég held það á samt eftir að tékka, eftir að hafa labbað í 3 la feltrinelli búðir í róm og þar með labbað borgina nánast þvera og endilanga.
Í dag fór ég semsagt til róm og var lögð af stað allveg óvenjulega snemma og komin til rómar um 10 leitið. Planið var að fara í hringleikahúsið en það var svo mikil röð að ég ákvað að fresta því um stund og fara frekar að leita að bókinni minni. Þegar ég var svo búin að finna hana uppúr hádegi fór ég aftur niður á fori imperiali og rölti að hringleikahúsinu. Þar var fólk að veiða fólk í túra og ég ákvað að það væri ágætt að prófa annan túrgæd og fór í einn túr um hringleikahúsið. Ég verð samt að segja að jason sá sem ég fór með í vaikanið og labbitúrinn var miklu skemmtilegri.... eða á annan hátt, hann er samt eigilega meira betri en skemmtilegrt. Þrátt fyrir það þá lærði ég eitthvað nýtt í dag t.d. þetta: í róm til forna voru komur það lægsta og minna virði en þrælar og þess vegna þurftu þær að standa efst í hringleikahúsinu en fengu ekki að sitja eins og karlarnir, þó að sjálfsögðu voru eiginkonur mikilvægustu karlanna sem fengu að sitja þ.e. eiginkonur keisarana og þingmanna. Það voru samt 6 aðrar stúlkur sem fengu sæti og það voru hofgyðjur gyðjunnar Vesta... þessu setning hljómar eitthvað skrítið. Vesta “hreinu” meyjarnar voru 6 af fallegustu stúlkum rómarveldis og þjónuðu í 30 ár. Þær voru teknar inn á bilinu 6-10 ára og fengu 10 ára þjálfun í að gæta hin eilífa loga, gættu hans svo í 10 ár og eyddu svo síðustu 10 árunum í að þjálfa arftaka sinn. Þegar sá tími var búinnn máttu þær fara og gifta sig og gera það sem þær vildu eða vera áfram í musterinu. Ef þær hinsvegar brutu loforð sitt um að halda meydómnum voru þær grafnar lifandi. Lífið var þó ekki alslæmt þar sem þær voru einu konurnar í róm sem voru eitthvað metnar og máttu þær eiga hesta og jarðir og ef þær gengu þvert á veg dæmds manns var hann náðaður. Í hringleika húsinu þegar ekki allir voru sammála um það hvort skilmingaþrælarnir ættu að lifa eða deyja þá voru það þær sem ákváðu örlög þeirra. Eftir stuttan túr um hringleikahúsið fórum við svo að skoða palatine hæðina þar sem róm var stofnuð og ég fékk að vita smá svona um höll sem einhver af keisurunum leit byggja og var víst mikilfengleg öll klædd marmara að utan sem innan en hann er allur farin núna að sjálfsögðu, notaður í að skreyta hinar ýmsu kirkjur í róm. Eftir því sem ég heyri meira af þessum sögum verður mér eigilega verr og verr við kristnina, eða kaþólskukirkjuna eða hverja þá sem ákváðu að það væri betra að gera gólfflísar úr efninu en að skreyta veggi, þó að það sé reyndar bara því að þakka að sumar byggingar og hlutir voru gerðir kristnir sem þeir eru enn á lífi í dag þannig að ég bíst við að þeir séu ekki alslæmir.
Þá er ég samt hætt í dag alveg dauð uppgefir í fótunum eftir allt labbið sme var nánast non-stop og farin að sofa þannig að ég verði nokkurnvegin hress og kát á morgun. Ég ætla að gera mitt besta til að koma þessu á netið sem fyrst. Lifið heil og sæl þangað til næst (sem gæti verið mjög fljótlega (vonandi ekki of fljótt samt)) smaksmask.
laeti og tolvu vesen med meiru
hahahh já það er bara svona!
Ég lenti nefnilega í því skemmtila atviki.... eða ég ætti eigilega frekar að segja við, að tölvan hans edo fór í hass.... þar af leiðandi er ég núna að skrifa þriðja bloggið mitt sem er ekki ennþá komið a netið og satt að segja veit ég ekki allveg hvenær það fer þangað. Þeir eru nebblega svo gáfaðir hér í ítalíu að copia alla windows pakkana og endur selja þannig að það eru 20-40 manns með sama eitthvað.... ég er ekki mjög góð í tæknitali og ennþá verri þegar það er þýtt úr ítölsu yfir í ensku! Allavega það gerist stundum að windows drepur tölvuna þína og það þarf að endur forrrita hana og þar sem það er ekki þráðlaust internet hérna sit ég uppi með það að þurfa alltaf að nota yndislega usb-kubbinn sem linda gaf mér – takk æðislega mikið, hann er allveg að bjarga mér hérna – en því miður þá er ég ekki nógu gáfur til að hafa tekið hann með mér í dag en ég fór á netkaffi í frascati á meðan edo var í skólanum og svo var ég bara á röltinu og kíkti á kaffihús og slappaði af... mjög góð tilbreyting frá því sem ég er var að gera í síðustu viku sem var nákvæmnlega ekki neitt – allavega ekki neitt annað en að sofa borða keyra og horfa á sjónvarpið... eða það var svona það mesta sem ég gerði.
Í þessari viku er ég hinsvegar búin að vera geggað dugleg. Það byrjaði allt á mánudeginum þegar ég fór um kvöldið – eða um sexleitið til nemi að ná í vatn og labbaði svo aðeins um en ég fann eigilega bara blindgötur og brekkur og fullt af þeim þannig að ég enntist ekki lengi. En eftir það fór ég svo og fann nógu mikið hugrekki til að skrá mig í sportklúbb í genzano þar sem ég get farið í sund :D þetta er allt voaðlega flókið hérna en núna sit ég uppi með að verða að fara til læknis til að fá læknisvottorð um að ég sé heilbrigð eða eitthvað álíka sem ég get bara ekki skilið, þeir eru með mjög skrítið sistem hérna og greyið afgreiðslukonan eftir að hún fann einhvern sem talaði ensku og ég gat sagt henni að ég vildi fá 10 miða kort og skrá mig í klúbbin lét sú enskumælandi sig hverfa enda í miðju work out-i og hin sat uppi með mig ekki skiljandi neitt þannig að hún lét mig sleppa án þess að hafa þetta læknisvottorð... allavega þá fór ég í sund í fyrsta sinn í hvað 7 vikur eða svo og tókst með einhverjum ótrúlegum hætti að slefa uppí 2000m (mín ekkert smá stolt af því). Ég komst líka að því að allveg eins og við dæmum útleninga sem neita að þvo sér áður en þeir fara ofaní þá hefði vel mátt dæma mig þar sem ég var ekki eins og allir aðrir með baðslopp, ég var ekki með sturtu flippfloppana algjört möst greinilega og ekki einu sinni með sundhettu (hún var eftir á íslandi) þannig að ég var bara með mitt handklæði (fékk engin komment á það) en þar sem ég labbaði í allveg þver öfuga átt eftir að ég skipti um föt fékk ég skóhlífar til að annaðhvort verja gólfið eða tærnar á mér ég er ekki allveg viss en persónulega held ég að tærnar á mér séu vondu vanar og kippi sér ekki upp við smáatriði og gólfið hlítur að lifa. Ég komst svo útí laug en er ekki búin að staldra lengi við þegar voðalega vingjarnlegur þjálfari kemur og spyr mig hvað sundhettan mín sé og lánaði mér svo eitt stykki. Því miður þá fann ég hann ekki þegar ég fór uppúr þannig að ég er núna orðin sundhettuþjófur og þar sem ég var komin á hina hættulegu braut afbrota ákvað ég að halda mig bara á henni og skilja skóhlífarnar eftir og pína gófið á leið minni niður í klefa.
Ég og edo erum líka búin að vera rosa dugleg og fara út í fótbolta allaþess þrjá heilu daga sem eru búnir af vikunni og órtúlegt en satt þá er ég alltaf búin að vinna þrátt fyrir mínar bestu tilraunir til að verja ekki þá virðist ég gera það allveg ósjálfrátt... ég er semsagt búin að hreyfa mig allveg heilan helling í fína veðrinu sem er hérna núna svona 25° á dagin +/- eitthvað smá, á meðan það er snjór og læti heima á Fróni, þetta veit ég því að mamma þurfti að keyra odd greyið lappalausa í skólan í morgun og hætta spjallinu við mig.
Núna er stóra spurningin bara hvort þetta blogg fer á netið áður en ég skrifa það næsta....
napoli
hæhæhæ jamm það er skemmtilegt að segja frá því að ég er búin að vera með þetta síðasta blogg bara hangandi hérna inná tölvunni minni í viku en ég er búin að vera einstaklega löt þannig að ég set núna tvö hérna inná í einum grænum þannig að ef þið eruð ekki nú þegar búin að lesa 14 okt bloggið þá er það hérna fyrir neðan. Þrátt fyrir margar tilraunir mínar til að fá ykkur elskulega fölskylda og vinir til að kommenta á þetta blogg mitt án nokkurs árangurs þá hef ég ákveðið að gefast upp á því allavega um sinn og lesa frekar allar þær áhugaverðu fréttir sem finna má á mbl.is og visi.
Það sem er búið að gerast síðan síðast.... ekki ýkja mikið. Á sunnudagin fór ég með fjölskyldunni til Napóli (Napels) þar sem við fórum í afmælishádegismat fyrir litlu frænku þeirra sem var að verða eins ár og er rosa sæt með risastór allveg dökk augu. Allavega þá tókum við edo og margherita lest frá róm til Napóli á sunnudags morgninum eða reyndar var klukkan orðin allveg næstum ellefu en planið var að taka lest kl 8.... það gekk ekki allveg. Þegar við komum tók Raffaele á móti okkur og við tókum einn rúnt um bæinn til að sýna mér aðeins um. Napóli er hafnarborg og á allveg ótrúlega flottum stað höfnin liggur í boga eða reyndar í nokkrum bogum held ég inní landið og svo eru brattar hlíðar allt í kring og í þeim eru svo hverfi... ítalir virðast vera allveg afskaplega hrifnir af því að byggja í hlíðum og fjöllum og gömlum eldfjallagígum. Við keyrðum svo út úr borginni og inní annan lítinn bæ þar sem við fórum að borða á sjávarréttastað mjög gaman fyrir mig. Þessi hádegismatur tók rétt tæplega fjórar klukkustundir eða eitthvað þar um bil.... þetta byrjaði á að komið var með litlar bollur, þar á eftir 2 tegundir af fiskisalati, steikt zukkini, brauð með tómötum og pruchetto með osti og klettasalti. Svo kom önnur legund ad fisk og eitthvað gums með tómötum sem ég mátti borða... þegar hér var komið við sögu var ég orðin södd eða svona því sem næst. Á eftir þessu var svo komið með skelfisk sem ég held að hafi verið bláskel er samt ekki allveg viss og litla heila eldaðafiska. Þetta var allt forréttir því svo kom sjávarréttapasta (ég fékk basta með tómötum sér eldað í ljósi þess að ég má ekki borða fisk) og á eftir því voru svo hrísgrjón með sjávarréttum sem ég fékk ekki en þarna var ég ekki ennþá búin að fá pastað mitt en ég var ekki að kvarta... svo þegar allir voru búnir að bíða eftir að ég kláraði að borða og láta sjatna aðeins í sér var komið með ananas u.þ.b. 1/8 á mann mjög góður og á eftir honum voru svo kökur og snafsar og ég þarf varla að minnast á að með matnum var að sjálfsögðu drukkið Napóliskt hvítvín (og vant og kók líka). Eftir þessa alltof stóru máltíð keyrðum við heim sem er ca 2 tíma akstur og eftir það ákvað ég að það væri best að taka því bara rólega og lagðist í video gláp sem endaði reyndar fyrir kl 10 með því að ég fór bara að sofa enda algjörlega uppgefin af öllu þessu áti og magin á overtime að reyna að vinna úr öllum þessum andskota. Ég ætti kannski líka að minnast á það að ég mæli ekki með því að fólk leiki þennan leik eftir... allavega ekki án þess að æfa sig fyrst því ég get sagt ykkur að ég svaf ekki svo vel síðustu nótt og magin minn er ekki ennþá komin í samt lag aftur. Ég þurfti að vakna kl 6 til að skutla mömmunni niðrá lestarstöð þar sem það var smá bílakrísa hér í morgun (litli bíllin fastur í róm síðan í gær morgun) en eftir það fór ég með edo í skólan og svo heim aftur þar sem ég svaf mjög hamingjusöm í u.þ.b. einn og hálfan tíma. Þrátt fyrir það er ég aftur orðin þreitt þó klukkan sé ekki margt þannig... góða nótt fyrir mig
vaticanid
góða kvöldið gott fólk
það virðist vera að þrátt fyrir mínar bestu tilraunir til að skrifa blogg sem fjalla um mig eða allavega þetta eina þá eru menn ekki enn full ánægðir og vilja heyra frá mínum ósköp venjulegu dögum sem eru að öllum líkindum ansi svipaðir ykkar nema u.þ.b. 20°C heitari. Í dag þá byrjaði ég á að vekja edo og keyra hann svo í skólan kl 7:15 ég var svo komin heim í kringum hálf níu eða svo. Svo fór ég á internetið og komst að því að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar til að fá fólk til að skrifa komment þá hefur það ekki gengið neitt! Ég er mjög vonsvikin og vona að héðan í frá takið þið ykkur á en annars ætla ég ekki að minnast á þetta oftar. Svo kl 11:30 fór ég að sækja í skólan. Ég fór fyrr en vanalega þar sem ég þurfti að fara í skólan minn og fá uppl. en ég byrja semsagt á ítölskunámskeiði 27 okt eftir 2 vikur og er þar þrisvar í viku á mán. of fim. (2 tíma) og svo marga tíma á miðvikudögum. Svo komum við heim borðuðum hádegismat og fórum svo út í fótbolta og ég vann... ótrúlegt en satt! Síðan skuttlaði ég edo á fótboltaæfingu kl hálf fim og hékk svo bara niðrá velli og las á meðan og svo komum við heim um hálf átta og núna er ég bara að bíða eftir kvöldmatinum. Eins og ég sagði þá eru mínir dagar ekki sérstaklega áhugaverðir.
Það sem ég vildi hins vegar segja ykkur frá er síðasti laugardagur. Ég var sem sé ný komin heim eftir að hafa skutlað í skólan og ákvað að fara aðeins í tölvuna þegar mamman kom mér algjörlega á óvart með að vera heima og hún sagði að hún myndi sækja edo þannig að ég gæti farið til rómar þegar ég var búin að þrífa smá og ganga frá þvottinum. Allveg himinlifandi glöð yfir þessu ákvað ég að þetta væri dagurinn til að fara í vatikanið þannig að ég þrammaði niður á stoppustöð og eyddi þessum einum og hálfa tíma rúmlega sem tekur að komast til rómar í að hlusta á sögubók á ipod-inum mínum allt saman í boði lindu (takk fyrir það). Ég fór svo í túr með túrgædinum sem ég hitti fyrir nokkrum vikum. Ég veit eigilega ekki hvernig er best að lísa vatikaninu nema að það er mjög stórt og ef þið komið til rómar verður hver og einn að gera upp við sig hvort hann vilji fara að skoða það. Ég veit að þetta er nottlega svona staður sem allir verða að sjá og ég ætla ekki að segja að það hafi ekki verið mikilfenglegt en.... hmmm ég veit ekki allveg, kannski er það bara mín skoðun en það er eitthvað við svo margar sögur að kirkjunni sem láta mig eigilega ekki vilja vera kristin manneskja. Sistínska kapellan. Ég verð að segja að ég var ekkert yfir mig upprifin, ég meina þetta er að sjálfsögðu allveg ótrúlega merkilegt fyrirbrygði en ég er samt að komast að því að yfirleitt hef ég meiri áhuga á arkitekt og byggingunum yfir höfuð heldur en þeim skreytingum sem í þeim eru og það verður að segjast að kapellan er mjög ómerkileg að horfa á í þeim skilningi. Myndirnar eru allveg fallegar en það er mikið að fallegum myndum og skreytingum útum allt og í kirkjum alstaðar og fyrir minn smekk þá var sistinska kapellan ekkert frábær og mikið betri en allt annað. Ok ég er kannski að mála frekar dökka mynd hérna en... péturskirkja er eins og hver önnur kirkja í mínum augum nema óneitanlega stærri enda stærsta kirkja í heimi og hún er stór.
Kannski er ég bara svona neikvæð afþví að það var verið að laga á mörgum stöðum og mikið sem var lokað og hópurinn var aðeins of stór. Hvað sem það var þá er ég hætt í bili en vonandi mun ég vakna einn dagin og vilja segja ykkur betur frá þessari ferð.
Sunday, October 12, 2008
frascati og ymislegt annad
Mér hefur verið bent á mjög kurteisislega að sjálfsögðu að þrátt fyrir að það sé nú alveg óskaplega gaman að lesa um ferðir mínar til rómar þá segi ég ósköp lítið um það hvernig mér líður eða nokkuð frá mér yfir höfuð (þannig að ef þið viljið bara lesa ferðasögur endilega sleppid tvi ad lesa tennan kafla... tad kemur annar fljotlega
Með þetta að leiðarljósi get ég sagt hverjum þeim sem hefur áhuga að í augnablikinu er ég að deyja í löppunum enda búin að labba þvert yfir róm en þið fáið að heyra um þá ferð seinna. Ég er búin að koma mér vel fyrir og farin að líta á þetta land og þennan stað sem heimili mitt. Mér og fjölskyldunni kemur alveg sæmilega saman og ég hef ekki yfir neinu að kvarta með hana allavega ekki enn sem komin er og ég vona að það haldist þannig. Eigilega það eina slæma við dvöl mína hér er að ég er ennþá ekki búin að eignast neina vini og er ekki ennþá byrjuð í ítölskuskólanum þó að ég voni að það breytist í bæðum tilvikum eftir u.þ.b. 2 vikur. Kalhæðnislega þá er það einmitt sá tími sem ég eyði í róm sem er hvað mest einmanalegur og minnir mig á það hvað ég er eitthvað ein en það er einmitt sá tími sem þið heyrið mest frá. Á meðan alla hina dagan er ég bara sátt og kannski ekki neitt svaklega upptekin með mín venjulegu vakna of snemma og keyra í skólan drepa dagin og sækja í skólan, borða hádegismat og drepa svo tímann daglegudagskrá.
Það var einmitt núna á föstudagin sem ég hafði extra langan dag til að drepa þar sem edo var að prófa veggja klifur sem er valfag aukalega í skólanum hans – sem hann ætlar reyndar ekki að taka – sem ég ákvað að skoða Frascati sem er sem sagt bærinn sem skólin hans og tilvonandi skólinn minn eru í. Því miður fyrir mig þá voru þær 7 klukkustundir sem ég hafði alltof langur tími en ég var búin að labba miðbæinn þveran og endilangan áður en klukkan varð 10 þannig að ég skemmti mér við að þræða það sem mér fannst vera hver einasta litla gata sem hafði einhverjar búðir í eða var þarna á miðsvæðinu og fara inn í nánast allar búðir sem ég sá. Því miður fyrir mig þá hef ég fylgst nokkuð vel með gengi krónunnar sem veldur því að allt sem ég hef verið að sjá á undanförnum vikuð hefur verið alveg ógeðslega dýrt og allt verðskin mitt algjörlega komin í hass. Ég hef því ákveðið að búa til stöðugt gengi á krónuma sem meikar nokkurnvegin sens og það gleður mig að segja ykkur að krónan er núna í föstum 100kr evran eða allavega í mínum heimi þó svo að þrátt fyrir mínar bestu tilraunir er ég ekki allveg búin að fullkomna sjálfsblekkinguna. Rétt eftir eitt þegar ég var orðin úrkula vonar um að tíminn myndi nokkurntíman ná að verða 3:30, það var búið að loka búðunum fyrir siestuna þó að ég hafi ekki hugmnd um hvað hún er kölluð hér þá fékk ég símtal frá pabbanum sem sagði mér að ég þyrfti ekki að ná í edo úr skólanum og þar með ekki hanga lengur í frascati, sem þýddi reindar að ég hefði getað verið löngu farin en veðrið var til fyrir myndar þannig að ég ætla ekki að kvarta. Það sem var mest áhugavert sem gerðist þennan dag í mínum heimi var ég rambaði inn á búð sem var að selja borðdúka efni sem voru frekar mikið flott og þá sérstaklega eitt sem var hvítt með dökkrauðum kirsuberjum, þannig að ég er ekki frá því að sérgrein mín í framtíðinni verði að hanna og sauma regnjakka sem eru að mestu leiti ætlaðir sem tískuyfirlýsing frekar en nytjahlutir þó svo að sjálfsögðu þá munu þeir vera einstaklega góðir í rigningu þó ég eigi ennþá eftir að prufukeyra minn almennilega.
Hmmm... eitthvað svona aðeins öðruvísi en vanalega frá mér. Hafið það gott
Tuesday, October 7, 2008
4. sunnudagur ì ròm
ég er búin að komast að því að þó róm flokkist kannski sem stórborg þá er hún alls ekkert stór.... ok það getur vel verið að hún nái yfir stórt landsvæði en bara ef maður tekur með öll úthverfi og svoleiðis dót, en miðborgin er pínu lítil. Ég er kannski aðeins að ýkja en hún er allaveg ekki mjög stór. Það var nefninlega þannig að á mínum fjórða sunnudegi í róm þá fór ég að skoða píramídann, jamm það er píramídi í róm sem var fluttur hingað af einu að keisurunum þó ég muni í augnablikinu ekki hverjum þeirra. Eftir að Egyptaland féll undir rómaveldi ákváðu rómverjarnir að ná sé í eitthvað af skemmtilegum munum þaðan enda komst það í tísku að skeyta hús og híbíli í egypskum stíl. Þeir tóku fullt af sólarsúlum... æjj þessum mjóu sem voru útgrafnar með táknum og í þeim átti sólarguðinn að vera. En fyrir einn af rómverskukeisurunum var það ekki allveg nóg, hann vildi fá sína hinstu gröf í píramída og lér því flytja eitt stykki (ekki mjög stórt) yfir til rómar.
Þar stendur hann enn í dag og ég held að það sé enn verið að vina við fornleyfauppgröft þar eins og á svo mörgum öðrum stöðum í borginni. Því miður fyrir mig var allt lokað þegar ég kom enda sunnudagur en það var samt sem áður gaman að fá að sjá alvöru píramída þó maður hafi ekki ennþá farið til Kairo. Þarna á þessu svæði var ekki eins mikið sjáanlegt af túsisma fannst mér og mikið af íbúðar húsum þannig að ég ákvað að villast bara aðeins um hverfin á leið minni aftur að Via del Corso. Það vildi þó ekki betur til en svo að ég var fljót að villast leið mína að fljótinu sem rennur í gegnum róm og heitir Tevere... þar sem ég vissi að ef ég gengi með því myndi það á endanum leiða mig á kunnuglegar slóðir og í leiðinni gefa mér tækifæri á að sjá Tempio di Vesta sem er lítið hringlaga hús umkringt súlum og er rétt hjá Circo Massimo. Þaðan lá leið mín að Marcelli leikhúsini sem er byggt eins og hringleikahúsið nema að það hefur verið lagað einhverntíman þannig að það eru tvær tegundir af bogum en er engu að síður mjög flott sjón. Allt þetta ferðalag sem virtist á korti að myndi taka mig ágæta stund tók ekki mikið meira að labba en er að taka mig núna að skrifa um það.... ok kannski aðeins lengur en engu að síður allt of stuttan tíma.
Ég gerði mitt besta til að villast um litlar hliðargötur en ákvað svo að fara að skoða Pantheon að innan, ég varð ekki fyrir vonbrigðum og þetta er án efa ein að áhugaverðustu kirkjum í róm og þá er mikið sagt. Inni í henni eru tvær grafhvelfingar ein fyrir Vittorio Emanuele II og ein fyrir Rafaele sem var listamaður og sá sem ákvað hvar ætti að grafa upp rústir gömlu rómar en hann dó þegar hann var bara rúmlega 30 en ef hann hefði fengið að lifa hefði mögulega verið miklu fleiri staðir sem hefðu bjargast, þetta var á 16. öld. Hann var svo mikil metin að þegar hann bað um að fá að vera grafinn í kirkjunni var það leyft án minnst hiks. Hann hvílir núna í marmarakistu sem var gefin einhverntíman eftir að hann dó og kistan var opnuð til að tékka hvort það væri ekki örugglega hans lík í henni og á henni stendur: hér hvílir Rafaele sem móðir náttúra óttaðist að myndi gera betur en hún meðan hann lifði og eftir að hann lést óttast að hún sjálf gæti hrunið.... man ekki nákvæmlega hvernig þetta var en einhvernvegin svona – þetta er mjög gróflega þýtt.
Það gerðist ekki mikið meira í þessari ferð minni til rómar, allavega ekkert sem ég man eftir eða er vert að minnast á þannig að ég kveð í bili
Saturday, October 4, 2008
matur?
jamm og já gott fók það er komin nýr mánuður sem þýðir að ég er búin að vera hér í mánuð eða næstum því. Þessi vika er búin að vera ósköp róleg eða þannig... það er ekki mikið buið að gerast. Ég er búin að vera að keyra og lifa ósköp tilbreytingarlausu lífi, en ég er aldrei búin að villast á leiðinni í eða úr skólanum vúhúúú:D
í gær og í fyrradag fór ég samt með Margheritu í golf, ekki að ég hafi verið að spila en það er fín útivera að elta einhvern í golfi og maður labbar allveg helling, ég hef aldrei gert mér grein fyrir því hvað golfvellir eru stórir, mögulega afþví ég hafði aldrei komið á golfvöll og vissi eigilega ekkert um golf.... nema náturulega að maður væri að reyna að koma kúlunni í holuna í sem fæstum höggum. Ég get nú samt ekki sagt að ég sé farin að skilja golf eða neitt í kringum það nema að maður getur fengið fullt af refsingum fyrir að virða ekki reglurnar, jamm og það er allveg nóg af þeim. Við förum á golf völl í Castell Gandolfo sem ótrúlega fallegur og er í eldfjallagíg (hann er víst einn af 15 fallegusu golfvöllum í ítalíu). Ég held samt að Castell Gandolfo sé sá bær í Castelli Romano (þetta svæði í kringum róm er kallað það og er sem sagt samansafn af fullt af bæum) sé uppáhalds bærinn minn þó að ég hafi ekki komið þangað oft og aldrei labbað um. Fyrsta kvöldið mitt fórum við einmitt á veitingastað í CG en bærinn liggur í kringum vatn sem er allveg frekar stórt og liggur ofaní dal sem gæti verið annar eldfjallagígur en ég er ekki viss. En það er allgjörlega á “to do” listanum mínum að heimsækja CG og sem fyrst.
Nóg um það allavega. Ég er búin að vera frekar mikið á vappi þó ég geri ekki margt en er búin að læra að elda rétt sem er alveg ekta Napólí og ekki slæmur þannig að ég mæli með því að þið prófið þetta er semsagt:
Polpitte (kjötbollur) – hakk, egg og brauð sem er lagt í bleiti í vatn, salt pipar og hvítlaukur.
Kreistið vatnið úr brauðinu og miljið það niður í höndunum (ég mæli með því að nota eitthvað gott brauð –ekki samlokubrauð- helst heimabakað. Blandið uþb 300gr af hakki í ca 100gr af brauði og 2-3egg slatti af salti og pipar og 1-2 hvítlauksrif skorin smátt! Úr þessu eru svo gerðar bollur sem eru steiktar uppúr nóg af olíu þar til þær eru stökkar að utan
Með þessu er svo ótrúlega gott að borða eldaðar paprikur (við borðum mikið af þessu og ég er ekki að kvarta) maður byrjar á að skella paprikunum beint á gaseldavél og láta þæt eldast og verða brunnar að utan, það tók mig smá tíma að komast að því að besta leiðin til að gera þetta ef maður er ekki með gaseldavél er að grilla þær, ég held allavega að það sé best er samt ekki viss. En eg grillið er vantvið látið eða komið út í horn fyrir veturinn er mögulega hægt að helda þeim bara inn í ofn. Aðalatriðið er að það þarf svo að taka skinnið utanaf þeim. Þegar það er búin er þeim svo hennt á pönnu með nóg af olíu og þær steiktar við láganhita í smástund. Ef maður hinsvegar nennir ekki að standa í ölluveseninu með að taka utanaf þeim er mögulega hægt að hendaþeim bara á pönnu og sjóða þær aðeins og steikja eftir á. Ef þið prófið þetta verðiði endilega að láta mig vita hvernig gegg og hvernig smakkaðist.
Og til að fullkomna þetta er að sjálfsögðu borðað með þessu gott brauð og ég mæli með hvítvíni með líka en það virðist fara vel með öllum ítölskum mat. Hmmm afhverju ætli ég viti það??
Allavega þá er þetta orðið gott í bili, mögulega ekemur eitthvað annað fljótlega, fer allveg eftir því hvernig næsta rómarferð mín verður.
Ef þið lesið þetta blogg og viljið fá fleiri uppskriftir eða eitthvað sérstakt endilega skrifið comment og þó þið hafið engar athugunarsemdir (hvernig sem það er skrifað) endilega látið vita að þið hafið komið og látið mig vita hvað ykkur finnst. Allt vel þegið.
Auguri
PS. Er einhver sem er búin að prófa að gera ítalska pizzu? Ég mæli líka með að setja zukkini og gulrætur á pizzapotn það er merkilega gott.... Linda tilvalið fyrir þig:D
Tuesday, September 30, 2008
vaticanid ofl
góðan dagin....
þar sem ég sit hér og skifa er klukkan ekki nema 5 hjá ykkur, það getur verið að þið veltið fyrir ykkur afhverju ég er ekki í panickasti að reyna að koma edo í skólan á réttum tíma en ástæðan er sú að hann er ennþá veikur, sem þýðir að ég mun líklega ekki gera neitt vert þess að minnast á í dag.
Í gær var samt hingað til besti og lengsti dagurinn minn í róm. Þar sem ég vissi að á síðasta sunnudegi í hverjum mánuði er frítt í vatikanið ákvað ég að fara þangar. Þar sá ég hinsvegar ekkert nema fólk og við erum að tala um massívar raðir sem ég var ekki allveg tilbúin að tækla ein. Ég fékk svo að vita seinna að vatikanið er yfirleitt ekki opið á sunnudögum, þannig að þarna voru allir að nota tækifærin.
Ég ákvað að labba þá bara um, í ljósi þess að ég hafi aldrei verið í þessum hluta borgarinnar, ég labbaði fram hjá Castel sant Angelo sem er líka þjóðarsafn(held ég) og viti menn það var frít þar líka! Castel s. Angelo er hrinlaga virki sem hefur mikið af svölum og pöllum og meðal annars einn mánast ofaná byggingunni sem gefur rosalega gott útsýni yfir borgina. Þannig að þar var margt að sjá, sýningu tileinkaða Hadrian sem var einn af keisurum (held ég allveg örugglega frekar en konungur) rómar. Umhverfið frá hringlaga pöllum á 3 hæðum og að sjálfsögðu allar veggmyndirnar og sýningar í safninu. Byggingin sjálf sem sem sagt hringur en herbergin eru samt bara á það sem myndi vera u.þ.b. þriðja og fjórða hæð og til að komast þangað þarf að ganga upp ramp sem tekur upp stóran hluta af byggingunni, og er sá partur gamall, en einhver páfi lét byggja við þetta fjóra varðturna í kringum á 15. eða 16. öld þannig að innst er elst og svo sér maður nútímalegri viðbætur. Þó ég verði að segja að elsti hlutinn leit ekkrt voðalega vel út að utan.
Þegar ég var búin að villast um þar inni í nokkurn tíma ákvað ég að fara að labba og kanski fá mér að borða, þar sem ég í mínu mesta sakleysi hélt að klukkan væri eitthvað í kringum tvö, en mér til mikillar furðu var húna bara tólf þannig að ég hélt bara áfram að labba og endaði á piazza novona þar sem var allveg fullt af fólki að selja málverk og myndir. Á torginu voru einnig þrír gosbrunnar og ég held að það beri eimitt líka nafnið torg hinna þriggja brunna en það gæti verið vitleysa í mér. Eftir þetta fékk ég mér svo að borða og velti fyrir mér hvað ég gæti gert næst og komst að þeirri niðurstöðu að best væri bara að labba í átt að þeim hluta borgarinnar sem ég þekki nokkuð vel núna en komst fljótt að því að það var bara handan við næsta horn.
Orðin pínu þreytt á því hvað tíminn líður hægt ákvað ég að labba bara via dei Fori Imperiale og kannski kíkja niður í rústirnar og viti menn það var líka frítt að fara þangað. Ýkt ánægð með það rölti ég niður í rústirnar og labbaði þar um. Þar sem ég heyrði orð og orð frá mismunandi túrgædum komst ég fljótt að því að þeir væru þarna af einhverri ástæðu. Sem óþrjótandi brunnar að visku og upplýsingum... þannig að ég ákvað að labba á sömustaði og á sama hraða og túrinn og alveg óvart heyra hvað maðurinn var að blaðra með öðrum orðum þá ákvað ég að túr crasha og fékk smá upplýsingar um Palastin sem er ein af sjö hæðum rómar en einnig sú sem róm var stofnuð á, þessi túr var samt alveg að klárast þannig að mér tókst ekki að nýta mér lúmsku mína mjög lengi. Ég labbaði svo bara niður í dalin með það í huga að fara svo – svona til að nýta dagin jafnvel ennbetur í hringleikahúsið en ég lenti á endanum á öðrum túr sem kom svo í ljós að var frír og sá síðasti þann dagin að fara að byrja þannig að ég ákvað að hanga aðeins lengur. Þetta var svo hinn skemtilegasti túr, sem fjallaði að mestu leiti um sesar og guðafæingu (er það orð) leiðtoga rómar. Það er nefninlega þannig að þegar þeir dóu þá var bara byggt musteri og svo sagt viðurkennið hinn nýja guð. Ég fékk líka að vita hvað SPQR þýðir en ég man ekki nákvæmlega hvað það stendur fyrir en það þýðir semsagt fyrir íbúa rómar (eða eitthvað svoleiðis sett upp í miklu fínni orð) og nú í dag má einmitt sjá þetta á flestum holræsislokum og ruslakörfum.
Eftir þetta var sami túrgædinn með gangandi túr um róm og ég ákvað að leyfa mér að fara með þrátt fyrir að klukkan væri orðin næstum 7 og ekki sá ég eftir því. Því að þrátt fyrir að ég hafði áður komið á flesta staðina sem við skoðuðum þá er einhvervegin allt öðruvísi þegar maður veit hvað maður er að sjá, svo við tölum ekki um að ég sem var alveg að komast á síðasta snúning á einmanaleika fékk að umgangast annað enskumælandi fólk – ég verð klárlega að reyna að fara að eignast einhverja vini og hver sá sem sagði að það væri ekkert mál ætti að skammast sín! Við byrjuðum hjá minnisvarða Vittorio Emanuele II sem var fyrsti konunungur sameinaðar ítalíu og minnisvarðin er til að sýna hvernig nútíma róm varð til. Svo fórum við að Pantheon sem þýðir hof allra guða svona eins og einn staður til að klára alla. Húsið er hringlaga og með stærsta hvolfþak úr steinsteypu og er ótrúlega vel hannað og hefur staðið í gegnum jarðskjálfta og aðrar náttúru hamfarir. Við fórum svo að Trevi brunninum og ég fékk að læra söguna um hann og afhverju fólk kastaði pening í bunnin, sem varð seinna aðþví að ferðamenn henda sem mest þeir mega. Í lokin enduðim við svo á spænskuþrepunum sem hefðu átt að heita frönsku þrepin í ljósi þess að það voru frakkar sem byggðu þau til að liggja upp að nýja kirkjunni sinni en eitthvað fór hræðilega úrskeyðis, eða þá að frakkarnir voru ekkert svo vinsælir og þau eru núna þekkt sem spænsku þrepin eða the spanis steps sem stuðlar nottlega voða fallega.
Þegar túrinn var búinn var klukkan orðin rúmlega nýju þannig að ég ákvað að drífa mig í að ná metró og vona að ég þyrfti ekki að bíða lengi eftir rútunni... ég þurfti svo að bíða í 50 mín þar sem hún gengur bara á klukkutíma fresti á kvöldin þannig að ég var ekki komin heim fyrr en 23:30 eða rúmlega það og dauðþreitt fór ég beint í rúmmið. Ég vaknaði svo í morgun og fór niður og sá þá að það átti eftir að gera uppvaskið og ganga frá matnum, þetta er algjörlega það sem mér finnst mest pirrandi við það að vera hér, ég fæ aldrei alveg frí, það er alltaf uppvaskið. En í ljósi þess að ég var vöknuð og edo ekki á leiðinni í skólan dreif ég mig bara í því og kom svo að skrifa þetta endalaust langa blogg
Saturday, September 27, 2008
rigning
Akkurat núna þegar ég skrifa þetta er í gangi alvöru stormur hér há mér, sá fyrsti sem gerist að degitil og ég er búin að fara út í alvöru rigningu. Flóðgáttir himinins eru bókstaflega brostnar , eða opnar eða hvað það nú er og að horfa út um gluggan er eins og að sjá himininn hrynja. Áðan áður en þetta byrjaði fyrir alvöru (þá var ég úti) gat ég séð bláan himinn ekki svo lang í burtu en núna sé ég ekkert nema rigningu sem innihélt meira að segja haglél áðan.... sem þýðir að ég á ennþá eftir að prófa hitabeltisskúr/hellidembu en það má bíða. Vatn flæðir um allt og er að safnast saman í nokkuð djúpa læki um allan garð. Ég get heyrt himinin klofna (PGGGRRR......) í hverri þrumu og í fjarska sjást blossar eldinganna... sem eru reyndar ekkert svo margir. Það er eins og veðrið sé að mæta skapi mínu sem í allan dag er búið að vera á þyngri hliðinni og bíða eftir úrtás þó að ekkert sjáist á yfirborðinu, allveg eins og með veðrið þó við skulum öll vona að skap mitt skeyti sér ekki á sama hátt... en það sem byrjar með nokkrum sakleysislegum regndropum getur verið fljótt að breytast í þrumustorm. Þetta er alveg kjörið veður til aðskríða undir sæng(ef ég nú bara hefði hana) og lesa bók við dauft skin frá lampa, kúra sig saman og hlusta á regnið lemja rúðurnar og hamast á þakskífunum. Ok ég held að mér hafi nú tekist að setja nánast öll orðatiltæki og klisjur sem mér dettur í hug inn í þetta blogg þannig að ég ætla að láta það gott heita. Það er greinilegt að þrumuguðinn þór hinn norræni er að þeysast um himinhvolfin í leit að hverju?? eða af hvaða ástæðum?? Hver er nóguvel aðsér í norrænni goðafræði og er tilbúinn að fræða mig þar sem ég virðist vera orðin eitthvað riðguð. Þó ætti að sjálfsögðu frekar að kenna Seif hinum gríska guði um þetta veður þar sem við erum nær heimaslóðum hans en einhvernvegin finnst mér að þór megi fá hann... en það gæti verið víkingablóðið í æðum mínum sem hefur áhrif á skoðun mína.
Megi þið fá gott íslenskt veður
Thursday, September 25, 2008
ciao
halló
því miður þá fórum við ekki í neina ferð um helgina afþví raffaele varð veikur... í staðin þá fórum við edo að spila tennis á laugardagin og ég verð að segja að ég var ekki svo slm miðað við manneskju sem hefur eigilega aldrei spilað tennis, við spiluðum alvöru leiki... eða þannig, við vorum semsagt að telja eins og er gert í alvöru tennisleikjum og ég held að undir lokin hafi ég nokkurnvegin skilið allt þetta 15-30 og 30-love og sett og game og match.... ekki að ég myndi treysta mér til að telja ein en ég var orðin alveg sæmileg í að fylgjast með því hvernig gengi... ég algjörlega rústaði fyrrri leiknum og var ekkert of shabby í þeim seinni, þið afsakið sletturnar en stundum er bara eins og það útskýrist sumt bara betur á öðrum tungumálum, eruð þið ekki sammála, málið er bara, allavega fyrir mig að ég nota almennt svo mikið af slettum og handahreyfingum að þegar ég er að skrifa þarf ég oft að eiða óhemju miklu magni af tíma í að upphugsa hvernig er betra að segja hlutina á betri íslensku....
um kvöldið bökuðum við svo alvöru ítalska pizzu og ef þið viljið prófa þá er það mjög einfalt; gerið bara deig sem má svo krydda með hverju sem er – já degið, svo er bara að taka niðursoðna tómata í mauki hella smá salti og ólífuolíu útí, rífa mozzarella og hella út í tómatana, og svo má líka setja í þetta gums allt mögulekt (við settum pylsur en mig langar rosa mikið að prófa að setja ólífur og annað gúmmelaði). Munið bara að fletja degið út mjög þunt, svo er bara að hella gumsinu yfir alltsaman og inn í ofn i ca 20 mín og voila una pizza italiana.
Ég fór svo til rómar í gær og þar sem ég er ekki allveg tilbúin í að fara ein á öll söfnin og inní hluti, eins og hringleikahúsið ákvað ég að fara í verslunar ferð en komst fljótt að því að sunnudagar eru kannski ekki allveg bestu dagarnir í það, því þrátt fyrir að það séu flestar búðir opnar sem eru á túristasvæðinu þá flest allt lokað fyrir utan það þannig að ég komst ekki í second hand/vintage búðina sem ég var búin að finna og láta mér hlakka alveg heilmikið til að fara í.... ég verð því að vona að ég fá einhverntíman virkan dag eða laugardag frí þannig að ég geti farið þangað og í H&M sem er reyndar alveg í útjarðri kjarna rómar en þar sem allar vegalengdir inni í borgini virðast vera svipað stuttar og á íslandi þá ætti það ekki að vera neitt vandamál, ég fæ þá bara annan góðan göngutúr. Ef ég held áfram að fara alla sunnudaga til rómar og labba eins mikið og ég hef gert þá ætti ég að vera í ansi sæmilegu gönguformi þegar ég kem heim.
25 September
þessi vika er buin að vera frekar crazy hjá mér ótrúlegt en satt... á þriðjudag og miðvikudag keyrði ég í skóan og fór svo með mömmunni inn í róm þar sem hún vinnur og var þar fram að hádegi og tók svo strætó heim sem var mjög fínt, ég fór að skoða Fori Imperiali þar sem eru gömlu rústirnar nema ég fór bakvið þær þar sem maður sér miklu betur og miklu meira.... það er órtúlegt að hugsa til þess að þetta séu meira en 2000 ára byggingar og að þarna hafi keisarar rómar búið og haft hringleikahúsið í bakgrunnin, ég get ekki beðið eftir að fara niður í rústirnar og sjá þær í nágvígi, það er svo mikið verið að grafa upp eða laga eða eitthvað að mjög sór hluti er lokaður en það er samt allveg nóg eftir, það er merkilegt að svona stórt svæði í miðri róm skuli vera alveg óbyggt en ef maður hugsar til þess hversu mikið af ferðamönnum þetta dregur að sér og býr til mörg tækifæri byggð á ferðaþjónustu þá er það alveg skiljanlegt, og ekki kvarta ég!
Ég er búin að fara í minn fyrsta rúnt ein í skólan að sækja edo, og ég fór bara einu sinni vitlausaleið... eða réttara sagt gleymdi ég bara einu sinni að beygja, en ég snéri bara við, þó að ég hefði ekki endilega þurft þess... allir bæirnir eru svo margtengdir að alltaf liggur vegur til rómar og 3 annara bæja ( ég er sem sagt á svæði rétt fyrir utan róm þar sem eru nokkuð margit litlir bæir, ef þið voruð ekki búin að fá þær uppl) þannig að það eru allavega 100 leiðir til að komast frá húsinu að skólanum, ekki að ég ætli mér að prófa því að þá væru mestar líkur á að ég myndi bara keyra í hringi en ég get samt sagt að í öll þau skipti sem ég hef farið með að keyra edo þá held ég að ég hafi aldrei farið sömu leiðina heim sem þýðir að ég kemst í skólan en ég er ekki svo viss um að ég komist heim aftur ef ég er ein.
Alalvega... það er ekkert stórvægilegt búið að koma fyrir mig, sjáum til hvað gerist um helgina
Ciao
Saturday, September 20, 2008
Alltaf lærir kona eitthvað nýtt
Buon giorno
Alltaf lærir kona eitthvað nýtt. Ég er komin með ástæðuna afhverju húsið er búið að vera frekar ekki hreint.... hún er nebblega sú að fjölskyldan er með skúringarkonu var að koma úr fríi í dag og mér var bent á að ég ætti enilega að fara eitthvað út á morgnana þar sem ég væri í fríi og ætti ég því endiega að labba til Genzano(næsti bær) og skoða mig um og eitthvað í þá áttina... ég sem var búin að plana að fara í sóbað og eitthvað í morgun breytti því snarlega plönum mínuð eftir að S-konan kom og ákvað að það væri betra að láta sig bara hverfa þannig að ég myndi ekki vera fyrir. Ég rölti því til Genzano og labbaði í gegnum allan miðbæin eða því sem næst og á leiðinni til bara komst ég að því að það er götumarkaður þarna í bænum, hvort það sé daglega eða bara stundum veit ég ekki en ég sá bás með efnum og þar voru frekar töff plasthúðuð dúkaefni sem eru tilvalin í regnkápu.... ekki slæmt sko, en allt þetta tók mig ekki nema tæpa 2 tíma þannig að ég er hrædd um að ég muni ekki endast í margar vikur að skoða þennan sama bæ en það má vonandi fara eitthvað annað þegar ég er farin að keyra.
þannig að þegar ég er byrjuð að keyra verða dagarnir einhvernvegin svona, keyra í skólan kl 7:30 eftir það er ég laus, en mun reyndar faraí ítölskuskóla sem er kenndur 3 morgna í viku í sama bæ og skólin hans er í, sækja í skólan kl 1330 og svo borða hádegismat og ganga frá eftir það og eftir það held ég að ég eigi að vera heima með edo, er samt ekki allveg viss, og svo geng ég frá eftir kvöldmatinn.... eftir því sem ég hef sett saman þá verður dagskráin mín svona, þó ég sé ekki allveg viss.
20 sept
hæhæ eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er þetta búið að vera ansi dauð vika hjá mér. Edo var veikur á mið og fim þannig að ég var bara heima þá daga og við tókun því rólega, horfðum á sjónvarpið og spiluðum fullt af pool. Á föstudaginn kom svo Raffaele (pabbinn) heim og hann átti að keyra edo í skólan og ég fór með en við fórum vitlausa leið þannig að það endaði á því að edo fékk bara annan frídag.
Allavega.... þá er næstum búið að hleypa einum ani-brálaðing útí umferð Rómar-svæðis.... já þið giskuðuð rétt ég er farin að keyra, ekki mikið samt bara aðeins að kinnast umferðinni og svona og hingað til hefur það gengið alveg príðilega og hef ég einnig fengið hrós fyrir góðan akstur, þrátt fyrir að ég sé að keyra risastóra, sjömanna fjölskyldurútu sem ég kann hreint ekkert of vel við en ég er búin að ákveða að dæma hana ekki of harkalega sérstaklega í ljósi þess að hún er sjálfskipt þannig að í rauninni er ekkert mál að keyra hana fyrir utan hvað hún er stór og að það eru ekki allar götur inní bæunum sérstaklega stórar.... hún er samt alveg í góðu lagi svo lengi sem ég þarf ekki að leggja, þó að líklega verði ég fljótlega farin að gera það “the italian way” en svoleiðis er það bara.... það er samt ekki víst að ég keyri hana, þar sem að þau eiga líka eitt lítið kríli sem mamman er yfirleitt á en getur verið að ég fái (cross your fingers everyone)
Á eftir erum við svo að fara í smá ferð að heimsækja bróður raffaeles sem býr ef ég skildi allt rétt á hinum helmingnum á ítalíu þe við hina ströndina og við komum aftir á morgun einhverntíman, sem þýðir að úrsér planaða ómenningarlega-verslunarferðin sem ég ætlaði í til rómar mun verða frestað um óákveðin tíma en mögulega samt bara til mánudagsins, annars er ég í svo ströngu sjálfs-skipulagi að hún verður að bíða í alavega 2 vikur eða vera brotin upp og henni dreift með vatikaninu og hringleikahúsinu.
Ég ætla að tileinka þessum litla bita til Odds sem átti afmæli í gær... og má núna opinberlega byrja að læra að keyra bíl, þannig að allir heima ættu að fara extra gætilega í umferðinni... gangi þér vel ást. Það var eitthvað meira sem ég ætlaði að segja en ég man bara ekki hvað það var, þannig að það getur ekki hafa verið mjög merkilegt.
Eigið góðan dag
Knús&koss
Monday, September 15, 2008
la roma
hæhæ
veðrið hefur ekki verið neitt svakalega gott undanfarið hér hjá mér, fengum ma þrumur og eldingar eina nóttina og dagana á eftir var alltaf eitthvað að rigna.
Ég fór í mína fyrstu ferð til rómar í gær og fékk bara fínt veður... ég var bara á röltinu og skoðaði ekki mikið en sá samt spænsku þrepin sem liggja fyrir neðan Trainta del monti, minnisvarða fyrir Vittori Emanuelé sem ég held að hafi verið konungur eða eitthvað álíka, það er allavega risastórt og ótrúlega flott hús, það eru fullt af þrepum upp að því og þar ofaná eru svo súlur og læti, þaðað labbaði ég svo niður via dai fori imeriali, þars sem eru rústir frá róm til forna og við endan á þeirri götu er svo hringleikahúsið, en ég fór ekki inn í þetta skiptið, geri samt án efa fljótlega. Það er svo líka hægt að fá að fara niðrí rústirnar sumsstaðar og labba þar um á mjög stóru svæði. Eftir að hafa drukkið í mig útsýnið sem innihélt mest megnist aðra túrista í sömu erendagjörðum og ég rölti ég til baka og fót að fontana di trevi en þar var allt stappað af fólki.
Á meðan ég gekk ein um róm áttaði ég mig á því hversu mikið það breytir að vera með einhverjum þegar maður röltir svona um... það er nefninlega ómugulegt að vera alvöru túristi þegar maður er einn.... það er frekr kjánalegt að vera einn á labbi og vera alltaf að koma með hinar ýmsu upphrópanir og bendingar – vá sjáðu þetta- og -omg þetta er geðveikt!- maður myndi algjörlega líta pínu geðveikur út að tala við sjálfan sig.... ekki að fólk megi ekki hegða sér eins og það vill.
Ég verð því að segja að fyrsti dagur minn í róm var óskaplega einmanalegur og ekki hjálpaði það til að hafa ekkert getað komist á netið í nokkra daga.... þar af leiðandi fór hluti dagsins hjá mér í að leita að netkaffi sem öll virtust vera í felum.... dúmmdúmmdúmm dúmmmm. Ætli það gerist samt ekki allt svo af einhverri ástæðu, að allar ákvarðanir leiði okkur inná fyrirfram ákveðna braut háða grimmum og kvikindislegum tilviljunnum sem er okkar að reyna að líta á með björtum augum, eftir að hafa tekið metro niðrá anagnina þar sem rútan stoppar og bíða svo á vitlausum stað í 30mín endaði ég á að bíða með hóp á texasbúum sem eru í skóla útibúi frá háskólanum í dallas og ég verð að segja að þar sem ég er ekki búin að eignast neina vini hér og ekki fá mörg tækifæri (ítalir annaðhvort tala ekki ensku sem eru flestir eða tala hana mjög ill) þá var ég alveg á mörkunum að koma bara strax heim. Allavega þá komst ég í ágætisskap við það eitt að fá að tala non-stop um ekki neitt við einhvern á mínum aldri og til að kóróna það þá var netið komið í lag þegar ég kom heim, þannig að það er mögulegt að þau frákvarfseinkenni sem ég var næstum komin í gegnum frá netfíkn gæti farið í hraðferð í ávötnun.... allavega...
Í dag er búið að vera ágætis veður og þar sem dagarnir mínir eru frekar rólegir.... eigilega þá er eina starf mitt að vaska upp (þar sem ég er ekki byrjuð að keyra) þá fór ég bara í sólbað úti á svölum og tók því rólega.
Allar hlýjar hugsanir, athugunarsemdir og tölvuskeyti eru vel þegin
Sólskins kveðjur frá róm - Arrivederci
Sunday, September 14, 2008
fyrsu kynni
9. sept
Ciao öllsömul þetta verður semsagt ferðabloggið mitt eða eitthvað sem á að líta út eins og blogg allavegana, þið getið þakkað henni systur minnni og Lindu fyrir það.
Edo ( Eduoardo strákurinn sem ég er að “passa” ) og Margherita voru að koma úr ferð núna í kvöld þannig að við fórum út að borða á ekta ítalskan fjölskyldu veitingastað í litlu þorpi (eða ég held að þetta sé þorp) sem stendur rétt hjá villu sem var í eigu einhverrar ríkrar fjölskyldu áður en hún fór á hausinn... allavega þá er hún núna hluti af og vatikaninu, og er sumarbústaðurinn páfans.
10 sept
OK herbergið mitt er sæmilegt frekar lítill fataskápurinn í því og það er voða tómlegt en það er ekkert sem ég er ekki orðin vön en rúmmið er ótrulega hart, húsið er flott en frekar skítugt eða það finnst mér, gæti verið afþví þau voru bara að koma heim. Húsið er á 4 hæðum, þar er m.a. leikja herbergi með pool-borði, og svo er stofa með píanói og 2 gíturum, ég hef mitt eigið baðherbergi og í kjallaranum er herbergi með saunu, hlaupatæki og heitum potti.
Það er rosa gott veður glampandi sólskin alveg og það var líka mjög gott í gær þrátt fyrir að mamma hafi verið að hræða mig.
Fyrsti dagurinn er búin að vera alltof rólegur.... ég er aðalega búin að hanga og gera ekki neitt og það er að gera mig geðveika! Við fórum samt áðan og heimsóttum nágrannana sem eru með hænur og rækta fullt af grænmeti og ávöxtum þar á meðar fíkjur sem eru ekki mjög bragðmiklar eins og þurkaðar en samt mjög góðar og við fengum nokkrar með heim
Ég hlakka mest til að geta farið til rómar og í bæinn og skoðað mig um, um leið og ég er búin að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig og allt er. Á morgun byrjar Edo í skólanum þannig að ég hef allavega eitthvað aðeins meira ákveðið að gera heldur enn í dag.
Það er ekki þráðlaust net í húsinu en ég má nota netið í tölvunni hjá Edo eins mikið og ég vil, en þar sem ég er að skrifa þetta á tölvuna mína veit ég ekki hversu oft ég mun setja þetta á netið þannig að þið verðið bara að sætta ykkur við fréttir á nokkura daga fresti. Ætla að reyna að koma þessum bita á netið á morgun, hlakka til að heyra í öllum!
ok svona byrjar tad aetladi ad vera longu buin ad tessu en netid her er buid ad vera i rusli
Þangad til næst
caio