10 mars
það er til guð!
Það er semsagt hætt að rigna hérna hjá mér.... það hætti reyndar rétt fyrir helgina og núna skín sól í heiði hvern dag og það er alltaf að hitna, þó að ég haldi reyndar að það verði ekkert orðið neitt of heitt hérna áður en ég fer – því er nú verr og miður. Við vorum bara rólegar um helgina ég og joseé (nýja stelpan) fórum til frascati á laugardagin hittum söru og fengum okkur að borða og drekka á alveg rosalega sætum og kósí stað og síðan löbbuðum við um og spjölluðum. Á sunnudeginum plönuðum við svo að fara með margheritu og edo á golfvöllin eftir hádegi þannig að við fórum ekki til rómar en fórum bara út að slappa af og sleikja sólina. Því miður var hádegismaturinn svo seinn að eftir hann höfðum við bara tíma til að kíkja aðeins út á völl og sjá sólina hverfa bak við einu skýin á himninum uppúr kl 17.00 og setjast stuttu eftir það.
Í dag ákváðum við að vera alveg súper duglegar og fara að hlaupa í frascati á meðan edo var í skólanum þó að það hafi reyndar endað á stuttu hlaupi og svo löngum labbitúr og sólbað eftir á og ég er ekki frá því að ég hafi brennt andlitið á mér.... ekkert alvarlegt en alveg smá, en það mun vonandi bara breytast í brunnku á næstu dögum.
Boy oh boy er ég heppin að vera enn á lífi.... hmmm.... kannski hefur heppni ekkert að gera með það. Í gær (fimmtudag) þurftum við að skutla margheritu að taka lestina rétt fyrir um kl 11 en afþví við vorum í seinni kannrtinum þá bað hún mig um að skutla sér allaleið inní róm. Ég er því opinberlega búin að keyra í róm þó ekki í miðbænum og með mínum frábæru nýju ítölsku aksturshæfileikum (sem munu ábyggielga verða valdur af því að ég muni missa ökuskirteinuð viku eftir að ég kem heim- nei ok kannski ekki ef ég verð alveg voða dugleg að passa mig að keyra á löglegum hraða) að lenda ekki í neinum bílslysum og taka tvær U-beygjur eina sem var mögulega ólögleg við erum enn ekki alveg vissar og eina al-löglega. Við vorum samt sem áður alveg vel tímanlega á leiðinni að sækja edo í skólan þannig að við ákváðum að stoppá á kaffihúsi og fá okkur smá nasl og ís og eftir það að kíkja í súpermarkað til að kaupa afmælisdrykk handa Josee en hún á einmitt afmæli í dag. Þetta tók allt saman aðeins meiri tíma en var reiknað með og ofaná það þá vorum við í Ciampino (ég hafði aldrei komið þangað áður) þannig að vissum ekki hversu lengi við yrðum að keyra til frascati þannig að þegar við komum að skólanum akkurat á slaginu voru engin stæði laus. Í dag vslöppuðum við svo af í genzano eftir að við skutluðum edo og löbbuðum í bænum og fengum okkur kaffi og keyptum jarðaber (kostuðu 6 E/kg ó hvað ég væri hamingjusöm ef það væri þannig á íslandi) og fórum svo að sækja edo með afmælishatta og læti sem ég held að hafi ekki verið vel litið á í skólanum hans, ég er farin að halda að ítalirnir hafi ekkert of gott skopskin. Í kvöld erum við svo líklega að fara eitthvað út í tilefni af afmælinu og svo róm um helgina.
En ég er hætt í bili – ætla að skella mér í föt og útúr rúminum og henda þessu á netið. Ciao ciao – ætla bara að bæta því við að hér er stanslaus sól og hiti á við íslenskasumarið en ítalarnir eru enn í vetrarúlpunum á meðan við röltum um á stuttermabolunum.
Friday, March 13, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment