Friday, October 31, 2008

skoli

28 okt

ok ég held að þetta verði síðasta bloggið mitt í oktober, sem er allveg pínu scary. Tíminn virðist alltaf vera að flýta sér. Ef að þið hafið ekki gefið upp allavon um nýtt blogg þá viti þið kanski að það komu heil 4 ný blogg inná í gær. Jamm tölvan er semsagt komin í gang aftur hérna heima jeiiiijj. Í dag er allveg ótrúlega leiðinlegt veður, rigning kallt og hráslagalegt sem er ekki mjög töff afþví að í dag fer edo í fótbolta.... þó að hann muni mæta pínu seint afþví hann er að fara í hitting eftir skóla.

Í gær var hinsvegar ágætis veður og einnig fyrsti dagurinn minn í skólanum. Persónulega verð ég að segja að ég hef mínar efasemndir um þetta að læra ítölsku á ítölsku dæmi en kannski þegar ég verð búin að læra eitthvað fer ég að skilja orð og orð af því sem kennararnir eru að reyna að segja. Fyrsti dagurinn fór sem sagt ekki svo vel. Ég skildi ekki neitt og aðeins minna en það en tókst samt nokkurnvegin að læra að segja stafrófið – þetta er allt að fara í rétta átt. Svo áttum við að stafa nöfnin okkar og mitt nafn fór satt að segja ekkert of vel, enda ekki svo auðvelt að stafa nafnið mitt, eða lesa það og sérstaklega ekki þegar kennarinn sem er að skrifa það niður á í erfiðleikum með að skilja það sem þú ert að segja en allt þetta esse enne (sem endaði reyndar sem elle) a e efffe erre í di ú erre og þá vorum við rétt komin í gegnum fyrra nafn mitt með erfiðleikum og tímin næstum búin eftir að ég þurfti að segja flesta stafina oftar en einu sinni og ég endaði sem slaefridur af því ég sá ekki ell-ið fyrr en tímin var búin (sem var um leið og mér tókst að stafa johannsdottir) og ég ákvað að það væri ekki þess virði að reyna að leiðrétta þennan misskilning. Allavega... þá gekk þetta ekki svo illa og ég hef bara ákveðið að fyrst ég skil ekki neitt þá get ég bara opinberað minn innri tossa og látið endurtaka allt endalaust oft. Reyndar þá verður hópnum skipt í tvö stig á miðvikudögum núll og eitt stig og ég er klárlega að fara í núll og vonandi mun mér takast að skilja eitthvað þar á morgun.

Ég get því miður ekki heillað ykkur neitt með ítölskukunnáttu minn (þar sem hún er ekki til staðar) en allavega þá er mánuðurinn næstum búinn og jóla brjálæðið að fara í gang.... er búið að hengja upp einhverjar skreytingar?? Arrivederci

Ok ég verð bara að bæta aðeins við þetta.... edo fór semsagt í afmæli áðan og ég að keyra og kemur þá ekki þessi svaðalega rigning allveg eins og helt sé úr fötu. Ég skemmti mér allveg konunglega en ég er búin að komast að því að rigning gerir mig létt geggaða og ég er ekki endilega viss um að það sé á góðan hátt. Þar sem ég var keyrandi í kvöld þá leið mér soldið eins og ég væri á íslandi... get samt ekki allveg fundið út hvaða árstíð þar sem það er myrkur hér og frekar kalt en samt ekki þannig að þetta passar eigilega hvorki fyrir sumar né vetur en ég ætla samt að halla mér að vetrinum sérstaklega í ljósi þess að ég er komin í mitt árlega alltof snemma jólaskap sem verður að öllum líkindum búið að láta sig hverfa til geðheilbrigðaðra mannesja í byrjun desember.... =O) :*

Monday, October 27, 2008

og enn meira af rom

26 okt

og spurningunni er hér með svarað sem sé nei. Tölvan er ennþá dáin og ég ekki búin að finna heitan reit neinstaðar í þessu landi, ekki ennþá allavega. Ég er búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að skipta þessu sem ég er búin að skrifa niður í 4 blogg eða gera þetta að einu maraþonbloggi.... ég held samt persónulega að það sé betra að skrifa mörg lítil þar sem það er óttalega erfitt og leiðinlegt að lesa. Hmmm margt er búið að gerast, eða að fara að gerast. Á morgun er fyrsti dagurinn minn í skólanum spennandi og ég er búin að redda bókini eða ég held það á samt eftir að tékka, eftir að hafa labbað í 3 la feltrinelli búðir í róm og þar með labbað borgina nánast þvera og endilanga.

Í dag fór ég semsagt til róm og var lögð af stað allveg óvenjulega snemma og komin til rómar um 10 leitið. Planið var að fara í hringleikahúsið en það var svo mikil röð að ég ákvað að fresta því um stund og fara frekar að leita að bókinni minni. Þegar ég var svo búin að finna hana uppúr hádegi fór ég aftur niður á fori imperiali og rölti að hringleikahúsinu. Þar var fólk að veiða fólk í túra og ég ákvað að það væri ágætt að prófa annan túrgæd og fór í einn túr um hringleikahúsið. Ég verð samt að segja að jason sá sem ég fór með í vaikanið og labbitúrinn var miklu skemmtilegri.... eða á annan hátt, hann er samt eigilega meira betri en skemmtilegrt. Þrátt fyrir það þá lærði ég eitthvað nýtt í dag t.d. þetta: í róm til forna voru komur það lægsta og minna virði en þrælar og þess vegna þurftu þær að standa efst í hringleikahúsinu en fengu ekki að sitja eins og karlarnir, þó að sjálfsögðu voru eiginkonur mikilvægustu karlanna sem fengu að sitja þ.e. eiginkonur keisarana og þingmanna. Það voru samt 6 aðrar stúlkur sem fengu sæti og það voru hofgyðjur gyðjunnar Vesta... þessu setning hljómar eitthvað skrítið. Vesta “hreinu” meyjarnar voru 6 af fallegustu stúlkum rómarveldis og þjónuðu í 30 ár. Þær voru teknar inn á bilinu 6-10 ára og fengu 10 ára þjálfun í að gæta hin eilífa loga, gættu hans svo í 10 ár og eyddu svo síðustu 10 árunum í að þjálfa arftaka sinn. Þegar sá tími var búinnn máttu þær fara og gifta sig og gera það sem þær vildu eða vera áfram í musterinu. Ef þær hinsvegar brutu loforð sitt um að halda meydómnum voru þær grafnar lifandi. Lífið var þó ekki alslæmt þar sem þær voru einu konurnar í róm sem voru eitthvað metnar og máttu þær eiga hesta og jarðir og ef þær gengu þvert á veg dæmds manns var hann náðaður. Í hringleika húsinu þegar ekki allir voru sammála um það hvort skilmingaþrælarnir ættu að lifa eða deyja þá voru það þær sem ákváðu örlög þeirra. Eftir stuttan túr um hringleikahúsið fórum við svo að skoða palatine hæðina þar sem róm var stofnuð og ég fékk að vita smá svona um höll sem einhver af keisurunum leit byggja og var víst mikilfengleg öll klædd marmara að utan sem innan en hann er allur farin núna að sjálfsögðu, notaður í að skreyta hinar ýmsu kirkjur í róm. Eftir því sem ég heyri meira af þessum sögum verður mér eigilega verr og verr við kristnina, eða kaþólskukirkjuna eða hverja þá sem ákváðu að það væri betra að gera gólfflísar úr efninu en að skreyta veggi, þó að það sé reyndar bara því að þakka að sumar byggingar og hlutir voru gerðir kristnir sem þeir eru enn á lífi í dag þannig að ég bíst við að þeir séu ekki alslæmir.

Þá er ég samt hætt í dag alveg dauð uppgefir í fótunum eftir allt labbið sme var nánast non-stop og farin að sofa þannig að ég verði nokkurnvegin hress og kát á morgun. Ég ætla að gera mitt besta til að koma þessu á netið sem fyrst. Lifið heil og sæl þangað til næst (sem gæti verið mjög fljótlega (vonandi ekki of fljótt samt)) smaksmask.

laeti og tolvu vesen med meiru

22 okt

hahahh já það er bara svona!

Ég lenti nefnilega í því skemmtila atviki.... eða ég ætti eigilega frekar að segja við, að tölvan hans edo fór í hass.... þar af leiðandi er ég núna að skrifa þriðja bloggið mitt sem er ekki ennþá komið a netið og satt að segja veit ég ekki allveg hvenær það fer þangað. Þeir eru nebblega svo gáfaðir hér í ítalíu að copia alla windows pakkana og endur selja þannig að það eru 20-40 manns með sama eitthvað.... ég er ekki mjög góð í tæknitali og ennþá verri þegar það er þýtt úr ítölsu yfir í ensku! Allavega það gerist stundum að windows drepur tölvuna þína og það þarf að endur forrrita hana og þar sem það er ekki þráðlaust internet hérna sit ég uppi með það að þurfa alltaf að nota yndislega usb-kubbinn sem linda gaf mér – takk æðislega mikið, hann er allveg að bjarga mér hérna – en því miður þá er ég ekki nógu gáfur til að hafa tekið hann með mér í dag en ég fór á netkaffi í frascati á meðan edo var í skólanum og svo var ég bara á röltinu og kíkti á kaffihús og slappaði af... mjög góð tilbreyting frá því sem ég er var að gera í síðustu viku sem var nákvæmnlega ekki neitt – allavega ekki neitt annað en að sofa borða keyra og horfa á sjónvarpið... eða það var svona það mesta sem ég gerði.

Í þessari viku er ég hinsvegar búin að vera geggað dugleg. Það byrjaði allt á mánudeginum þegar ég fór um kvöldið – eða um sexleitið til nemi að ná í vatn og labbaði svo aðeins um en ég fann eigilega bara blindgötur og brekkur og fullt af þeim þannig að ég enntist ekki lengi. En eftir það fór ég svo og fann nógu mikið hugrekki til að skrá mig í sportklúbb í genzano þar sem ég get farið í sund :D þetta er allt voaðlega flókið hérna en núna sit ég uppi með að verða að fara til læknis til að fá læknisvottorð um að ég sé heilbrigð eða eitthvað álíka sem ég get bara ekki skilið, þeir eru með mjög skrítið sistem hérna og greyið afgreiðslukonan eftir að hún fann einhvern sem talaði ensku og ég gat sagt henni að ég vildi fá 10 miða kort og skrá mig í klúbbin lét sú enskumælandi sig hverfa enda í miðju work out-i og hin sat uppi með mig ekki skiljandi neitt þannig að hún lét mig sleppa án þess að hafa þetta læknisvottorð... allavega þá fór ég í sund í fyrsta sinn í hvað 7 vikur eða svo og tókst með einhverjum ótrúlegum hætti að slefa uppí 2000m (mín ekkert smá stolt af því). Ég komst líka að því að allveg eins og við dæmum útleninga sem neita að þvo sér áður en þeir fara ofaní þá hefði vel mátt dæma mig þar sem ég var ekki eins og allir aðrir með baðslopp, ég var ekki með sturtu flippfloppana algjört möst greinilega og ekki einu sinni með sundhettu (hún var eftir á íslandi) þannig að ég var bara með mitt handklæði (fékk engin komment á það) en þar sem ég labbaði í allveg þver öfuga átt eftir að ég skipti um föt fékk ég skóhlífar til að annaðhvort verja gólfið eða tærnar á mér ég er ekki allveg viss en persónulega held ég að tærnar á mér séu vondu vanar og kippi sér ekki upp við smáatriði og gólfið hlítur að lifa. Ég komst svo útí laug en er ekki búin að staldra lengi við þegar voðalega vingjarnlegur þjálfari kemur og spyr mig hvað sundhettan mín sé og lánaði mér svo eitt stykki. Því miður þá fann ég hann ekki þegar ég fór uppúr þannig að ég er núna orðin sundhettuþjófur og þar sem ég var komin á hina hættulegu braut afbrota ákvað ég að halda mig bara á henni og skilja skóhlífarnar eftir og pína gófið á leið minni niður í klefa.

Ég og edo erum líka búin að vera rosa dugleg og fara út í fótbolta allaþess þrjá heilu daga sem eru búnir af vikunni og órtúlegt en satt þá er ég alltaf búin að vinna þrátt fyrir mínar bestu tilraunir til að verja ekki þá virðist ég gera það allveg ósjálfrátt... ég er semsagt búin að hreyfa mig allveg heilan helling í fína veðrinu sem er hérna núna svona 25° á dagin +/- eitthvað smá, á meðan það er snjór og læti heima á Fróni, þetta veit ég því að mamma þurfti að keyra odd greyið lappalausa í skólan í morgun og hætta spjallinu við mig.

Núna er stóra spurningin bara hvort þetta blogg fer á netið áður en ég skrifa það næsta....

napoli

20 okt

hæhæhæ jamm það er skemmtilegt að segja frá því að ég er búin að vera með þetta síðasta blogg bara hangandi hérna inná tölvunni minni í viku en ég er búin að vera einstaklega löt þannig að ég set núna tvö hérna inná í einum grænum þannig að ef þið eruð ekki nú þegar búin að lesa 14 okt bloggið þá er það hérna fyrir neðan. Þrátt fyrir margar tilraunir mínar til að fá ykkur elskulega fölskylda og vinir til að kommenta á þetta blogg mitt án nokkurs árangurs þá hef ég ákveðið að gefast upp á því allavega um sinn og lesa frekar allar þær áhugaverðu fréttir sem finna má á mbl.is og visi.

Það sem er búið að gerast síðan síðast.... ekki ýkja mikið. Á sunnudagin fór ég með fjölskyldunni til Napóli (Napels) þar sem við fórum í afmælishádegismat fyrir litlu frænku þeirra sem var að verða eins ár og er rosa sæt með risastór allveg dökk augu. Allavega þá tókum við edo og margherita lest frá róm til Napóli á sunnudags morgninum eða reyndar var klukkan orðin allveg næstum ellefu en planið var að taka lest kl 8.... það gekk ekki allveg. Þegar við komum tók Raffaele á móti okkur og við tókum einn rúnt um bæinn til að sýna mér aðeins um. Napóli er hafnarborg og á allveg ótrúlega flottum stað höfnin liggur í boga eða reyndar í nokkrum bogum held ég inní landið og svo eru brattar hlíðar allt í kring og í þeim eru svo hverfi... ítalir virðast vera allveg afskaplega hrifnir af því að byggja í hlíðum og fjöllum og gömlum eldfjallagígum. Við keyrðum svo út úr borginni og inní annan lítinn bæ þar sem við fórum að borða á sjávarréttastað mjög gaman fyrir mig. Þessi hádegismatur tók rétt tæplega fjórar klukkustundir eða eitthvað þar um bil.... þetta byrjaði á að komið var með litlar bollur, þar á eftir 2 tegundir af fiskisalati, steikt zukkini, brauð með tómötum og pruchetto með osti og klettasalti. Svo kom önnur legund ad fisk og eitthvað gums með tómötum sem ég mátti borða... þegar hér var komið við sögu var ég orðin södd eða svona því sem næst. Á eftir þessu var svo komið með skelfisk sem ég held að hafi verið bláskel er samt ekki allveg viss og litla heila eldaðafiska. Þetta var allt forréttir því svo kom sjávarréttapasta (ég fékk basta með tómötum sér eldað í ljósi þess að ég má ekki borða fisk) og á eftir því voru svo hrísgrjón með sjávarréttum sem ég fékk ekki en þarna var ég ekki ennþá búin að fá pastað mitt en ég var ekki að kvarta... svo þegar allir voru búnir að bíða eftir að ég kláraði að borða og láta sjatna aðeins í sér var komið með ananas u.þ.b. 1/8 á mann mjög góður og á eftir honum voru svo kökur og snafsar og ég þarf varla að minnast á að með matnum var að sjálfsögðu drukkið Napóliskt hvítvín (og vant og kók líka). Eftir þessa alltof stóru máltíð keyrðum við heim sem er ca 2 tíma akstur og eftir það ákvað ég að það væri best að taka því bara rólega og lagðist í video gláp sem endaði reyndar fyrir kl 10 með því að ég fór bara að sofa enda algjörlega uppgefin af öllu þessu áti og magin á overtime að reyna að vinna úr öllum þessum andskota. Ég ætti kannski líka að minnast á það að ég mæli ekki með því að fólk leiki þennan leik eftir... allavega ekki án þess að æfa sig fyrst því ég get sagt ykkur að ég svaf ekki svo vel síðustu nótt og magin minn er ekki ennþá komin í samt lag aftur. Ég þurfti að vakna kl 6 til að skutla mömmunni niðrá lestarstöð þar sem það var smá bílakrísa hér í morgun (litli bíllin fastur í róm síðan í gær morgun) en eftir það fór ég með edo í skólan og svo heim aftur þar sem ég svaf mjög hamingjusöm í u.þ.b. einn og hálfan tíma. Þrátt fyrir það er ég aftur orðin þreitt þó klukkan sé ekki margt þannig... góða nótt fyrir mig

vaticanid

14 okt

góða kvöldið gott fólk

það virðist vera að þrátt fyrir mínar bestu tilraunir til að skrifa blogg sem fjalla um mig eða allavega þetta eina þá eru menn ekki enn full ánægðir og vilja heyra frá mínum ósköp venjulegu dögum sem eru að öllum líkindum ansi svipaðir ykkar nema u.þ.b. 20°C heitari. Í dag þá byrjaði ég á að vekja edo og keyra hann svo í skólan kl 7:15 ég var svo komin heim í kringum hálf níu eða svo. Svo fór ég á internetið og komst að því að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar til að fá fólk til að skrifa komment þá hefur það ekki gengið neitt! Ég er mjög vonsvikin og vona að héðan í frá takið þið ykkur á en annars ætla ég ekki að minnast á þetta oftar. Svo kl 11:30 fór ég að sækja í skólan. Ég fór fyrr en vanalega þar sem ég þurfti að fara í skólan minn og fá uppl. en ég byrja semsagt á ítölskunámskeiði 27 okt eftir 2 vikur og er þar þrisvar í viku á mán. of fim. (2 tíma) og svo marga tíma á miðvikudögum. Svo komum við heim borðuðum hádegismat og fórum svo út í fótbolta og ég vann... ótrúlegt en satt! Síðan skuttlaði ég edo á fótboltaæfingu kl hálf fim og hékk svo bara niðrá velli og las á meðan og svo komum við heim um hálf átta og núna er ég bara að bíða eftir kvöldmatinum. Eins og ég sagði þá eru mínir dagar ekki sérstaklega áhugaverðir.

Það sem ég vildi hins vegar segja ykkur frá er síðasti laugardagur. Ég var sem sé ný komin heim eftir að hafa skutlað í skólan og ákvað að fara aðeins í tölvuna þegar mamman kom mér algjörlega á óvart með að vera heima og hún sagði að hún myndi sækja edo þannig að ég gæti farið til rómar þegar ég var búin að þrífa smá og ganga frá þvottinum. Allveg himinlifandi glöð yfir þessu ákvað ég að þetta væri dagurinn til að fara í vatikanið þannig að ég þrammaði niður á stoppustöð og eyddi þessum einum og hálfa tíma rúmlega sem tekur að komast til rómar í að hlusta á sögubók á ipod-inum mínum allt saman í boði lindu (takk fyrir það). Ég fór svo í túr með túrgædinum sem ég hitti fyrir nokkrum vikum. Ég veit eigilega ekki hvernig er best að lísa vatikaninu nema að það er mjög stórt og ef þið komið til rómar verður hver og einn að gera upp við sig hvort hann vilji fara að skoða það. Ég veit að þetta er nottlega svona staður sem allir verða að sjá og ég ætla ekki að segja að það hafi ekki verið mikilfenglegt en.... hmmm ég veit ekki allveg, kannski er það bara mín skoðun en það er eitthvað við svo margar sögur að kirkjunni sem láta mig eigilega ekki vilja vera kristin manneskja. Sistínska kapellan. Ég verð að segja að ég var ekkert yfir mig upprifin, ég meina þetta er að sjálfsögðu allveg ótrúlega merkilegt fyrirbrygði en ég er samt að komast að því að yfirleitt hef ég meiri áhuga á arkitekt og byggingunum yfir höfuð heldur en þeim skreytingum sem í þeim eru og það verður að segjast að kapellan er mjög ómerkileg að horfa á í þeim skilningi. Myndirnar eru allveg fallegar en það er mikið að fallegum myndum og skreytingum útum allt og í kirkjum alstaðar og fyrir minn smekk þá var sistinska kapellan ekkert frábær og mikið betri en allt annað. Ok ég er kannski að mála frekar dökka mynd hérna en... péturskirkja er eins og hver önnur kirkja í mínum augum nema óneitanlega stærri enda stærsta kirkja í heimi og hún er stór.
Kannski er ég bara svona neikvæð afþví að það var verið að laga á mörgum stöðum og mikið sem var lokað og hópurinn var aðeins of stór. Hvað sem það var þá er ég hætt í bili en vonandi mun ég vakna einn dagin og vilja segja ykkur betur frá þessari ferð.

Sunday, October 12, 2008

frascati og ymislegt annad

Tíminn flýgur og einhver lýgur... líklega eitthvað uppsafnað frá stjórnmálamönnum og banksjtórum/eigendum íslands. Mér hefur sem sé verið sagt að ísland sé núna opinberlega komið til andskotans og allir bankar í eigu ríkisins og einhver meiri háttar læti. Þetta þýðir það að líkurnar á að einhver komi að heimsækja mig eru dottnar niður í 0% og líkurnar á að ég taki norrænu heim hafa hækkað úr núll uppí eitthvað aðeins hærra, allavega ef flugfélögin ætla að brotlenda í stíl við gjaldþrot bankanna. Nema ég verði bara strand í evrópu sem er algjörlega raunhæfur möguleiki.

Mér hefur verið bent á mjög kurteisislega að sjálfsögðu að þrátt fyrir að það sé nú alveg óskaplega gaman að lesa um ferðir mínar til rómar þá segi ég ósköp lítið um það hvernig mér líður eða nokkuð frá mér yfir höfuð (þannig að ef þið viljið bara lesa ferðasögur endilega sleppid tvi ad lesa tennan kafla... tad kemur annar fljotlega

Með þetta að leiðarljósi get ég sagt hverjum þeim sem hefur áhuga að í augnablikinu er ég að deyja í löppunum enda búin að labba þvert yfir róm en þið fáið að heyra um þá ferð seinna. Ég er búin að koma mér vel fyrir og farin að líta á þetta land og þennan stað sem heimili mitt. Mér og fjölskyldunni kemur alveg sæmilega saman og ég hef ekki yfir neinu að kvarta með hana allavega ekki enn sem komin er og ég vona að það haldist þannig. Eigilega það eina slæma við dvöl mína hér er að ég er ennþá ekki búin að eignast neina vini og er ekki ennþá byrjuð í ítölskuskólanum þó að ég voni að það breytist í bæðum tilvikum eftir u.þ.b. 2 vikur. Kalhæðnislega þá er það einmitt sá tími sem ég eyði í róm sem er hvað mest einmanalegur og minnir mig á það hvað ég er eitthvað ein en það er einmitt sá tími sem þið heyrið mest frá. Á meðan alla hina dagan er ég bara sátt og kannski ekki neitt svaklega upptekin með mín venjulegu vakna of snemma og keyra í skólan drepa dagin og sækja í skólan, borða hádegismat og drepa svo tímann daglegudagskrá.

Það var einmitt núna á föstudagin sem ég hafði extra langan dag til að drepa þar sem edo var að prófa veggja klifur sem er valfag aukalega í skólanum hans – sem hann ætlar reyndar ekki að taka – sem ég ákvað að skoða Frascati sem er sem sagt bærinn sem skólin hans og tilvonandi skólinn minn eru í. Því miður fyrir mig þá voru þær 7 klukkustundir sem ég hafði alltof langur tími en ég var búin að labba miðbæinn þveran og endilangan áður en klukkan varð 10 þannig að ég skemmti mér við að þræða það sem mér fannst vera hver einasta litla gata sem hafði einhverjar búðir í eða var þarna á miðsvæðinu og fara inn í nánast allar búðir sem ég sá. Því miður fyrir mig þá hef ég fylgst nokkuð vel með gengi krónunnar sem veldur því að allt sem ég hef verið að sjá á undanförnum vikuð hefur verið alveg ógeðslega dýrt og allt verðskin mitt algjörlega komin í hass. Ég hef því ákveðið að búa til stöðugt gengi á krónuma sem meikar nokkurnvegin sens og það gleður mig að segja ykkur að krónan er núna í föstum 100kr evran eða allavega í mínum heimi þó svo að þrátt fyrir mínar bestu tilraunir er ég ekki allveg búin að fullkomna sjálfsblekkinguna. Rétt eftir eitt þegar ég var orðin úrkula vonar um að tíminn myndi nokkurntíman ná að verða 3:30, það var búið að loka búðunum fyrir siestuna þó að ég hafi ekki hugmnd um hvað hún er kölluð hér þá fékk ég símtal frá pabbanum sem sagði mér að ég þyrfti ekki að ná í edo úr skólanum og þar með ekki hanga lengur í frascati, sem þýddi reindar að ég hefði getað verið löngu farin en veðrið var til fyrir myndar þannig að ég ætla ekki að kvarta. Það sem var mest áhugavert sem gerðist þennan dag í mínum heimi var ég rambaði inn á búð sem var að selja borðdúka efni sem voru frekar mikið flott og þá sérstaklega eitt sem var hvítt með dökkrauðum kirsuberjum, þannig að ég er ekki frá því að sérgrein mín í framtíðinni verði að hanna og sauma regnjakka sem eru að mestu leiti ætlaðir sem tískuyfirlýsing frekar en nytjahlutir þó svo að sjálfsögðu þá munu þeir vera einstaklega góðir í rigningu þó ég eigi ennþá eftir að prufukeyra minn almennilega.

Hmmm... eitthvað svona aðeins öðruvísi en vanalega frá mér. Hafið það gott

Tuesday, October 7, 2008

4. sunnudagur ì ròm

6 okt

ég er búin að komast að því að þó róm flokkist kannski sem stórborg þá er hún alls ekkert stór.... ok það getur vel verið að hún nái yfir stórt landsvæði en bara ef maður tekur með öll úthverfi og svoleiðis dót, en miðborgin er pínu lítil. Ég er kannski aðeins að ýkja en hún er allaveg ekki mjög stór. Það var nefninlega þannig að á mínum fjórða sunnudegi í róm þá fór ég að skoða píramídann, jamm það er píramídi í róm sem var fluttur hingað af einu að keisurunum þó ég muni í augnablikinu ekki hverjum þeirra. Eftir að Egyptaland féll undir rómaveldi ákváðu rómverjarnir að ná sé í eitthvað af skemmtilegum munum þaðan enda komst það í tísku að skeyta hús og híbíli í egypskum stíl. Þeir tóku fullt af sólarsúlum... æjj þessum mjóu sem voru útgrafnar með táknum og í þeim átti sólarguðinn að vera. En fyrir einn af rómverskukeisurunum var það ekki allveg nóg, hann vildi fá sína hinstu gröf í píramída og lér því flytja eitt stykki (ekki mjög stórt) yfir til rómar.

Þar stendur hann enn í dag og ég held að það sé enn verið að vina við fornleyfauppgröft þar eins og á svo mörgum öðrum stöðum í borginni. Því miður fyrir mig var allt lokað þegar ég kom enda sunnudagur en það var samt sem áður gaman að fá að sjá alvöru píramída þó maður hafi ekki ennþá farið til Kairo. Þarna á þessu svæði var ekki eins mikið sjáanlegt af túsisma fannst mér og mikið af íbúðar húsum þannig að ég ákvað að villast bara aðeins um hverfin á leið minni aftur að Via del Corso. Það vildi þó ekki betur til en svo að ég var fljót að villast leið mína að fljótinu sem rennur í gegnum róm og heitir Tevere... þar sem ég vissi að ef ég gengi með því myndi það á endanum leiða mig á kunnuglegar slóðir og í leiðinni gefa mér tækifæri á að sjá Tempio di Vesta sem er lítið hringlaga hús umkringt súlum og er rétt hjá Circo Massimo. Þaðan lá leið mín að Marcelli leikhúsini sem er byggt eins og hringleikahúsið nema að það hefur verið lagað einhverntíman þannig að það eru tvær tegundir af bogum en er engu að síður mjög flott sjón. Allt þetta ferðalag sem virtist á korti að myndi taka mig ágæta stund tók ekki mikið meira að labba en er að taka mig núna að skrifa um það.... ok kannski aðeins lengur en engu að síður allt of stuttan tíma.

Ég gerði mitt besta til að villast um litlar hliðargötur en ákvað svo að fara að skoða Pantheon að innan, ég varð ekki fyrir vonbrigðum og þetta er án efa ein að áhugaverðustu kirkjum í róm og þá er mikið sagt. Inni í henni eru tvær grafhvelfingar ein fyrir Vittorio Emanuele II og ein fyrir Rafaele sem var listamaður og sá sem ákvað hvar ætti að grafa upp rústir gömlu rómar en hann dó þegar hann var bara rúmlega 30 en ef hann hefði fengið að lifa hefði mögulega verið miklu fleiri staðir sem hefðu bjargast, þetta var á 16. öld. Hann var svo mikil metin að þegar hann bað um að fá að vera grafinn í kirkjunni var það leyft án minnst hiks. Hann hvílir núna í marmarakistu sem var gefin einhverntíman eftir að hann dó og kistan var opnuð til að tékka hvort það væri ekki örugglega hans lík í henni og á henni stendur: hér hvílir Rafaele sem móðir náttúra óttaðist að myndi gera betur en hún meðan hann lifði og eftir að hann lést óttast að hún sjálf gæti hrunið.... man ekki nákvæmlega hvernig þetta var en einhvernvegin svona – þetta er mjög gróflega þýtt.

Það gerðist ekki mikið meira í þessari ferð minni til rómar, allavega ekkert sem ég man eftir eða er vert að minnast á þannig að ég kveð í bili

Saturday, October 4, 2008

matur?

4 okt

jamm og já gott fók það er komin nýr mánuður sem þýðir að ég er búin að vera hér í mánuð eða næstum því. Þessi vika er búin að vera ósköp róleg eða þannig... það er ekki mikið buið að gerast. Ég er búin að vera að keyra og lifa ósköp tilbreytingarlausu lífi, en ég er aldrei búin að villast á leiðinni í eða úr skólanum vúhúúú:D

í gær og í fyrradag fór ég samt með Margheritu í golf, ekki að ég hafi verið að spila en það er fín útivera að elta einhvern í golfi og maður labbar allveg helling, ég hef aldrei gert mér grein fyrir því hvað golfvellir eru stórir, mögulega afþví ég hafði aldrei komið á golfvöll og vissi eigilega ekkert um golf.... nema náturulega að maður væri að reyna að koma kúlunni í holuna í sem fæstum höggum. Ég get nú samt ekki sagt að ég sé farin að skilja golf eða neitt í kringum það nema að maður getur fengið fullt af refsingum fyrir að virða ekki reglurnar, jamm og það er allveg nóg af þeim. Við förum á golf völl í Castell Gandolfo sem ótrúlega fallegur og er í eldfjallagíg (hann er víst einn af 15 fallegusu golfvöllum í ítalíu). Ég held samt að Castell Gandolfo sé sá bær í Castelli Romano (þetta svæði í kringum róm er kallað það og er sem sagt samansafn af fullt af bæum) sé uppáhalds bærinn minn þó að ég hafi ekki komið þangað oft og aldrei labbað um. Fyrsta kvöldið mitt fórum við einmitt á veitingastað í CG en bærinn liggur í kringum vatn sem er allveg frekar stórt og liggur ofaní dal sem gæti verið annar eldfjallagígur en ég er ekki viss. En það er allgjörlega á “to do” listanum mínum að heimsækja CG og sem fyrst.

Nóg um það allavega. Ég er búin að vera frekar mikið á vappi þó ég geri ekki margt en er búin að læra að elda rétt sem er alveg ekta Napólí og ekki slæmur þannig að ég mæli með því að þið prófið þetta er semsagt:
Polpitte (kjötbollur) – hakk, egg og brauð sem er lagt í bleiti í vatn, salt pipar og hvítlaukur.
Kreistið vatnið úr brauðinu og miljið það niður í höndunum (ég mæli með því að nota eitthvað gott brauð –ekki samlokubrauð- helst heimabakað. Blandið uþb 300gr af hakki í ca 100gr af brauði og 2-3egg slatti af salti og pipar og 1-2 hvítlauksrif skorin smátt! Úr þessu eru svo gerðar bollur sem eru steiktar uppúr nóg af olíu þar til þær eru stökkar að utan
Með þessu er svo ótrúlega gott að borða eldaðar paprikur (við borðum mikið af þessu og ég er ekki að kvarta) maður byrjar á að skella paprikunum beint á gaseldavél og láta þæt eldast og verða brunnar að utan, það tók mig smá tíma að komast að því að besta leiðin til að gera þetta ef maður er ekki með gaseldavél er að grilla þær, ég held allavega að það sé best er samt ekki viss. En eg grillið er vantvið látið eða komið út í horn fyrir veturinn er mögulega hægt að helda þeim bara inn í ofn. Aðalatriðið er að það þarf svo að taka skinnið utanaf þeim. Þegar það er búin er þeim svo hennt á pönnu með nóg af olíu og þær steiktar við láganhita í smástund. Ef maður hinsvegar nennir ekki að standa í ölluveseninu með að taka utanaf þeim er mögulega hægt að hendaþeim bara á pönnu og sjóða þær aðeins og steikja eftir á. Ef þið prófið þetta verðiði endilega að láta mig vita hvernig gegg og hvernig smakkaðist.
Og til að fullkomna þetta er að sjálfsögðu borðað með þessu gott brauð og ég mæli með hvítvíni með líka en það virðist fara vel með öllum ítölskum mat. Hmmm afhverju ætli ég viti það??

Allavega þá er þetta orðið gott í bili, mögulega ekemur eitthvað annað fljótlega, fer allveg eftir því hvernig næsta rómarferð mín verður.
Ef þið lesið þetta blogg og viljið fá fleiri uppskriftir eða eitthvað sérstakt endilega skrifið comment og þó þið hafið engar athugunarsemdir (hvernig sem það er skrifað) endilega látið vita að þið hafið komið og látið mig vita hvað ykkur finnst. Allt vel þegið.

Auguri

PS. Er einhver sem er búin að prófa að gera ítalska pizzu? Ég mæli líka með að setja zukkini og gulrætur á pizzapotn það er merkilega gott.... Linda tilvalið fyrir þig:D