15 September
hæhæ
veðrið hefur ekki verið neitt svakalega gott undanfarið hér hjá mér, fengum ma þrumur og eldingar eina nóttina og dagana á eftir var alltaf eitthvað að rigna.
Ég fór í mína fyrstu ferð til rómar í gær og fékk bara fínt veður... ég var bara á röltinu og skoðaði ekki mikið en sá samt spænsku þrepin sem liggja fyrir neðan Trainta del monti, minnisvarða fyrir Vittori Emanuelé sem ég held að hafi verið konungur eða eitthvað álíka, það er allavega risastórt og ótrúlega flott hús, það eru fullt af þrepum upp að því og þar ofaná eru svo súlur og læti, þaðað labbaði ég svo niður via dai fori imeriali, þars sem eru rústir frá róm til forna og við endan á þeirri götu er svo hringleikahúsið, en ég fór ekki inn í þetta skiptið, geri samt án efa fljótlega. Það er svo líka hægt að fá að fara niðrí rústirnar sumsstaðar og labba þar um á mjög stóru svæði. Eftir að hafa drukkið í mig útsýnið sem innihélt mest megnist aðra túrista í sömu erendagjörðum og ég rölti ég til baka og fót að fontana di trevi en þar var allt stappað af fólki.
Á meðan ég gekk ein um róm áttaði ég mig á því hversu mikið það breytir að vera með einhverjum þegar maður röltir svona um... það er nefninlega ómugulegt að vera alvöru túristi þegar maður er einn.... það er frekr kjánalegt að vera einn á labbi og vera alltaf að koma með hinar ýmsu upphrópanir og bendingar – vá sjáðu þetta- og -omg þetta er geðveikt!- maður myndi algjörlega líta pínu geðveikur út að tala við sjálfan sig.... ekki að fólk megi ekki hegða sér eins og það vill.
Ég verð því að segja að fyrsti dagur minn í róm var óskaplega einmanalegur og ekki hjálpaði það til að hafa ekkert getað komist á netið í nokkra daga.... þar af leiðandi fór hluti dagsins hjá mér í að leita að netkaffi sem öll virtust vera í felum.... dúmmdúmmdúmm dúmmmm. Ætli það gerist samt ekki allt svo af einhverri ástæðu, að allar ákvarðanir leiði okkur inná fyrirfram ákveðna braut háða grimmum og kvikindislegum tilviljunnum sem er okkar að reyna að líta á með björtum augum, eftir að hafa tekið metro niðrá anagnina þar sem rútan stoppar og bíða svo á vitlausum stað í 30mín endaði ég á að bíða með hóp á texasbúum sem eru í skóla útibúi frá háskólanum í dallas og ég verð að segja að þar sem ég er ekki búin að eignast neina vini hér og ekki fá mörg tækifæri (ítalir annaðhvort tala ekki ensku sem eru flestir eða tala hana mjög ill) þá var ég alveg á mörkunum að koma bara strax heim. Allavega þá komst ég í ágætisskap við það eitt að fá að tala non-stop um ekki neitt við einhvern á mínum aldri og til að kóróna það þá var netið komið í lag þegar ég kom heim, þannig að það er mögulegt að þau frákvarfseinkenni sem ég var næstum komin í gegnum frá netfíkn gæti farið í hraðferð í ávötnun.... allavega...
Í dag er búið að vera ágætis veður og þar sem dagarnir mínir eru frekar rólegir.... eigilega þá er eina starf mitt að vaska upp (þar sem ég er ekki byrjuð að keyra) þá fór ég bara í sólbað úti á svölum og tók því rólega.
Allar hlýjar hugsanir, athugunarsemdir og tölvuskeyti eru vel þegin
Sólskins kveðjur frá róm - Arrivederci
Monday, September 15, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Gaman að sjá að þú ert að koma þér fyrir. Fyrstu dagarnir eru oft smá einmanalegir. Það er sko ekkert að því að tala við sjálfan sig, kannski betra að vera með síma við eyrað ef maður þarf að æpa upp fyrir sig hehe
ReplyDeleteHlakka til að lesa pistlana þína, þú ert góður penni eins og ég vissi. Bestu kveðjur frá gulu þrumunni :)
ja há ... ekkert heyrist í þér? farin ad sakna þess að fá fleiri fréttir. Við getum glatt þig með því að hér hefur verið riging og rok síðan þú fórst og kartöflurnar fara bráðum að fjóta upp í garðinum.. spurning hvenær þær verða svo hirtar? Láttu nú heyra í þér stelpa eða er allt netsamband í klúðri þarna suður frá?? ma
ReplyDelete