Saturday, September 27, 2008

rigning

halló öllsömul

Akkurat núna þegar ég skrifa þetta er í gangi alvöru stormur hér há mér, sá fyrsti sem gerist að degitil og ég er búin að fara út í alvöru rigningu. Flóðgáttir himinins eru bókstaflega brostnar , eða opnar eða hvað það nú er og að horfa út um gluggan er eins og að sjá himininn hrynja. Áðan áður en þetta byrjaði fyrir alvöru (þá var ég úti) gat ég séð bláan himinn ekki svo lang í burtu en núna sé ég ekkert nema rigningu sem innihélt meira að segja haglél áðan.... sem þýðir að ég á ennþá eftir að prófa hitabeltisskúr/hellidembu en það má bíða. Vatn flæðir um allt og er að safnast saman í nokkuð djúpa læki um allan garð. Ég get heyrt himinin klofna (PGGGRRR......) í hverri þrumu og í fjarska sjást blossar eldinganna... sem eru reyndar ekkert svo margir. Það er eins og veðrið sé að mæta skapi mínu sem í allan dag er búið að vera á þyngri hliðinni og bíða eftir úrtás þó að ekkert sjáist á yfirborðinu, allveg eins og með veðrið þó við skulum öll vona að skap mitt skeyti sér ekki á sama hátt... en það sem byrjar með nokkrum sakleysislegum regndropum getur verið fljótt að breytast í þrumustorm. Þetta er alveg kjörið veður til aðskríða undir sæng(ef ég nú bara hefði hana) og lesa bók við dauft skin frá lampa, kúra sig saman og hlusta á regnið lemja rúðurnar og hamast á þakskífunum. Ok ég held að mér hafi nú tekist að setja nánast öll orðatiltæki og klisjur sem mér dettur í hug inn í þetta blogg þannig að ég ætla að láta það gott heita. Það er greinilegt að þrumuguðinn þór hinn norræni er að þeysast um himinhvolfin í leit að hverju?? eða af hvaða ástæðum?? Hver er nóguvel aðsér í norrænni goðafræði og er tilbúinn að fræða mig þar sem ég virðist vera orðin eitthvað riðguð. Þó ætti að sjálfsögðu frekar að kenna Seif hinum gríska guði um þetta veður þar sem við erum nær heimaslóðum hans en einhvernvegin finnst mér að þór megi fá hann... en það gæti verið víkingablóðið í æðum mínum sem hefur áhrif á skoðun mína.

Megi þið fá gott íslenskt veður

1 comment:

  1. ekki stormur hér en blautur er hann. Svo í þokkabót er að kólna brrrrrrrrr

    ReplyDelete