Monday, December 15, 2008

soldið sein með þetta

6 des

jamm það er komin desember og ég er búin að vera hérna í u.þ.b. 3 mánuði ef tíminn er að fljúga frá fleirum og jólin komin í alveg skuggalega nána framtíð. Í gær þá borðuðum við edo tex-mex í hádeginu en það var ný reynsla fyrir hann ótrúlelgt (en samt kannski ekki svo) en satt. En hann uppgvötaði einmitt hvað salsa er alveg ótrúlega gómæt eftir að ég keypti mér pakka af flögum og sósu.

Það virðist sem ekkert skemmtilegt sé að gerast hjá mér núna þessa vikuna bara það að mér er að ganga allveg ótrúlega illa í skólanum og satt að segja langaði mig mest bara til að hætta á fimmtudagin. Ég á í alveg ótrúlegum vandræðum með að skapa setningar og koma þeim útúr mér sem er ekki mjög gott það sem einmitt það er mjög stór hluti af þessari kennslu og felstir aðrir í bekknum mínum eru góðir í því þannig að ég er orðin algjörlega mesti blebbinn – án nokkurs efa.

8 des

jamm í dag er þjóðar hátíðisdagur í ítalí þanni að það var engin skóli í dag heldur bara afslöppun og leti. Eða allavega mestan partin. Við erum reyndar að reyna að klára að skreyta jólatréð en það gengur eitthvað hægt. Allavegana. Í gær fór ég með edo og mömmunni til Fiuggi sem er bær u.þ.b. 45 mín frá genzano og í næsta fylki og allt. Þar var mamman að fara að spila golf og ég og edo vorum kylfuberar eða hvað það nú heitir og töltum upp og niður völlin í 4 klukkutíma eða svo. Það er alveg mjög góð hreyfing að fara með fólki að spila golf þó maður taki ekki þátt. Þau áttu sumarhús í Fiuggi þannig að þau voru vön að vera þar heilmikið og þetta virkaði mjög skemmtilegur bær. Við tókum smá rúnt um bæin og fórum m.a upp að styttu að maríu mey sem situr efst uppi á súlu og gnæfir yfir manni og svo getur maður labbað upp heilmikin brattan stiga og farið alveg upp að henni sem við edo gerðum einmitt.

13 des

jamm.... það er búið að vera pínu brjálað veður hérna undanfarna daga, eða réttara sagt þá er búin að vera alveg brjáluð rigning. Það ringdi svo mikið að það þurfti að loka fleirri en einni götu í róm þar sem þær voru orðnar að ám. Ég fann nú samt ekki svo mikið til þess hversu mikið rigndi þar sem við lentum ekki í neinu svona hérna heima og leiðin í skólan var nokkuð góð, þó reyndar að núna þegar vatnið er að fara af götunum þá finnst mér að þær séu orðnar töluvert verri heldur er fyrir þessa vatna tíð. Vikan er búin að líða frekar hratt hjá mér. Ég er orðin húkt á nýjum bókaflokki en ég keypti fyrstu 2 bækurnar í twilight seríunni þegar ég fór til rómar á þriðjudags morgninum. Þið munið kannski eftir því að ég sagði ykkur frá bíómyndinni sem ég fór að sjá með edo, ég komst semsag að því að myndin var gerð eftir bók og að bókin var ekki ein heldur á hún 3 vini sem eru komnir í búðir og einn sem vonandi kemur út einhvertíman í náinni framtíð. Allavega þá er þetta nokkurskonar ástarsaga milli menskrar stúlku og vampíru og ég er hræddum að ég eigi ekki nokkra von um að komast undan. Skólin var skárri þessa vikuna en þá síðustu enda var ég í alveg hræðilegu formu, en ástæðan gæti verið sú að ég var ekki neydd til að tala neitt í tíma, eða allavega ekki of mikið og svo á föstudagin horfðum við á ítalska bíómynd frá 1964 sem heitir matrmonio all’italiana eða eitthvað svoleiðis og hún var mjög góð og mér tókst að skilja næstum helminginn sem er nokkuð gott.

Í gærkvöldi fór ég svo og hitti ítalska stelpu sem ein af bekkjasystrum mínum kom mér í samband við og við erum að scambio linguistica... eða að gera tungumálaskipti, ég hjálpa henni með ensku og hún mér með ítölskuna þó svo að við höfum talað mest á ensku svona í ljósi þess að ég er ennþá ófær um að mynda heila setningu á ítölsku. Allavega þá er bara allt við það sama hjá mér. Og alltaf styttist í jólin. Buona feste

No comments:

Post a Comment