26 des
já það eru komin jól, eða réttara sagt eru þau nánast komin og farin. Og þegar þetta verður sett á netið verður öll þessi jólavitleysa búin. Ekki að ég sé að fatta að það sé komin annar í jólun, mér líður meira eins og það séu nokkrir sunnudagar í röð hérna sem ég er að eyða með fjölskyldunni. Á aðfanga dag þá keyrðum við til Napólí og borðuðum kvöldmat heima hjá foreldrum pabbans, en sá matur var ekki svo frábrugðin því sem við borðum vanalega, nema kannski bara aðeins meira, pruschiutto (veit ekki hvort þetta er rétt skrifað) og silungur, pasta og svo ýmsir smáréttir. Á jóladag var svo önnur máltíð þó að í þetta sinn hafi það verið hádegismatur sem var ansi svipaður – pasta, brauð og prusciutto, grænmetirsréttur, kjöt og svo fiskur fyrir alla nema mig, en ég er einmitt svo óheppin að þeir borða alveg rosa mikin fisk hérna um jólin. Eftir matinn var svo farið í geggnum pakka brjálæðið og borðaðar kökur og kaffi. Eftir þetta fór ég svo með mömmunni og edo til frændfólks þeirra en pabbinn fór heim og ég hafði hugsað mér að fara með honum en hún vildi endilega að ég væri með fólki þannig að ég sættist á að fara með þeim og ætli þetta verði ekki allt saman í lagi – við sjáum til. En sem betur fer er planið að fara aftur heim á laugardag eða sunnudag eða ég held það allavega en hér eru plön samt ekki svo heilög þannig að það er aldrei að vita
Þetta er semsagt ójólabloggið mitt svona í ljósi þess á ég er ekki ennþá búin að fatta það að jólin séu komin og farin enda er enginn “jólasnjór” og kalt veður hér, meira í áttina að jólasól þó að hún hafi reyndar látið sig hverfa í gær.
28des
já núna erum við semsagt búin að flakka á milli ættingja í napólí og svæðinu þar í kring í þrjár nætur og búin að borða þrjár risastórar hádegismáltíðir. Og ég verð að segja að þó að ég hafi alltaf litið á það þannig að við borðum mikið um jólahátíðina á íslandi þá er það ekki neitt miðað við það sem þei gera hér. Á íslandi er þetta meira í áttina – við borðum mikið af matnum af því hann er svo góður (enginn getur neitað því) en hér þá borða þeir mikið af mat og mikið af honum, ég er farin að vera alvarlega áhyggjufull um að ég eigi eftir að rúlla heim. Allavegana í gær keyrðum við til Bari sem er í hælnum á ítalíu (ef einhver vill skoða þetta á korti) vegna þess að mömmunni hafði verið boðið að vera á þessu litla lúxus hóteli af vinkonu sinni. Í gær borðuðum við semsagt eina einn stóra máltíð en þó eilítið frábrugna – ég borðaði grillað kjöt og grillað grænmeti sem minnti mig alveg ótrúlega mikið á ísland og svo eftir það var alveg gríðarlegt magn af ávöxtum og kökum og sætindum (kallað dolce – ef einhver hefur áhuga) eftir matin fórum við svo í sund í heitupottunum og svo tókum við því bara rólega. Í dag er svo svipað plan eins og í gær – sund, matur og göngutúr og svo veit ég ekki alveg hvernig þetta verður.
Svona aðeins um önnur málefni þá Ítölskukenslan mín gengur ekkert of skínandi vel, ég get skilið alveg slatta en það er alveg ómögulegt fyrir mig að tala, eða eitthvað af viti allavega, ég get bara ekki myndað setningar í hausnum á mér ef ég þarf að segja eitthvað þannig að þetta endar allt í frekar miklu klúðri.
Monday, December 29, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Úff, var búin að kommenta og það birtist ekki, klukkan orðin hálf eitt að nóttu, prófa aftur á morgun að skrifa eitthvað flott. Lindin
ReplyDeletealloo...eg helt þú værir einhverstaðar utan við tækniheiminn... hvar komstu í nettengingu? Hvað svo með Capri var það bara hugmynd sem komst ekki á flug.. ég er búin að segja öllum að þú sért þar á einhverri paradísareyju! Jæja lúxushótel á Ítaliuhælnum hljómar líka ágætlega! Fékkst þú einhvern jólapakka, kannski ítalska spennusögu!? Er ekki ítalska svona voða einfalt mál þú bara raðar orðunum svona í röð þá er komin setning, ekkert svona beyginga vesen eins og hjá okkur... ??? Við erum glöð að heyra að þú ert heil og sæl og sælleg, það verður líklega að setja þig á sundæfingar þegar þú kemur heim eftir þessar matarveislur! Allt gott héðan, pabbi var einmitt að hugsa um að grilla kannski svo þetta er ekki svo ólíkt hjá okkur. knús. Ma
ReplyDelete