25. jan
já þá er þessi dagur loksins búin. Ég var vöknuð fyrir allar aldir – kl 7 á sunnudegi, sem er mjög óvenjulegt þar sem það er eini dagur vikunnar sem ég hef möguleika á að sofa út. Ástæðan var sú að ég var að fara á frían dag í vatikaninu og ég vildi frekar vera örugg en að hitta stelpurnar á síðustu stundu sem gerði það að verkum að ég var mætt klukkustund of snemma en mér tókst auðveldlega að láta tíman líða með því að rölta á milli kaffihúsa og svo í hringi. Svo fór ég að hitta stelpurnar uppúr kl 1030 og þá eyddum við einni klukkustund í að bíða í röð til að komast inn á vaticanssafnið. Þar inni leið manni eins og búfé sem var hægt og rólega smalað að sistínsku kapellunni en það virðist vera það eina sem fólk hefur mikinn áhuga á að sjá en til að komast þangað þarf maður að ganga í gegnum eiginlega allt safnið. Þar er mikið að sjá en eftir svolitla stund er þetta samt allt farið að renna saman í hausnum á manni. Við tókum samt smá útúrdúr og fórum að sjá egypskasafnið sem var held ég það áhugaverðasta sem ég sá – múmíur.... mjög spennandi. Við komumst svo í sistínsku kapelluna en hún var allt of troðin og ekkert gaman að hanga þar... enda er ég ekki mikill aðdáandi satt að segja. Mín niðurstaða er semsagt sú að það er alveg hægt að sleppa vaticaninu... bara fara að s. Pietro (péturskirkju) og taka helling af myndum og þá er maður góður.... það er alltaf hægt að stela myndum af netinu af öllu hinu dótinu og segja að maður hafi farið inn. Í mínum augum er þetta ekki 14 evra virði.... og alls ekki ef maður fer án þess að hafa leiðsögumann.... allt of mikið að sjá og allt of erfitt að átta sig á því hvað maður er að horfa á! Eftir þetta fóru stelpurnar heim þar sem þær höfðu allar einhvað annað að gera og ég inní miðbæ þar sem ég hitti íslensku vini mína og við tókum einn rölt og kíktum aðeins í búðir og svo bara heim enda er ég alveg búin í fótunum núna og langar mest bara að fara að sofa þó að klukkan sé einungis 8.
eg vil lika benda a ad bloggid a undan tessu er einnig nytt!
Monday, January 26, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment