3 January 2009
gleðilegt nýtt ár allir! Er einhver að trúa því að það sé komið árið 2009?? Ég veit að það er ekki alveg búið að komast inn í hausinn á mér allavega. Mér finnst eins og síðustu 2 árin hafi bara flogið frá mér.... þannig að ef einhver veit um leið til að fá tímann til að hægja á sér þá má endilega segja mér! Allavega... á gamlársdag/kvöld keyrðum við til Napólí þar sem við borðuðum aftur með fjölskyldu raffaele það var svipaður matur og vanalega bara nema aldrei þessu vant borðaði ég ekki of mikið og satt að segja hefði ég alveg verið til í aðeins meiri mat en þar sem þau fóru yfir í fiskinn ákvað ég að það væri alveg í lagi þó ég væri ekki að springa, enda held ég að ég hefði orðið ansi hrædd við sjálfa mig ef ég hefði komis á sama skala og ítalarnir í átveislunum þó að ég sé hræddum að ég sé næstum komin þangað. Síðan var þetta bara ósköp venjulegt allt saman – skálað á miðnætti og borðaðar kökur og síðan fórum við edo út að kveikja í dóti jeijj þá var ég glöð, við vorum með stjörnuljós og blis og svo máti sjá einn og einn flugeld lýsa upp himininn og kannski eina og eina köku með í bland. Svo um nóttina keyrðum við í bæ sem heitir Avellino og er uþb kl fyrir utan Napólí, en þar er raffaele einmitt að opna íþrótta/sjúkraþjálfara eitthvað. Síðan þann fyrsta fórum við í annan bæ sem heitir caserta en þar er höll sem var byggð eftir höllinni í verölum og er ekkert smá flott með alveg risastórna “garð” en við stoppuðum samt ekki þar heldur fórum til Casertavecchia sem er efsti punkturinn af Caserta og þar borðuðum við hádegismat. Í Casertavecchia er verið að grafa upp, eða allavega vinna eitthvað í kastala frá miðöldum og af honum er einn turn í sæmilegu ástandi og einhverjir veggir og þetta er allt úr dökkum stein og var frekar drungalegt og dularfullt – allavega í því veðri sem við fengum skýað og smá rigning – og allur bærinn/hverfið passar alveg ótrúlega vel inní stemninguma, eða allavega gamli miðbærinn en þar er einmitt allt úr stein og ómálað. Ég held að þessi bær sé alveg ótrúlega skemtilegur staður til að heimsækja sérstaklega í góðuveðri. Það er allt mjög gamaldags og sérstaklega göturnar sem eru allar alveg pínu litlar og þegar við keyrðum þarna í gegna var ég alveg í sjokki og beið bara eftir að bíllinn myndi festast á milli húsa eða eitthvað í þá áttina og þetta var í fyrsta sinn sem ég fékk það á tilfinninguna að smart eða gamall mini væru bara of stórir. Mér fannst samt skemmtilegast að maður fékk alveg á tilfinninguna að þetta væri allt upprunalegt og gamalt – því að þó að ég viti að “partý göturnar” (gömlu hellulögðu göturnar sem finnast í flestum miðbæjum í castelli og í róm – en þegar maður keyrir á þeim þá hristist bíllinn alveg rosalega og þessvegna kalla ég þær partýgötur) séu allar upprunalega og gamlar – eða allavega úr gömlum steinum þá finnur maður ekki fyrir þessu gamla andrúmlofti.
Þetta verður ekki lengra í dag hjá mér..... aftur gleðilegt og farsælt nýtt ár
Saturday, January 3, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
hæ krútt, frábært að þú ert að komast á snoðir um fleiri skemmtileg svæði sem gaman væri að skoða þegar við komum í heimsóknina sem verður trúlega í byrjun apríl ef þú ætlar að vera lengur. Amma var soldið svekkt að fá þig ekki heim fyrr!! Það verður nú bara gott að vera lengur, helduru ekki, til að læra málið aðeins betur? Ég get sent þér nóturnar fyrir hljómsveitina ef tónleikarnir verða eftir að þú kemur heim! Allt gott hér annars, rignin. Alexander og ég sváfum í þínu herbergi hér í nótt þar sem ég var að passa.. eða hann svaf og ég svona svaf á öðru.. alveg óvön því að hafa svona sparkandi unga við hliðina á mér (þar sem pabbi þinn er frekar stilltur oftast!) Svo spratt Alexander upp úr rúminu kl.6.30 alveg glaðvaknaður þá var ég svona rétt að festa svefninn, þess vegna soldið dösuð í dag. Stórt knús frá okkur öllum heima =O) Ma
ReplyDeleteGleðilegt ár sætasta :)
ReplyDelete