9. sept
Ciao öllsömul þetta verður semsagt ferðabloggið mitt eða eitthvað sem á að líta út eins og blogg allavegana, þið getið þakkað henni systur minnni og Lindu fyrir það.
Edo ( Eduoardo strákurinn sem ég er að “passa” ) og Margherita voru að koma úr ferð núna í kvöld þannig að við fórum út að borða á ekta ítalskan fjölskyldu veitingastað í litlu þorpi (eða ég held að þetta sé þorp) sem stendur rétt hjá villu sem var í eigu einhverrar ríkrar fjölskyldu áður en hún fór á hausinn... allavega þá er hún núna hluti af og vatikaninu, og er sumarbústaðurinn páfans.
10 sept
OK herbergið mitt er sæmilegt frekar lítill fataskápurinn í því og það er voða tómlegt en það er ekkert sem ég er ekki orðin vön en rúmmið er ótrulega hart, húsið er flott en frekar skítugt eða það finnst mér, gæti verið afþví þau voru bara að koma heim. Húsið er á 4 hæðum, þar er m.a. leikja herbergi með pool-borði, og svo er stofa með píanói og 2 gíturum, ég hef mitt eigið baðherbergi og í kjallaranum er herbergi með saunu, hlaupatæki og heitum potti.
Það er rosa gott veður glampandi sólskin alveg og það var líka mjög gott í gær þrátt fyrir að mamma hafi verið að hræða mig.
Fyrsti dagurinn er búin að vera alltof rólegur.... ég er aðalega búin að hanga og gera ekki neitt og það er að gera mig geðveika! Við fórum samt áðan og heimsóttum nágrannana sem eru með hænur og rækta fullt af grænmeti og ávöxtum þar á meðar fíkjur sem eru ekki mjög bragðmiklar eins og þurkaðar en samt mjög góðar og við fengum nokkrar með heim
Ég hlakka mest til að geta farið til rómar og í bæinn og skoðað mig um, um leið og ég er búin að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig og allt er. Á morgun byrjar Edo í skólanum þannig að ég hef allavega eitthvað aðeins meira ákveðið að gera heldur enn í dag.
Það er ekki þráðlaust net í húsinu en ég má nota netið í tölvunni hjá Edo eins mikið og ég vil, en þar sem ég er að skrifa þetta á tölvuna mína veit ég ekki hversu oft ég mun setja þetta á netið þannig að þið verðið bara að sætta ykkur við fréttir á nokkura daga fresti. Ætla að reyna að koma þessum bita á netið á morgun, hlakka til að heyra í öllum!
ok svona byrjar tad aetladi ad vera longu buin ad tessu en netid her er buid ad vera i rusli
Þangad til næst
caio
halló snæfríður.
ReplyDeletejá það er oft skrítið að fara svona burt fyrst, en nýttu bara tímann þinn vel, finndu út hvað þig langar að gera t.d er gott að ákveða að ætla alltaf að gera e-h gagnlegt og gaman við tímann sinn.
hvað verðuru annars lengi í ítalíu? ég verð þar um jólin og kanski fyrr, ef þú verður þar þá væri gaman að hittast!
ég er með email ....surkula@gmail.com..... endilega sendu mér línu og svo er skemmtileg vefsíða sem heitir www.aftaka.org sem þú hefðir kanski gaman af að kíkja á.
hafðu það best og borðaðu nokkrar fíkjur fyrir mig.
þín frænka
steinunn
HÆ
ReplyDeletejá sjáðu bara nú þegar komið frábært komment frá Súrkúlu sem er að fara til ITALIU.. hei hei! Ekkert smá spennandi, og hún er reynslubolti, hún hakkaði í sig svona "ferskar" fíkjur á Spáni man ég .. besta sem hún fær... svo borðaðu nú dáldið margar fyrir hana.. knús ma