29 sept
góðan dagin....
þar sem ég sit hér og skifa er klukkan ekki nema 5 hjá ykkur, það getur verið að þið veltið fyrir ykkur afhverju ég er ekki í panickasti að reyna að koma edo í skólan á réttum tíma en ástæðan er sú að hann er ennþá veikur, sem þýðir að ég mun líklega ekki gera neitt vert þess að minnast á í dag.
Í gær var samt hingað til besti og lengsti dagurinn minn í róm. Þar sem ég vissi að á síðasta sunnudegi í hverjum mánuði er frítt í vatikanið ákvað ég að fara þangar. Þar sá ég hinsvegar ekkert nema fólk og við erum að tala um massívar raðir sem ég var ekki allveg tilbúin að tækla ein. Ég fékk svo að vita seinna að vatikanið er yfirleitt ekki opið á sunnudögum, þannig að þarna voru allir að nota tækifærin.
Ég ákvað að labba þá bara um, í ljósi þess að ég hafi aldrei verið í þessum hluta borgarinnar, ég labbaði fram hjá Castel sant Angelo sem er líka þjóðarsafn(held ég) og viti menn það var frít þar líka! Castel s. Angelo er hrinlaga virki sem hefur mikið af svölum og pöllum og meðal annars einn mánast ofaná byggingunni sem gefur rosalega gott útsýni yfir borgina. Þannig að þar var margt að sjá, sýningu tileinkaða Hadrian sem var einn af keisurum (held ég allveg örugglega frekar en konungur) rómar. Umhverfið frá hringlaga pöllum á 3 hæðum og að sjálfsögðu allar veggmyndirnar og sýningar í safninu. Byggingin sjálf sem sem sagt hringur en herbergin eru samt bara á það sem myndi vera u.þ.b. þriðja og fjórða hæð og til að komast þangað þarf að ganga upp ramp sem tekur upp stóran hluta af byggingunni, og er sá partur gamall, en einhver páfi lét byggja við þetta fjóra varðturna í kringum á 15. eða 16. öld þannig að innst er elst og svo sér maður nútímalegri viðbætur. Þó ég verði að segja að elsti hlutinn leit ekkrt voðalega vel út að utan.
Þegar ég var búin að villast um þar inni í nokkurn tíma ákvað ég að fara að labba og kanski fá mér að borða, þar sem ég í mínu mesta sakleysi hélt að klukkan væri eitthvað í kringum tvö, en mér til mikillar furðu var húna bara tólf þannig að ég hélt bara áfram að labba og endaði á piazza novona þar sem var allveg fullt af fólki að selja málverk og myndir. Á torginu voru einnig þrír gosbrunnar og ég held að það beri eimitt líka nafnið torg hinna þriggja brunna en það gæti verið vitleysa í mér. Eftir þetta fékk ég mér svo að borða og velti fyrir mér hvað ég gæti gert næst og komst að þeirri niðurstöðu að best væri bara að labba í átt að þeim hluta borgarinnar sem ég þekki nokkuð vel núna en komst fljótt að því að það var bara handan við næsta horn.
Orðin pínu þreytt á því hvað tíminn líður hægt ákvað ég að labba bara via dei Fori Imperiale og kannski kíkja niður í rústirnar og viti menn það var líka frítt að fara þangað. Ýkt ánægð með það rölti ég niður í rústirnar og labbaði þar um. Þar sem ég heyrði orð og orð frá mismunandi túrgædum komst ég fljótt að því að þeir væru þarna af einhverri ástæðu. Sem óþrjótandi brunnar að visku og upplýsingum... þannig að ég ákvað að labba á sömustaði og á sama hraða og túrinn og alveg óvart heyra hvað maðurinn var að blaðra með öðrum orðum þá ákvað ég að túr crasha og fékk smá upplýsingar um Palastin sem er ein af sjö hæðum rómar en einnig sú sem róm var stofnuð á, þessi túr var samt alveg að klárast þannig að mér tókst ekki að nýta mér lúmsku mína mjög lengi. Ég labbaði svo bara niður í dalin með það í huga að fara svo – svona til að nýta dagin jafnvel ennbetur í hringleikahúsið en ég lenti á endanum á öðrum túr sem kom svo í ljós að var frír og sá síðasti þann dagin að fara að byrja þannig að ég ákvað að hanga aðeins lengur. Þetta var svo hinn skemtilegasti túr, sem fjallaði að mestu leiti um sesar og guðafæingu (er það orð) leiðtoga rómar. Það er nefninlega þannig að þegar þeir dóu þá var bara byggt musteri og svo sagt viðurkennið hinn nýja guð. Ég fékk líka að vita hvað SPQR þýðir en ég man ekki nákvæmlega hvað það stendur fyrir en það þýðir semsagt fyrir íbúa rómar (eða eitthvað svoleiðis sett upp í miklu fínni orð) og nú í dag má einmitt sjá þetta á flestum holræsislokum og ruslakörfum.
Eftir þetta var sami túrgædinn með gangandi túr um róm og ég ákvað að leyfa mér að fara með þrátt fyrir að klukkan væri orðin næstum 7 og ekki sá ég eftir því. Því að þrátt fyrir að ég hafði áður komið á flesta staðina sem við skoðuðum þá er einhvervegin allt öðruvísi þegar maður veit hvað maður er að sjá, svo við tölum ekki um að ég sem var alveg að komast á síðasta snúning á einmanaleika fékk að umgangast annað enskumælandi fólk – ég verð klárlega að reyna að fara að eignast einhverja vini og hver sá sem sagði að það væri ekkert mál ætti að skammast sín! Við byrjuðum hjá minnisvarða Vittorio Emanuele II sem var fyrsti konunungur sameinaðar ítalíu og minnisvarðin er til að sýna hvernig nútíma róm varð til. Svo fórum við að Pantheon sem þýðir hof allra guða svona eins og einn staður til að klára alla. Húsið er hringlaga og með stærsta hvolfþak úr steinsteypu og er ótrúlega vel hannað og hefur staðið í gegnum jarðskjálfta og aðrar náttúru hamfarir. Við fórum svo að Trevi brunninum og ég fékk að læra söguna um hann og afhverju fólk kastaði pening í bunnin, sem varð seinna aðþví að ferðamenn henda sem mest þeir mega. Í lokin enduðim við svo á spænskuþrepunum sem hefðu átt að heita frönsku þrepin í ljósi þess að það voru frakkar sem byggðu þau til að liggja upp að nýja kirkjunni sinni en eitthvað fór hræðilega úrskeyðis, eða þá að frakkarnir voru ekkert svo vinsælir og þau eru núna þekkt sem spænsku þrepin eða the spanis steps sem stuðlar nottlega voða fallega.
Þegar túrinn var búinn var klukkan orðin rúmlega nýju þannig að ég ákvað að drífa mig í að ná metró og vona að ég þyrfti ekki að bíða lengi eftir rútunni... ég þurfti svo að bíða í 50 mín þar sem hún gengur bara á klukkutíma fresti á kvöldin þannig að ég var ekki komin heim fyrr en 23:30 eða rúmlega það og dauðþreitt fór ég beint í rúmmið. Ég vaknaði svo í morgun og fór niður og sá þá að það átti eftir að gera uppvaskið og ganga frá matnum, þetta er algjörlega það sem mér finnst mest pirrandi við það að vera hér, ég fæ aldrei alveg frí, það er alltaf uppvaskið. En í ljósi þess að ég var vöknuð og edo ekki á leiðinni í skólan dreif ég mig bara í því og kom svo að skrifa þetta endalaust langa blogg
Tuesday, September 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Mar bara alltaf að kommenta :) En allavega þá fannst mér gaman að heyra þetta með Hadrian. Nú veit ég ekki hvort hann var konungur eða keisari en eitt veit ég og það er það að Skotar byggðu mikinn og langan varnarmúr honum til heiðurs(Hadrians Wall) sem stendur að hluta til enn og hann var meira að segja nokkuð nálægt Kilsyth þar sem við bjuggum. Jamms, þetta gengur allt í hringi :)
ReplyDeleteok eg er nokkud viss um ad hann hafi samt verid keisari... gamad ad tu kommentir og maettu fleiri taka ser tig til fyrirmyndar!
ReplyDeleteJá, hvernig er þetta eiginlega með þetta lið? Nú veit ég að það lesa margir bloggið þitt, hvort þetta er feimni eða það að fólk kann ekki að kommenta........?
ReplyDeletehmmm spurning... gaman samt ad vita ad tad seu einhverjir ad lesa tessa vitleysu:D fleiri en tu t.e.a.s
ReplyDeletehallo og hæ snæfríður mín.... hitti mömmu þína í gær og hún sagði mér undan og ofan af þér og menningarreisunni þinni. Þú veist ekki hversu mikið mig langar að vera þú núna. Hér er allt á hvolfi og auk þess er byrjað að snjóa. Ég á eftir að vera fastagestur hérna og fylgjast með þér í allan vetur...en vá hvað það er langt í að þú komir heim, eða kemurðu kannski heim um jólin? either way þá færðu jólakort frá mér :)Eftir því sem ég er búin að lesa þá tek ég þig bara með til Rómar þegar ég fer þangað e-n tímann og þú verður túrgædinn minn.(þú verður örugglega komin með prófgráðu í því:)Vertu dugleg að læra ítölskuna og kynnast nýju fólki...þú átt eftir að lesa fleiri komment frá mér;)
ReplyDelete