ég er að skrifa þetta í tölvunni minni beint á netið... jeijjj ég er komin með netið í tölvuna mina... allavega hérna er næsta eða reyndar síðasta bloggið mitt
23 November
hæhæh
já helgin búin eða svona næstum því og ég þarf semsagt að vakna snemma í fyrramlálið. Skemmtilegt að segja frá því að ég held allveg örugglega að ég sé ekki búin að setja síðasta bloggið sem ég skrifaði á netið þannig að það er maraþonblogg næst held ég. á föstudagin var semsagt bíó dagur í skólanum. Þetta á að vera svona sirka vikulegt held ég, að sýna okkur mynd á ítölsku með ítölskumtexta. Ég var ein af fjórum sem mætti og engin af vinkonum mínum létu sjá sig. Það var samt ágætt þó svo að við horfðum reyndar ekki á ítalska mynd heldur bara ósköp venjulega Hollywood mynd með Adam Sandler. Eftir tíma fór ég svo og keypti nýju geðveiku töskuna mína sem er alveg geggað mikið flott! Síðan var restin af föstudeginum bara frekar rólegur.
Í dag slepti ég svo róm aftur og fór í staðin með edo og einum vini hans í bíó að sja mynd sem heitir twilight og er allveg gegguð – en ég er veik fyrir vampírumyndum þannig að það er ekki víst að þið fílið hana sérstaklega þar sem stærsti hluti þeirra sem lesa þetta blogg eru ættingjar mínir... eða ég veit ekki betur.
Mig langar bara að bæta við hérna fyrir þá sem eru ekki allveg að fatta það að þá er bara einn mánuður í jólin þó svo reyndar að ég geti mér þess til að það sé erfitt að láta það framhjá sér fara á íslandi þar sem jólaljósin ættu að vera komin upp allstaðar og jólagleðin alveg að komast í hámark. Hér á annaðborð er búið að hengja upp ljósin sumstaðar í bæjum en ekki kveikja á þeim sem mér finns alveg ofboðslega leiðinlegt þar sem ég er komin í alveg major jólaskap og 1. Í aðventu eftir viku:D jæja þangað til næst...
29 November
ciao. Það er komin önnur helgi og ef ég hef þetta rétt þá er nóvember nánast búin, fyrsti í aðventu á morgun og prófatíð framhaldsskóla að byrja á mánudagin, þanig að ég þið eruð að byrja í prófum þá gangi ykkur vel. Vikan leið ótrúlega hratt hjá mér og skólin.... hmmm já skólin gengur... við erum komin með afleysingakennara fyrir carmen sem á að kenna málfræði en hún er eitthvað veik held ég þannig að við fengum nýjan kennara sem ég man ekki hvað heitir en hún er rosa fín og hún þýðir stöff yfir á ensku þegar maður skilur ekki þannig að það gekk alveg glymrandi vel að læra sagnirnar eða allavega að byrja á þeim.
Því miður þá er ein af vinkonum mínum úr skólanum að fara eftir nokkra daga þannig að í gær þá borðuðum við “kvöldmat” í frascati nema þetta var ekki beint kvöldmatur við fórum á vínstað sem er með alskonar forrétti og borðuðum okkur nokkurnvegin södd á brauði, osti og pruschetto (ég kann ekki að skrifa þetta) eftir að okkur tókst nokkurnvegið að panta vín (því miður þá er ekkert okkar mjög frótt um vín þanig að þetta endaði bara í að þjónustustúlkan valdi fyrir okkur. Eftir þetta fórum við svo á kaffi hús og fengum okkur tiramisu (fyrsta skiptið mitt) sem er eftirréttur gerður út mascarpone osti og ýmsu öðru. Þar sátum við og töluðum í góða stund.
Ég veit ekki hvort það er ég eða orðin sem ég er að skrifa núna, eða allavega sum en mér finnst einhvernvegin eins og margt sé ekki að passa alveg eða sé vitlaust stafsett en ég er samt ekki viss þar sem ég get ekki fundið neitt annað til að segja. Ég held að það sé of langt síðan ég talaði íslenku af einhverju viti, þó ótrúlegt en satt þá sakna ég þess ekki beint en það gæti haft eitthvað með það að gera að ég á það til að tala við sjálfa mig, sérstaklega þegar ég er að keyra sem er nokkuð oft. Annars er bara ósköp fátt búið að gerast hjá mér þessa viku þannig að ég held að ég hafi þetta bara stutt. Ciao
30 nov
í dag er fyrsti í aðventu og við erum byrjuð að jólaskreyta hérna. Ég ætla ekki að segja mikið annað en að mér til mikillir mæðu er tölvan hans edos aftur komin í hass og mögulega er það varanlegt ástand þannig að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera núna....
Friday, December 5, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Halló, ég heiti Tinna og bý í Chicago. Ég sá á blogginu hérna aðeins framar að Ma sagði eitthvað um að Arnar og Sóla hefðu komið í mat. Ég er einmitt að reyna að hafa upp á Arnari og Sólu til að senda þeim jólakort. Ef þetta eru þau Arnar og Sóla sem eiga Þorgeir og bjuggu í Chi fyrir svolitlu, gætuð þið gefið mér heimilisfangið þeirra? Tölvupóstfangið mitt er tinnsi hjá gmail . com Ég yrði afskaplega þakklát, bestu aðventukveðjur, Tinna
ReplyDelete