15 des
halló hafnarfjörður helgin er komin og farin og góðaveðrið með henni. Já það er farið aftur að rigna og í dag á leiðinni heim úr skólanum lentum við í flóði, slabbi og hagli, þrumun og eldingum en ekki mikið meira en það. Ég ætla bara að taka það fram að ég er búin að vera viku að reyna að koma þessu saman.
Sunnudagurinn var mjög góður. Ég fór til rómar og í göngutúr um trastevere á vegum vefsíðu sem heitir friends in rome og sér um alskonar uppákomur og skemmtileg heit í róm auk þess að hjálpa fólki að eignast vini. Trastevere er gamla iðnaðarhverfið/fátækrahverfið í róm og er hinu meigin við ána sem liggur í gegnum róm. Við skoðuðum 4 kirkjur og ein af þeim er minnsta kirkjan í róm og ég held að það hafi verið áhugaverðasta kirkjan sem ég hef séð hérna, hún féll allavega ekki inní fjöldan og var enn ein kirkjan sem ég hef séð í róm. Kirkja númer 2 var byggð til heiðurs konu sem var kristin og maðurinn hennar stóð með henni en þegar það komst upp (þetta er fyrir kristnitökuna) þá var maðurinn hennar myrtur. Það átti svo að sjálfsögðu að drepa hana líka en bara ekki á jafn fljótan og sársaukalausan hátt þannig að þeir ákváðu að kæfa hana í gufu frá innanhús baðinu þeirra. Þar sat hún í þrjá daga án þess að deyja þannig að þeir ákváðu að hálshöggva hana. Því miður þá hlíður böðullinn að hafa verið nýr og stressaður því hann tók þrjú högg á hálsinn á henni en ekki fór hausinn af og hann var stoppaður áður en hann tók það fjórða. Það tók svo greyið konuna aðra þrjá daga að blæða út. En kirkjan er semsagt byggð þar sem þau áttu heima og er ein hliðin af lokuðum garði (courtyard – eins og þeir sem finnast á hringbrautinni og elín hefur einn svoleiðis nema þessi er bara lítill) hinar hliðarnar eru svo ef mér skildist rétt klaustur, og fjórðahliðin aðalega hlið. Þetta er samt aðeins farið að dofna úr minninu hjá mér þannig ég er ekki alveg viss. Í þriðju kirkjunni fórum við uppá loft og fengum að sjá herbergi þar sem san fransesco dvaldist á meðan hann var að semja við páfan og fjórða kirkja var svo santa Maria in trastevere en það er talin vera fyrsta kirkjan sem var byggð í róm og staðsetnungin var valin af því að þar fannst hrein olía sem var eitthvað sem fannst ekki og finnst ekki á hverju strái. Eftir þetta fórum við svo flest á bar og spjölluðum sem var mjög áhugavert, en flestir sem voru í hopnum voru aðeins eldri en ég en ég kinntist einni stelpu sem er líka au pair og hefur engan til að hanga með á gamlárskvöldi þannig að vonandi er ég búin að finna mér félaga fyrir það.
Saturday, December 20, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
hæ, takk fyrir þetta, var það ekki örugglega kjarnaolía sem fannst á þessu svæði kirkjunnar, kjarnaolíur voru á tímum krists verðmætari en gull! Gaman að heyra að þú sért komin með vin, hvers lensk er au-pair stelpan sem þú kynntist í trastavere? Hvað með þessa ítölsku sem þú hittir um daginn? Allavega.. hér er snjór svo það er lítið betra en hjá þér og svo spá þeir rigninu á aðfangadag, það kom víst snjór í Las Vegas daginn eftir að ég fór og allar smagöngur lokuðust.. ég var heppin að sleppa þaðan! Knús. Ma
ReplyDelete