24 jan
halló öllsömul.... það er verið að þrýsta á mig að blogga en því miður þá er bara ekkert tíðindavert búið að gerast hjá mér þessar síðustu vikur. Það sem er búið að gerast er ósköp ómarkvert. Fyrir 2 vikur hitti ég tvær íslenskar au pair sem eru hér í nágreninu við róm en þó á allt öðrum stað en ég. Önnur Helena er hjá íslenskri fjölskyldu en frænka hennar Elínborg er hjá ítalskri. Við hittumst hjá colloseo (hringleikahúsinu) og tókum svo rölt um borgina þar sem þetta var fyrsta skiptið hennar elínborgar í róm og fórum á alla þessa stæðstu staði; fori romani, via del corso, spænsku þrepin, piazza del popolo, piazza navona, campo dei fiori og fontana di trevi. Við kíktum líka aðeins í búðir en það eru einmitt búnar að vera útsölur hér eins og heima og ég búin að bæta aðeins við hlassið sem fer með heim. Það var alveg ótrúlega skrítið að tala íslensku aftur eftir 4 mánuði af einungis ensku og þessum nokkru orðum í ítölsku sem ég er búin að troða inn í hausinn á mér og mér til mikillar skammar þá byrjaði ég nokkrar setningar á ensku og ég á það til að hugsa eingöngu á ensku og íslenskan aðeins byrjuð að riðga. Síðustu helgi var svo lítil samkunda hjá hóp af au pair stelpum sem eru hér í róm heima hjá einni þeirra þar sem mér tókst að eignast fleiri vini en mest af þeim samt útlendingar eins og ég þó að það hafi verið nokkrir ítalir með í bland þannig að mér hefur tekist vel að forðast öll tilfelli þar sem ég verð neydd til að bjarga mér á ítölsku enda er það ekki mjög skemmtileg sjón. Því miður voru samt tekin í gildi ný lög þetta kvöld þannig að þegar við ætluðum að fara að dansa uppúr kl 2 var allt lokað og læst þannig að kvöldið tók snöggan endi.
Vikurnar inn á milli eru búnar að vera álveg ósköp rólegar með skin og skúrum og ég verð að segja að ég er mun ánægðari þegar það er sól og ég vona að það verði sæmilegt veður á morgun en þá er einmitt planið að fara aftur í vaticanið með nokkrum vinum en það er frír dagur á morgun þar sem það er síðasti sunnudagurinn í mánuðinum en ég held samt að þetta muni ekki fara á netið fyrr en eftir þá heimsókn. Ég er alltaf við það sama hér; keyra, skóli og svo reyni ég að komast í laugina inn á milli. Edo tókst samt að bráka á sér litla fingurinn í síðustu viku og ég fékk að komast að því hvernig spítalarnir hérna eru og við skulum bara segja að ef ég mun einhverntíman þarfnast þess að fara á spítala þá vona ég hjartanlega að ég mæti á staðinn í sjúkrabíl og komist beint inn á skurðstofu eða hvað það nú er sem maður fer á á spítala.
En ég held að ég sé komin út í einhverja tóma vitleysu þannig að þetta verður það síðasta í bili. Áðan fórum við edo í bíó að sjá ferðina til miðju jarðarinnar (the jorney to the center of the earth) og með mínum frábæra akstri tókst okkur að komast á staðin á 15 mín og meirað segja leggja líka (the italian way samt – og nei ég ýtti ekki bílunum í kringum mig aðeins svona til að koma mér betur fyrir). Myndin sjálf var svo mun skemmtilegri en ég bjóst við þó að við höfum ekki séð hana í 3D ég held að það hefði alveg farið með mig.... mér brá alveg nógu mikið án þess. Allavegana þá held ég að þetta sé komið gott í bili og ég skal svo segja ykkur hvernig seinni kynni mín af vaticaninu fara fram. Þangað til næst....
Saturday, January 24, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
hæ og takk fyrir þetta litla ljósið mitt. Er ekki einmitt hin íslenska Anita Briem einn leikarinn í "Journey to the Center.."?? Þó þér finnist ekkert að gerast er gaman að lesa umræðuna. Hmmm..verst með ítölskuna, ég var að búast við að það væri að bresta á! góðar kveðjur frá öllum hér og frá ömmu. Sigursveinn bað líka sérlega vel að heilsa ég hitti hann á fundi, Knús. Ma
ReplyDeletetakk fyrir kvedjurnar... juju myndin byrjar einmitt a islandi
ReplyDelete