30 January 2009
ja þá er einn enn mánuðurinn flogin frá manni. Síðasta vika er búin að vera alveg med afdæmum leiðinleg... edo var veikur frá mánudegi til miðvikudags og þann tíma fór ég bókstaflega ekki út úr húsi. Á fimmtudeginum var ég svo næstum búin að finna upp einhverja afsökun til að fara ekki í skólan minn þar sem ég var ekki búin að mæta í rúmlega viku og hafði þar með ekki hugmynd um hvað var að gerast... var samt fljót að átta mig á því að ef ég færi ekki þann dagin myndi dagurinn eftir það bara vera verri þannag að ég rölti mér í skólan og beið eftir að tíminn ætti að byrja þegar ég varð vör við að ég var sú eina mætt. Það kom svo í ljós að kennarinn var einhverstaðar fjarverandi en ég hafði nátturulega ekki hugmynd um það. En heppnin var með mér. Nokkrar stelpur úr bekknum mínum voru búnar að ákveða að hittast til að spjalla saman á ítölsku – nokkurskonar tungulálaskipti og mér var boðið með. Ég eyddi semsagt deginum yfir kaffibolla með stelpunum og var neydd til að tala á ítölsku og m.a. segja frá einhverjum típískum íslenskum rétti. Það eina sem mér datt í hug var kjötsúpan góða en lenti í miklum vandræðum við að reyna að útskýra hvað grænkál væri og svo að reyna að finn enska orðið fyrir rófur (sem ég man ekki ennþá) en ég er samt fegin að hafa ekki farið að reyna að útskýra slátur, það hefði án efa alveg farið með mig. Í dag er ég svo bara búin að vera rólega að mestuleiti. Ég og edo fórum í göngutúr áðan við nemivatn sem var mjög fallegt í sólskininu sem er aftur komið hingað og ég er að vona að haldist.... ég er alveg komin með meiren nóg af rigningunni og kuldanum... en já ekki lengra í bili – bara aðeins að kveðja mánuðinn. Arrivederci
Friday, January 30, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
hér er ennþá VETUR og glitrandi snjór yfir öllu. Rófa er yellow beet eða turnip, grænkál er oftast kallað kale. Nú er mikið að gerast í politíkinni og stjórnin loksins farin með skömm. Eldhúsbyltingin er að hafa áhrif. Spaugstofan var með ÓHÆF RÍKISSTJÓRN á ýmsum tungmálum þam. ítölsku governa utilae eða eitthvað??? Amma er enn á spítalanum og batinn kemur hægt. knús frá okkur. Ma
ReplyDelete