9. nov
halló halló halló.... er einhver þarna??
Þá er liðinn enn einn sunnudagur í lífi mínu og enn ein ein ferð til rómar afstaðin. Í morgun var ég alveg á mörkunum að nenna að fara, gæti haft eitthvað með það að gera að þegar maður er búin að fara með einhverjum er ekkert voðalega sjarmerandi að lölla af stað einn. Einhvernvegin þá var ég samt ekki allveg tilbúin að eyða frídeginum mínum í sjónvarpsgláp og leti þannig að ég dröslaði mér á stað og ákvað að gera aðra tilraun til aðfara í verslunnar leiðangur. Því miður hefur það ekki gengið neitt of vel hjá mér undanfarið og mig farið að “vanta” eitthvað nýtt – þ.e.a.s. jakka. Í ljósi þess að minni elskulegu systur tókst að sannfæra mig um að skilja það stykki sem ég ætlaði að taka með eftir. Ég er semsagt búin að vera alltaf með það á bak við eyrað að kaupa jakka en ekki fundið neinn sem ég var nógu ánægð með... fyrr en í dag, ég rakst inná búð sem selur “made in italy” vörur og þar sá ég þennan æðslega litla sæta, fjólubláa jakka sem kostaði ekki nema 50 E (sem í mínum heimi er 5000kr en í ykkar u.þ.b. 8, en ég hugsa ekki umm það) og er 80% ull... ekki svo shabby.
Þegar ég kom úr metró við piazza del popolo þá var hljómsveit og kór með æfingu og ég held að það hafi verið tónleikar í kvöld en ég er ekki viss... mér finnst alltaf soldið skrítið að hlusta á hljómsveitir, þar sem ég er vön að vera á hinum endanum. En það var mjög gaman að heyra en lét mig líka minnast þess hversu mikið ég sakna þess að vera í hljómsveit sjálf. Ég veit að ég gæti mögulega funndið eitthvað hérna kvartett eða trío jafnvel strengjasveit, en ég er satt að segja og löt til þess og það hálpar ekki að það að tjá sig við fólk sem þú skilur mjög illa og skilur ekkert af því sem þú segir, það er af einvherjum ástæðum ekki mjög kvetjandi í mínum augum. Hvað skólan minn varðar þá gengur það bara vel og ég skil meira með hverjum deginum en ég held að ég sé búin að segja það áður og ekkert þess vert að minnast á hefur gerst síðan þannig að ég er hætt í bili, caio
p.s. ég verð líka að segja að ég er ennþá frekar svekkt yfir því hversu lítið af kommentum þið eruð að senda mér... endilega að segja eitthvað.
Sunday, November 9, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
knús lúsin mín, og gott að þú fékkst þér jakka enda komið frost hjá þér er það ekki????? heitara á Íslandi en ítalíu í dag sýndist mér. Hvar eru svo vinir þínir... hvers lensk eru þau, ég hef ekki fengið að vita það ennþá! Allt gott hér annars og Oddi gengur ljómandi vel að keyra enda maður með æfingu! Hvernig væri að drífa sig í quartett eða hljómsveit?
ReplyDeletemér líst bara vel á það, viltu að ég taki pláss frá fyrir þig hjá Sigursveini á vorönninni - ég gæti sent þér nóturnar í janúar? meira knús. Mamma
Jájá, hér sit ég nær heyrnarlaus með hvítlauk í eyranu :)
ReplyDeleteRosalega líst mér vel á lýsinguna af fjólubláa ofurjakkanum. Ég er nú reyndar að vonast eftir að heyra hönnunarsögur, er ekki hægt að kaupa notaða saumavél þarna? Ég er enn föst í íslensku lopapeysunum, er reyndar að búa til eina fyrir Áshildi núna ekki úr ull en með íslenska munstrinu. Allt mjög spennandi sko hehe. En, jú, nú verður allt handgert í jólapakkana um jólin, endar samt á því örugglega að sumir fá jólapakkana í sumar hehe. Hvítlaukskveðja, Linda
Hæ Snæfríður.
ReplyDeleteHvernig segir maður góðan daginn á Ítölsku? Við erum nefnilega með ítalskan skiftikennara hér í Öskjuhlíðarskóla sem átti reyndar að kenna tungumál en er svo að segja ótalandi á ensku. Gott að geta a.m.k. boðið honum góðan daginn. Annars allt gott héðan. Fór með palla á rjúpu í gær. Við náðum átta. palli sex og ég tveimur en við ætlum að fara norður, seinna í mánuðinum á rjúpu. Hvernig var það annars. Var ekki kennt að elda rjúpru í húsmæðraskólanum? Það er gaman að lesa skrifin þín hér og fylgjast með því sem á daga þína drífur. Endilega haltu því áram.
Ástarkveðjur JAK