16 November 2008
buongiorno, come stai? Sto bene e non vado a roma oggi. Vó sjáið þið þetta.. jamm þetta er heil setning a ítölsku sem ég get sagt og skrifað með mögulega smávægilegum málfræði og/eða stafsetningar villum eða villum. Hver fattar munin hér?? Hahhah ok ég er semsagt ekki að fara til rómar í dag þó að það sé sunnudagur. Og ástæðan er að í morgun eða réttara sagt áðan rétt fyrir hádegi fórum við fjölskyldan í nemi museo de nevi romana eða skipasafn nemi. Lago Nemi (nemivatn) er rétt hjá þar sem ég bý og liggur í gíg (ég veit ekki hvort það á að vera ý eða í). Árið 1930 fundust tvö stykki gríðarlega risastór skip á vatnsbotninum. Þessi skip voru 70m löng og 20m breið sem er ekkert smáræði sérstaklega þar sem Lago Nemi er ekki svo stórt. Þið spyrjið kannski hvað voru tvö risaskip að gera á lokuðu vatni? Hérna er ástæðan – róverski keisarinn Caligula vildi fá sé nýtt sumar hús, eitthvað kósí og skemmtilegt (get ég ímyndað mér) og hvers vegna ekki að byggja vatna villu í orðsins fyllstu merkingu þannig að hann lætur byggja risastórt skip sem hann klæðin í brons og skreytir með mosaikgólfi úr marmara og marmarasúlum og heilum haug að skrautmunum. Ég er ekki alveg viss á söguni hérna en allavega þá enduðu risastór skipin á vatnsbotninum og var svo funndið á ný og ákveðið að byggja safn fyrir þau þannig að þau voru flutt upp á land og safnið byggt utanum þau. Því miður þá brann safnið árið 1944 og bæði skipin urðu eldinum að bráð að mestu leiti. Einhver sem er að pæla í tímasetningunni? Já þið giskuðuð rétt það voru nasistarnir sem ákváðu að fyrst seinni heimstyrjöldin væri að enda og þeir að tapa þá gætu þeir ekki tapað neitt á því að gera smá brennu og púff tvö rúmlega 2000 ára skip horfin. Safninu lokað til frambúðar eftir þetta en það hefur nýlega verið opnað aftur og inniheldur þá hluti sem björguðust ásamt styttum og ýmsu öðru. Ég verð að segja að persónulega hefði ég ekkert á móti því að eiga eina svona vatnavillu.
Í kvöld er ég svo að fara í bíó í fyrsta sinn síðan ég kom á mynd á ítölsku með vinum mínum úr skólanum en fyrst er hádegismatur og ferð á gólfvöllin. A presto. Arrivederci
Sunday, November 16, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
bara að segja hæ af því það er ekkert komment komið inn!!! Allt gott hér, Oddur risinn úr rekkju eftir að hafa étið Oregano olíu í nokkra daga (samkv. lækninum okkar Ólöfu er það eina olían sem bráðdrepur streptocokka!) og það virkaði virkilega! Hann er meira segja orðinn svo góður að hann er farinn út á undankeppni söngvakeppni framhaldskólanna með einhverri vinkonu sinni. ég er að fara niður í bæ: Birna er með opið hús og afslátt í búðinni í kvöld. knús Ma
ReplyDelete