Sunday, November 23, 2008

kvikmyndir

20 November 2008

halló...
já ég fór semsagt í bíó á sunnudagskvöldinu á mynd sem heitir changling og er sönn saga sem gerðist í LA 1929 um konu sem lendir í því að syni hennar er rænt og nokkrum mánuðum seinna kemur lögreglan með dreng til hennar og segir henni að þetta sé sonur hennar þó að það sé ekki hann og þegar hún fer í fjölmiðla er henni stungið inn á geðsjúkrahús. Sagan fléttast svo við aðra sögu eigilega... -ef þið viljið sjá myndina þá ekki lesa of mikið en það var semsagt maður sem rændi 20 strákum og myrti þá á hrottalegan hátt. Myndir var góð en er ábyggielga betri ef maður skilur eitthvað meira en non é mio figlio en ég held að ég hafi samt overdose-að á ítölsku þetta kvöld en myndir er rétt tæplega 2,5 klst. Þannig að morgunin eftir tókst mér ekki að fylgjast of vel með í tíma en ég held að það hafi ekki verið of slæmt... nema ég veit bara eigilega ekki hvað við gerðum. Allavega þá var ekki tími í gær og í dag afþví kennararnig mínir voru að gera eitthvað annað sem var sagt á ítölsku og ég náði ekki en á morgun erum við að fara að horfa á ítalska bíómynd með ítölskum texta og læti, ég vona bara að ég skilji eitthvað, allavega söguþráðin þó að það sé yfirlett auðvelt.

á bæði mánudagin og þriðjudagin fórum við fjórar úr tíma að fá okkur kaffi og það er mjög athyglisvert þar sem samræðurnar fara fram á ensku, frönsku, ítölsku og spænsku. Við erum semsagt 4 og ein frá frakklandi sem talar ekki mjög mikla ensku en hinar tvær tala nokkur orð í frönsku þannig að þetta er mjög áhugavert en stundum dett ég alveg út.

Hún móðir mín var að byðja um uppskriftir en því miður þá er ég ekki búin að læra neitt nýtt eigilega en ef þið eruð að leita að einhverju einföldu þá er eggjahræra með mozzarella mjög góð og pasta með smjöri kom mér skemmtilega á óvart. Þá verður þetta ekki lengra í bili


23 November

hæhæh

já helgin búin eða svona næstum því og ég þarf semsagt að vakna snemma í fyrramlálið. Skemmtilegt að segja frá því að ég held allveg örugglega að ég sé ekki búin að setja síðasta bloggið sem ég skrifaði á netið þannig að það er maraþonblogg næst held ég. á föstudagin var semsagt bíó dagur í skólanum. Þetta á að vera svona sirka vikulegt held ég, að sýna okkur mynd á ítölsku með ítölskumtexta. Ég var ein af fjórum sem mætti og engin af vinkonum mínum létu sjá sig. Það var samt ágætt þó svo að við horfðum reyndar ekki á ítalska mynd heldur bara ósköp venjulega Hollywood mynd með Adam Sandler. Eftir tíma fór ég svo og keypti nýju geðveiku töskuna mína sem er alveg geggað mikið flott! Síðan var restin af föstudeginum bara frekar rólegur.
Í dag slepti ég svo róm aftur og fór í staðin með edo og einum vini hans í bíó að sja mynd sem heitir twilight og er allveg gegguð – en ég er veik fyrir vampírumyndum þannig að það er ekki víst að þið fílið hana sérstaklega þar sem stærsti hluti þeirra sem lesa þetta blogg eru ættingjar mínir... eða ég veit ekki betur.

Mig langar bara að bæta við hérna fyrir þá sem eru ekki allveg að fatta það að þá er bara einn mánuður í jólin þó svo reyndar að ég geti mér þess til að það sé erfitt að láta það framhjá sér fara á íslandi þar sem jólaljósin ættu að vera komin upp allstaðar og jólagleðin alveg að komast í hámark. Hér á annaðborð er búið að hengja upp ljósin sumstaðar í bæjum en ekki kveikja á þeim sem mér finns alveg ofboðslega leiðinlegt þar sem ég er komin í alveg major jólaskap og 1. Í aðventu eftir viku:D jæja þangað til næst...

4 comments:

  1. takk rúsína, allir voða glaðir að fá fréttir, aldrei nóg af þeim og skemmtilega blogginu þínu! Margt heldra fólk les þetta af miklum móð og hugsar vel til þín og við vonum að þú finnir góðu straumana þó þau svari þér ekki á commentum! Hmmm jólaskap... ekki alveg.. en ég er líklega of upptekin af því að ég er að fara í burtu.. missi af jólaundirbúningnum.. er þó að fara að baka piparkökur í dag þar sem ég lofaði að hafa piparkökur á olíukynningunni næsta miðvikudag. Fann einhverja græna peysu í kassa með kjólum og dóti.. sendi hana.. eitthvað annað? knús knús lús, ma

    ReplyDelete
  2. hvernig er það, tekurðu við fleiri hljóðókum?

    ReplyDelete
  3. heyrdu ja eg hefdi ekkert a moti tvi ad fa fleiri tar sem eg er buin med hinar 2 (og oftar en einusinni lika) en eg veit ekki alveg hvernig tad myndi ganga ad koma teim til min

    ReplyDelete
  4. Ég er tveimur skrefum á undan :) Tveir diskar á leiðinni :)

    ReplyDelete