Wednesday, November 5, 2008

hrekkjavakan

2 nóv

já fólk það er kominn nýr mánuður! Síðasta vika var frekar áhugaverð fyrir mig þar sem ég er núna allveg opinberlega byrjuð í skólanum. Ég verð að segja að það gekk ekkert of vel, mikið að fólkinu sem ég er með í tíma virðist kunna ansi mikið fyrir sér í ítölsku og mér líður eins og algjörum plebba sitjandi og ekki skiljandi neitt... eða allavega alveg óskaplega lítið. En mér til mikillar gleði þá er ég búin að eignast vini:D og í dag sem er sunnudagur ef einhverjir eru ekki allveg að fylgjast með dagsetningum þá fór ég með mayju (hún er með mér í skólanum) og manninum hennar óskari til rómar og við fórum og fengum okkur að borða á indverskum veitingastað i trastevere (er ekki allveg viss um að ég sé að skrifa þetta rétt en ég er of löt til að tékka á því) þar sem maturinn var ekkert sterkur og ég fékk mér samt kjúkling sem hét “hot” svona til að gera mig ennþá meira skiljanlega þegar ég segi ekki sterkur þá meina ég að mamma hefði getað borðað hann án nokkurra vandræða. Það var samt mjög gaman að borða eitthvað annað en pizzu eða pasta. Síðan röltðum við bara um og tókum svo lestina aftur til frascati þar sem þau búa og ég keyrði heim. Þegar ég kom heim var fjölskyldan ennþá í napólí, en í dag er nebblega dagur hinna dauðu þannig að þau fóru þangað til að hitt fjölskylduna- jafnt lifendur og framliðna.

Föstudagurinn var líka mjög skemmtilegur eða réttara sagt þá var föstudagskvöldið mjög skemmtilegt. Ef það fór fram hjá einhverjum á fróni þá var hrekkjavakan þann dagin og ég, edo og mamman fórum í partí. Ég var klædd eins og norn, eða ég var reyndar bara með hatt og í svörtum kjól sem mamman gaf mér og svo pínu fríkí máluð, með crazy hár. En ég held að hrekkjavakan sé einmit “the ultimate hair do day” en því miður verða þeir sem gleymdu þessum ameríska hátíðis og nammi-áts degi að bíða í annað ár með að sleppa sér í gleðinni. Partýið var haldið af fyrrverandi bekkjafélaga edos úr international skólanum þannig að allir sem voru þarna, eða allavega flestir töluðu ensku sem var mjög gott fyrir mig þar sem við orðaforði minn og kunnátta í ítölsku hefur nánast bara bæst við “no capito” sem er mjög mikil vægt að kunna þegar maður er að reyna að læra ítölsku á ítölsku og skilur bara 1/3 af því sem kennarinn segir.

Þetta er bara frekar stutt hjá mér í kvöld. Þannig að.... lifið heil og ekki gera of lítinn óskunda í lífinu það er bara tóm vitleysa

2 comments:

  1. hæ elsku krútt, ég er mjög forvitin að vita meira um vini þína, hvers lensk eru þau til dæmis? Helduru að margir viti hvað ...."meira að segja mamma hefði getað borðað þetta2... skilji hvað það þýðir!!! en mér fannst þetta náttúrulega bara sætt!
    Héðan er allt svona sæmó, Oddur er á balli í kvöld og ég var of sein niður á löggustöð að ná í æfingarakstursleyfið hans annar hefði hann geta keyrt sjálfur á ballið (með minni aðstoð) og kannski heim líka.. sem hefði náttúrulega haft ágæt uppeldisleg áhrif! Við Elín erum farnar að eiga vikuleg stefnumót á Kaffitár og föstudögum svo nú hlakka ég til að hitta hana í fyrrmálið og fá fréttir úr Vesturbænum! Pappi er núna með regluleg matarboð, gæsaveislur!!!! síðustu helgi voru Kiddi og Dóra sú ítalska og þýska og svo Arnar og Sóla og börn og Ólöf náttúrulega, en næstu helgi eru það Palli og Kristbjörg og co. nóg að gera hér í matarstússi og aðstoðarkokkurinn víðs fjarri ææææ.
    jæja nú hætti ég þesssu blaðri, knús og knús. Ma

    ReplyDelete
  2. hahah... jamm tetta sterkt komment var lika adalega aetlad til tin og elinar... svona tannig ad tad vaeri oruggt ad tid myndud fatta ad tetta var ekkert sterkt, eg trui ekki ad einhverjum hafi dottid i hug ad hleypa oddi i umferdina a bil en i ljosi tess ad teir leyfa mer ad keyra lika ta er greinilega eitthvad ad kerfinu. hahah jamm tid aettud algjorlega ad reynaad muta honum og hota og hvad sem gengur til ad fa hann til ad slaka a i bjornum. tad er gott ad vita ad allir tessir aumingjans litlu storu saetu ljotu fuglar eru ekki bara geymdir i frystinum tangad til ad eg kem heim og ekki skemmir ad tad er alltaf gaman ad fa folk i mat. tegar eg kem heim aetla eg allveg klarlega ad sjalfbjodamer (ef tad gerir tad enginn annar) a kattihusa datein ykkar elinar, eg er nebblega buin ad laera ad drekka cappucino, to eg se ekki allveg viss hvort ad tad se gott eda slaemt.... allavega gaman ad fa komment, tad virdast flestir eiga i einhverjum vandraedum med a kommenta en ef teir hinir somu lesa tetta ta endilega ad kommenta bara a myspace eda facebook.... knus og kossar

    ReplyDelete