Sunday, October 2, 2011

eins gott að byrja bara á fullu ekki satt?

ég hitti mest awesome fólk í heimi í gær

Ok.... þetta byrjaði á því að ég ákvað að það að fara á sundæfingu væri mjög góð hugmynd, í ljósi þess hvað ég er ótrúlega þreytt í vöðvunum og öxlunum eftir að hafa rölt um london meðtölvuna á bakinu og london er ekki minnsta borgin við að þræða með 5 kíló á bakinu. Allvega.... sunæfing hér er ekki eins og sundæfing heima, í fyrsta lagi var laugin alveg tiny og í staðin fyrir þessa 3-4 sem mæta á æfingar heima var alveg sona 25 manns í lauginni. Þau eru einmitt að æfa fyrir mót þannig að ég fékk að gera eins ofur erfiða spretta æfingu.... ekki alveg það sem ég var að hugsa en ég get sagt þetta – ef ég fer að æfa hér mun ég líklega vera komin í massa gott form á no-time.

Ég gæti hafa hlaupið að eins á mig í gleðinni þarna.... ég er semsagt á “sófa” núna hjá Rian og hann býr með pari Tom og Jos, og jos er algjört æði. Eftir æfinguna þar sem ég næstum dó fór ég að hitta hana á nýju heimili vina hennar (þeir eru ný giftir og voru að flytja inní alveg ótrúlega fallega kjallaraíbúð) þar sem við horfum á X-factor.... já ég actually horfði á raunveruleika sjónvarp og hafði gaman af.... kannski aðalega afþví ég hafði gaman að fólkinu í kringum mig. þetta var alveg tryllt. vinir hennar jos og hún sjálf eru semsagt alveg yndisleg.

en já stutt í dag bara....

held að ég muni hanga í garði einhverstaðar í dag þar sem veðrið er ennþá alveg frábært, það liggur við að mér takist að ná í smá tan þar sem það fór einhvernveginn forgörðum í sumar

No comments:

Post a Comment