jæja
við erum núna búin með kortið okkoar af hackney og ég held að það hafi bara endað nokkuð vel. mér tókst að komast í gegnum þetta án þess að drepa nokkurn (ég komst samt allveg skuggalega nálægt því á einum tímapunkti) og ég náði meirað segja að eignast nýja vini. ekki svo slæmt miðað við aðstæður. þar sem myndir segja 1000 orð eða svo er sagt ætla ég að skella inn myndum með hérna og segja svo ekkert meira í bili
annað í heiminum gengur alveg skínandi vel. ég sé fram á að vera algjörlega týnd í "cultural and historical studies for fashion" en ég er nokkuð viss um að það sé eðlilegt, eða ég vona það allavega
á mánudaginn byrja ég svo að teikna sem verður stuð en ætla að nota daginn í dag í að borða halumi og versla mér smá föt (mér finnst að ég megi)
No comments:
Post a Comment