Saturday, October 8, 2011

laugsmorgunn

í morgun fór ég og náði í kaffi á monmouth caffe í borough. Ok ég þarf kannski að byrja aðeins fyrr... ég er semsagt á sófanum hjá Rian eins og ég hef sagt áður og hann býr í hverfi sem kallast borough og er sunnan við themes. Þessar fréttir um kaffið þýða kannski ekki mikið fyrir flesta en til að gera þetta aðeins meira skiljanlegt þá er monmouth caffe company mögulega besta kaffihúsið í london og er staðsett á monmouth street í covent garden og líka við borough market sem er rétt hjá þar sem ég bý núna. Ég semsagt fór og fékk mér kaffi og labbaði aðeins um borough market sem er matarmarkaður þar sem var svo mikið af girnilegu dóti. Ávextir, grænmeti, kjöt, ostar, og ýmislegt annað gúmmelaði. Og ekki nóg með það heldur þetta er víst líka staðurinn sem jamie oliver kemur til að versla. En þetta er bara smá stutt. Ég ætla að fara á einhvern bókamarkað á eftir

No comments:

Post a Comment