4 oct
tíminn líður frekar hratt hérna. Fyrsti skólaagurinn minnn var í gær og hann var áhugaverður. Það er í rauninni það besta sem ég get sagt. Umsjónakennarinn minn er ekkert smá hress... alveg öfga hress og ég er ekki viss ennþá hvort ég hata það er elska en þar sem ég sit uppi með hana held ég að það eina sem er til í stöðunni sé að vera sáttur með hana, sérstaklega svona í ljósi þess að hún sér um fashion technology deildina og það er einmitt deildin sem ég vil komast inní... það virðist vera ég og allir aðrir sem eru í þessu námi, það er án djóks alveg svakalegt.
Við byrjuðum á að kynnast öllum í hópnum, það er semsagt búið að skipta okkur uppí 5 hópa – ca 130 manns held ég, þannig að ég lærði 20 ný nöfn. Þar sem þetta er international nám er enginn frá ES í þessum kúrs og eru flestir frá Asíu. Þegar það var búið var okkur sagt hvernig þetta nám er byggt upp fyrstu önnina. Við erum að rótera vikulega milli “skólanna” eða semsagt deildanna og fáum þannig að prófa allt fyrstu 5 vikurnar og svo velja 2 sem við viljum prófa aftur og þá eigum við að geta valið það sem við viljum gera önnina eftir. En ég er samt ansi hrædd um að við höfum ekki mikið val, en ég ætla að halda í þá von að ég sé nógu góð til að fá að gera það sem ég vil gera.
Núna erum við samt að gera hópverkefni (held ég líka hannað til að henda okkur enn meira saman) þar sem við eigum að gera kort af hackney á vegginn í stofunni okkar, það virðist ætla að verða ágætis stuð.
5. oct
núna sit ég í skólamatsalnum eða kaffiteríunni er eigilega nákvæmarilýsing í hádegismat, við erum í skólanum frá 9.30 - 16-30 alladage sem er alveg frekar hard-core að mínu mati en þetta virðist ætla að vera mjög gaman, við erum að klára að gera kortið okkar af hackney í dag og það er bara að ganga alveg ágætlega.
við fórum einmitt að labba um í gær og við fengum hverfi með mikið af flottum galleríum og einni búð sem mér finnst alveg awesome. hún selur antík eldstæði (já ég er ekki að djóka) og er staðsett í kirkju. ég mun klárlega þurfa að skoða þetta betur
núna þarf ég samt að fara að halda áfram að föndra og ég læt mér hlakka til næstu viku þegar ég fer í fulla vinnu við að læra að teikna og mála
Wednesday, October 5, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment