Friday, October 31, 2008

skoli

28 okt

ok ég held að þetta verði síðasta bloggið mitt í oktober, sem er allveg pínu scary. Tíminn virðist alltaf vera að flýta sér. Ef að þið hafið ekki gefið upp allavon um nýtt blogg þá viti þið kanski að það komu heil 4 ný blogg inná í gær. Jamm tölvan er semsagt komin í gang aftur hérna heima jeiiiijj. Í dag er allveg ótrúlega leiðinlegt veður, rigning kallt og hráslagalegt sem er ekki mjög töff afþví að í dag fer edo í fótbolta.... þó að hann muni mæta pínu seint afþví hann er að fara í hitting eftir skóla.

Í gær var hinsvegar ágætis veður og einnig fyrsti dagurinn minn í skólanum. Persónulega verð ég að segja að ég hef mínar efasemndir um þetta að læra ítölsku á ítölsku dæmi en kannski þegar ég verð búin að læra eitthvað fer ég að skilja orð og orð af því sem kennararnir eru að reyna að segja. Fyrsti dagurinn fór sem sagt ekki svo vel. Ég skildi ekki neitt og aðeins minna en það en tókst samt nokkurnvegin að læra að segja stafrófið – þetta er allt að fara í rétta átt. Svo áttum við að stafa nöfnin okkar og mitt nafn fór satt að segja ekkert of vel, enda ekki svo auðvelt að stafa nafnið mitt, eða lesa það og sérstaklega ekki þegar kennarinn sem er að skrifa það niður á í erfiðleikum með að skilja það sem þú ert að segja en allt þetta esse enne (sem endaði reyndar sem elle) a e efffe erre í di ú erre og þá vorum við rétt komin í gegnum fyrra nafn mitt með erfiðleikum og tímin næstum búin eftir að ég þurfti að segja flesta stafina oftar en einu sinni og ég endaði sem slaefridur af því ég sá ekki ell-ið fyrr en tímin var búin (sem var um leið og mér tókst að stafa johannsdottir) og ég ákvað að það væri ekki þess virði að reyna að leiðrétta þennan misskilning. Allavega... þá gekk þetta ekki svo illa og ég hef bara ákveðið að fyrst ég skil ekki neitt þá get ég bara opinberað minn innri tossa og látið endurtaka allt endalaust oft. Reyndar þá verður hópnum skipt í tvö stig á miðvikudögum núll og eitt stig og ég er klárlega að fara í núll og vonandi mun mér takast að skilja eitthvað þar á morgun.

Ég get því miður ekki heillað ykkur neitt með ítölskukunnáttu minn (þar sem hún er ekki til staðar) en allavega þá er mánuðurinn næstum búinn og jóla brjálæðið að fara í gang.... er búið að hengja upp einhverjar skreytingar?? Arrivederci

Ok ég verð bara að bæta aðeins við þetta.... edo fór semsagt í afmæli áðan og ég að keyra og kemur þá ekki þessi svaðalega rigning allveg eins og helt sé úr fötu. Ég skemmti mér allveg konunglega en ég er búin að komast að því að rigning gerir mig létt geggaða og ég er ekki endilega viss um að það sé á góðan hátt. Þar sem ég var keyrandi í kvöld þá leið mér soldið eins og ég væri á íslandi... get samt ekki allveg fundið út hvaða árstíð þar sem það er myrkur hér og frekar kalt en samt ekki þannig að þetta passar eigilega hvorki fyrir sumar né vetur en ég ætla samt að halla mér að vetrinum sérstaklega í ljósi þess að ég er komin í mitt árlega alltof snemma jólaskap sem verður að öllum líkindum búið að láta sig hverfa til geðheilbrigðaðra mannesja í byrjun desember.... =O) :*

No comments:

Post a Comment