Monday, October 27, 2008

og enn meira af rom

26 okt

og spurningunni er hér með svarað sem sé nei. Tölvan er ennþá dáin og ég ekki búin að finna heitan reit neinstaðar í þessu landi, ekki ennþá allavega. Ég er búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að skipta þessu sem ég er búin að skrifa niður í 4 blogg eða gera þetta að einu maraþonbloggi.... ég held samt persónulega að það sé betra að skrifa mörg lítil þar sem það er óttalega erfitt og leiðinlegt að lesa. Hmmm margt er búið að gerast, eða að fara að gerast. Á morgun er fyrsti dagurinn minn í skólanum spennandi og ég er búin að redda bókini eða ég held það á samt eftir að tékka, eftir að hafa labbað í 3 la feltrinelli búðir í róm og þar með labbað borgina nánast þvera og endilanga.

Í dag fór ég semsagt til róm og var lögð af stað allveg óvenjulega snemma og komin til rómar um 10 leitið. Planið var að fara í hringleikahúsið en það var svo mikil röð að ég ákvað að fresta því um stund og fara frekar að leita að bókinni minni. Þegar ég var svo búin að finna hana uppúr hádegi fór ég aftur niður á fori imperiali og rölti að hringleikahúsinu. Þar var fólk að veiða fólk í túra og ég ákvað að það væri ágætt að prófa annan túrgæd og fór í einn túr um hringleikahúsið. Ég verð samt að segja að jason sá sem ég fór með í vaikanið og labbitúrinn var miklu skemmtilegri.... eða á annan hátt, hann er samt eigilega meira betri en skemmtilegrt. Þrátt fyrir það þá lærði ég eitthvað nýtt í dag t.d. þetta: í róm til forna voru komur það lægsta og minna virði en þrælar og þess vegna þurftu þær að standa efst í hringleikahúsinu en fengu ekki að sitja eins og karlarnir, þó að sjálfsögðu voru eiginkonur mikilvægustu karlanna sem fengu að sitja þ.e. eiginkonur keisarana og þingmanna. Það voru samt 6 aðrar stúlkur sem fengu sæti og það voru hofgyðjur gyðjunnar Vesta... þessu setning hljómar eitthvað skrítið. Vesta “hreinu” meyjarnar voru 6 af fallegustu stúlkum rómarveldis og þjónuðu í 30 ár. Þær voru teknar inn á bilinu 6-10 ára og fengu 10 ára þjálfun í að gæta hin eilífa loga, gættu hans svo í 10 ár og eyddu svo síðustu 10 árunum í að þjálfa arftaka sinn. Þegar sá tími var búinnn máttu þær fara og gifta sig og gera það sem þær vildu eða vera áfram í musterinu. Ef þær hinsvegar brutu loforð sitt um að halda meydómnum voru þær grafnar lifandi. Lífið var þó ekki alslæmt þar sem þær voru einu konurnar í róm sem voru eitthvað metnar og máttu þær eiga hesta og jarðir og ef þær gengu þvert á veg dæmds manns var hann náðaður. Í hringleika húsinu þegar ekki allir voru sammála um það hvort skilmingaþrælarnir ættu að lifa eða deyja þá voru það þær sem ákváðu örlög þeirra. Eftir stuttan túr um hringleikahúsið fórum við svo að skoða palatine hæðina þar sem róm var stofnuð og ég fékk að vita smá svona um höll sem einhver af keisurunum leit byggja og var víst mikilfengleg öll klædd marmara að utan sem innan en hann er allur farin núna að sjálfsögðu, notaður í að skreyta hinar ýmsu kirkjur í róm. Eftir því sem ég heyri meira af þessum sögum verður mér eigilega verr og verr við kristnina, eða kaþólskukirkjuna eða hverja þá sem ákváðu að það væri betra að gera gólfflísar úr efninu en að skreyta veggi, þó að það sé reyndar bara því að þakka að sumar byggingar og hlutir voru gerðir kristnir sem þeir eru enn á lífi í dag þannig að ég bíst við að þeir séu ekki alslæmir.

Þá er ég samt hætt í dag alveg dauð uppgefir í fótunum eftir allt labbið sme var nánast non-stop og farin að sofa þannig að ég verði nokkurnvegin hress og kát á morgun. Ég ætla að gera mitt besta til að koma þessu á netið sem fyrst. Lifið heil og sæl þangað til næst (sem gæti verið mjög fljótlega (vonandi ekki of fljótt samt)) smaksmask.

2 comments:

  1. hæ frabært ad fa svona mikið af frettum, takk eg er a Fludum hef það rolegt (svo mikil læti heima!) =o) ma

    ReplyDelete
  2. Shiii, ég bregð mér frá tölvunni í nokkra daga og þú bara búin að skrifa heila bók :) :) Er þetta ekki bara þrælgaman? Hér er allt við það sama, litli maðurinn stækkar og við hin reynum að fylgja honum eftir :) Ég er enn í rólegheitunum og föndrinu, gott í öllu þessu stressi í kringum mann, það er allt landið að fara til andskotans finnst manni stundum. Ég hlakka til að lesa meira frá þér, kv frá Fella

    ReplyDelete