20 okt
hæhæhæ jamm það er skemmtilegt að segja frá því að ég er búin að vera með þetta síðasta blogg bara hangandi hérna inná tölvunni minni í viku en ég er búin að vera einstaklega löt þannig að ég set núna tvö hérna inná í einum grænum þannig að ef þið eruð ekki nú þegar búin að lesa 14 okt bloggið þá er það hérna fyrir neðan. Þrátt fyrir margar tilraunir mínar til að fá ykkur elskulega fölskylda og vinir til að kommenta á þetta blogg mitt án nokkurs árangurs þá hef ég ákveðið að gefast upp á því allavega um sinn og lesa frekar allar þær áhugaverðu fréttir sem finna má á mbl.is og visi.
Það sem er búið að gerast síðan síðast.... ekki ýkja mikið. Á sunnudagin fór ég með fjölskyldunni til Napóli (Napels) þar sem við fórum í afmælishádegismat fyrir litlu frænku þeirra sem var að verða eins ár og er rosa sæt með risastór allveg dökk augu. Allavega þá tókum við edo og margherita lest frá róm til Napóli á sunnudags morgninum eða reyndar var klukkan orðin allveg næstum ellefu en planið var að taka lest kl 8.... það gekk ekki allveg. Þegar við komum tók Raffaele á móti okkur og við tókum einn rúnt um bæinn til að sýna mér aðeins um. Napóli er hafnarborg og á allveg ótrúlega flottum stað höfnin liggur í boga eða reyndar í nokkrum bogum held ég inní landið og svo eru brattar hlíðar allt í kring og í þeim eru svo hverfi... ítalir virðast vera allveg afskaplega hrifnir af því að byggja í hlíðum og fjöllum og gömlum eldfjallagígum. Við keyrðum svo út úr borginni og inní annan lítinn bæ þar sem við fórum að borða á sjávarréttastað mjög gaman fyrir mig. Þessi hádegismatur tók rétt tæplega fjórar klukkustundir eða eitthvað þar um bil.... þetta byrjaði á að komið var með litlar bollur, þar á eftir 2 tegundir af fiskisalati, steikt zukkini, brauð með tómötum og pruchetto með osti og klettasalti. Svo kom önnur legund ad fisk og eitthvað gums með tómötum sem ég mátti borða... þegar hér var komið við sögu var ég orðin södd eða svona því sem næst. Á eftir þessu var svo komið með skelfisk sem ég held að hafi verið bláskel er samt ekki allveg viss og litla heila eldaðafiska. Þetta var allt forréttir því svo kom sjávarréttapasta (ég fékk basta með tómötum sér eldað í ljósi þess að ég má ekki borða fisk) og á eftir því voru svo hrísgrjón með sjávarréttum sem ég fékk ekki en þarna var ég ekki ennþá búin að fá pastað mitt en ég var ekki að kvarta... svo þegar allir voru búnir að bíða eftir að ég kláraði að borða og láta sjatna aðeins í sér var komið með ananas u.þ.b. 1/8 á mann mjög góður og á eftir honum voru svo kökur og snafsar og ég þarf varla að minnast á að með matnum var að sjálfsögðu drukkið Napóliskt hvítvín (og vant og kók líka). Eftir þessa alltof stóru máltíð keyrðum við heim sem er ca 2 tíma akstur og eftir það ákvað ég að það væri best að taka því bara rólega og lagðist í video gláp sem endaði reyndar fyrir kl 10 með því að ég fór bara að sofa enda algjörlega uppgefin af öllu þessu áti og magin á overtime að reyna að vinna úr öllum þessum andskota. Ég ætti kannski líka að minnast á það að ég mæli ekki með því að fólk leiki þennan leik eftir... allavega ekki án þess að æfa sig fyrst því ég get sagt ykkur að ég svaf ekki svo vel síðustu nótt og magin minn er ekki ennþá komin í samt lag aftur. Ég þurfti að vakna kl 6 til að skutla mömmunni niðrá lestarstöð þar sem það var smá bílakrísa hér í morgun (litli bíllin fastur í róm síðan í gær morgun) en eftir það fór ég með edo í skólan og svo heim aftur þar sem ég svaf mjög hamingjusöm í u.þ.b. einn og hálfan tíma. Þrátt fyrir það er ég aftur orðin þreitt þó klukkan sé ekki margt þannig... góða nótt fyrir mig
Monday, October 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment