6 okt
ég er búin að komast að því að þó róm flokkist kannski sem stórborg þá er hún alls ekkert stór.... ok það getur vel verið að hún nái yfir stórt landsvæði en bara ef maður tekur með öll úthverfi og svoleiðis dót, en miðborgin er pínu lítil. Ég er kannski aðeins að ýkja en hún er allaveg ekki mjög stór. Það var nefninlega þannig að á mínum fjórða sunnudegi í róm þá fór ég að skoða píramídann, jamm það er píramídi í róm sem var fluttur hingað af einu að keisurunum þó ég muni í augnablikinu ekki hverjum þeirra. Eftir að Egyptaland féll undir rómaveldi ákváðu rómverjarnir að ná sé í eitthvað af skemmtilegum munum þaðan enda komst það í tísku að skeyta hús og híbíli í egypskum stíl. Þeir tóku fullt af sólarsúlum... æjj þessum mjóu sem voru útgrafnar með táknum og í þeim átti sólarguðinn að vera. En fyrir einn af rómverskukeisurunum var það ekki allveg nóg, hann vildi fá sína hinstu gröf í píramída og lér því flytja eitt stykki (ekki mjög stórt) yfir til rómar.
Þar stendur hann enn í dag og ég held að það sé enn verið að vina við fornleyfauppgröft þar eins og á svo mörgum öðrum stöðum í borginni. Því miður fyrir mig var allt lokað þegar ég kom enda sunnudagur en það var samt sem áður gaman að fá að sjá alvöru píramída þó maður hafi ekki ennþá farið til Kairo. Þarna á þessu svæði var ekki eins mikið sjáanlegt af túsisma fannst mér og mikið af íbúðar húsum þannig að ég ákvað að villast bara aðeins um hverfin á leið minni aftur að Via del Corso. Það vildi þó ekki betur til en svo að ég var fljót að villast leið mína að fljótinu sem rennur í gegnum róm og heitir Tevere... þar sem ég vissi að ef ég gengi með því myndi það á endanum leiða mig á kunnuglegar slóðir og í leiðinni gefa mér tækifæri á að sjá Tempio di Vesta sem er lítið hringlaga hús umkringt súlum og er rétt hjá Circo Massimo. Þaðan lá leið mín að Marcelli leikhúsini sem er byggt eins og hringleikahúsið nema að það hefur verið lagað einhverntíman þannig að það eru tvær tegundir af bogum en er engu að síður mjög flott sjón. Allt þetta ferðalag sem virtist á korti að myndi taka mig ágæta stund tók ekki mikið meira að labba en er að taka mig núna að skrifa um það.... ok kannski aðeins lengur en engu að síður allt of stuttan tíma.
Ég gerði mitt besta til að villast um litlar hliðargötur en ákvað svo að fara að skoða Pantheon að innan, ég varð ekki fyrir vonbrigðum og þetta er án efa ein að áhugaverðustu kirkjum í róm og þá er mikið sagt. Inni í henni eru tvær grafhvelfingar ein fyrir Vittorio Emanuele II og ein fyrir Rafaele sem var listamaður og sá sem ákvað hvar ætti að grafa upp rústir gömlu rómar en hann dó þegar hann var bara rúmlega 30 en ef hann hefði fengið að lifa hefði mögulega verið miklu fleiri staðir sem hefðu bjargast, þetta var á 16. öld. Hann var svo mikil metin að þegar hann bað um að fá að vera grafinn í kirkjunni var það leyft án minnst hiks. Hann hvílir núna í marmarakistu sem var gefin einhverntíman eftir að hann dó og kistan var opnuð til að tékka hvort það væri ekki örugglega hans lík í henni og á henni stendur: hér hvílir Rafaele sem móðir náttúra óttaðist að myndi gera betur en hún meðan hann lifði og eftir að hann lést óttast að hún sjálf gæti hrunið.... man ekki nákvæmlega hvernig þetta var en einhvernvegin svona – þetta er mjög gróflega þýtt.
Það gerðist ekki mikið meira í þessari ferð minni til rómar, allavega ekkert sem ég man eftir eða er vert að minnast á þannig að ég kveð í bili
Tuesday, October 7, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
mmmm...pant koma í mat til þín þegar þú kemur heim:) Ég veit ekki afhverju en alltaf þegar ég les bloggin þín ímynda ég mér alltaf að þú sért í einhverri bíómynd, ótrúlega glöð stelpa á vappi um Róm á skellinöðru með sólgleraugu af því það er svo mikil sól...don't ask why :)Ég vona að þú hafir það gott. Hér er allt við sama heygarðshornið nema það að snjórinn er farinn.
ReplyDeleteBestu kveðjur frá mér.
(PS. skrifaði komment á bloggið þitt um vatíkanið er þú varst ekki búin að sjá það (því ef ekki þá er þetta komment örugglega alveg útúr samhengi hjá þér ;))
hahha tu ert klrlega velkomin.. vid holdum bara svaka matarbod tegar eg kem heim, takk eg a ennta allveg eftir ad redda mer vespu en tad er klarlega a to do listanum minum... takk fyrir baedi kommentin:D
ReplyDelete