12 nov
góðan og blessaðan daginn... hvernig er maginn??
Ok þetta er búið að vera hmm.... kannski ekki sérstaklega áhugaverð vika en allavega hingað til er ég búin að fara ekki í skólan á mánudagin þar sem edo var veikur en ég missti víst ekki af miklu þar sem það var verkfall hjá lestarstjórum og umferðin var algjör killer.... ég er að tala um að á venjulegum degi er það slæmt en þarna voru allir að keyra þannig að ef einhverjum datt í hug að fara í bíltúr hefði sá hinn sami náð meiri hraða fótgangandi eða að æfa sig í að skríða eins og snigill á götunni... sem betur fer þá var þetta bara eins dags verkfall ef það entist svo lengi ég er ekki allveg viss en lestirnar eru allavega komnar aftur í gang.
Þriðjudagurinn var ósköp venjulegur fram til kl fjögur en þá fór ég til læknis vúuhúu til að fá læknisvottorð fyrir sundlaugina sem ég er mjög lúmskt búin að forðast af ótta við að fá yfir mig ræðu á ítölsku sem ég skil ekkert í... allavega ég hélt að þetta yrði bara svona eitthvað spurningaflóð en í staðin tók hann bara hjartalínurit af mér eða hjarta-eitthvað bla blabla sem ég hef ekki hugmynd um hvað er og ég gerði ekki einu sinni tilraun til að spurja.... enda var það algör óþarfi þar sem mér til mikillar gleði þá var mamman með mér og reyndar edo líka þar sem hann er í einhverri meðferð útaf hælnum á sér.
Í dag fór ég svo í skólan og það gekk bara vel, þó ég haldi að bekkurinn minn sé alltaf að minnka og það virðist vera að þeir fáu karlkyns nemendur sem voru í honum hafi látið sig hverfa. En það eru líka alltaf að byrja einhverjir nýir. Í dag átti að vera langur dagur þar sem ég er pínd til að tala bæði í conversazione og málfræði en málfræði kennarinn minn lét ekki sjá sig og engin veit hvers vegna – það eru tveir möguleikar, annar er sá að hún hafi farið að láta skipta um plástur á nefinu á sér (við vitum ekki hvað gerðist en hann er grunsamlega líkur lítaaðgerðar plástri) eða sem mér finnst eigilega líklegra að hún hafi verið að mótmæla nýjum gömlum lögum um skóla eða nám sem núverandi forsætisráðherra vill koma aftur á kjöl. Þegar við vorum búin í tíma snemma fór ég svo með bekkjasystrum mínum og við fengum okkur kaffi og svo fór ég og Amanda (frönsk) heim til Angie (kanadísk) þar sem við horfðum á byrjunina á roman holiday sem mig er einmitt búið að langa að sjá aftur síðan ég kom hingað þannig að maður gæti tekið roman holiday dag í róm og skemmtileg heit.
Ég var svo allveg major dugleg og fór í sund og fór glansandi í gegnum miða tékk og ofaní laug án nokkurra vandræða enda komin með skó og alles. Jam þannig að ég er núna óskaplega hamingju söm (allavega í augnablikinu) og að verða soldið svöng þannig að það er bara eitt enn.... þetta er til lindu sem svar við kommentinu sem hún skrifaði á síðastabloggið mitt... ég er því miður hrædd um að það verði ekki mikið af saumasögum héðan þó að að sé örugglega hægt aðkaupa vél einhverstaðar en ég held að ég einbeiti mér bara meira að því að finna óuppbyggjandi leiðir til að láta tíman líða eins og synda – mitt nýtil komna ofurátak og skrifa þessi tilgangslausu blogg til að skemmta mér meira en þeim sem les það – held ég en ég hef ekkert á móti því þannig.... ciao
Wednesday, November 12, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
hæ fekkstu sem sagt enga almennilega læknisskoðun? Það er viðeigandi að þú spyrjir hvernig er maginn.. því margir hafa átt í mestu vandræðum með hann... allir í Fella voru með vandamál, upp og niður!! Amma var líka hálf slöpp, við erum að fara saman til augnlæknis á morgun vonandi getur hann hjálpað henni með gleraugu. Annars er allt gott..Oddur fór á MH ball í gær og við Elin björk eigum stefnumót í fyrramálið áður en ég fer til læknissins með mömmu, svo er námshelgi í skólanum, (við verðum í gamla Waldorfskólanum þínum) svo það er nóg að gera eins og alltaf. knús knús mamma
ReplyDeleteHehe, já þá er það orðið opinbert, við vorum með ælu og drullu :) :) Allir hressir núna samt.
ReplyDeleteJá, ég skil það nú að saumavélin skuli vera aðeins neðar á listanum en að halda sér í formi og að eignast vini og svona :) Nægur tími til að loka sig inni með vélinni seinna :) :) Bestu kveðjur krúttið mitt og ekki hætta að skrifa, bloggið er lesið þótt ekki allir kommenti, Linda
hahaha eg bist vid ad eg se skygn eftir allt saman... eda allavega haldin einhverjum yfirnatturu legum eiginleikum. en neinei eg er ekkert ad fara ad haetta a naestunni... allavega se eg ekki fram a tad sjalf
ReplyDelete