Tíminn flýgur og einhver lýgur... líklega eitthvað uppsafnað frá stjórnmálamönnum og banksjtórum/eigendum íslands. Mér hefur sem sé verið sagt að ísland sé núna opinberlega komið til andskotans og allir bankar í eigu ríkisins og einhver meiri háttar læti. Þetta þýðir það að líkurnar á að einhver komi að heimsækja mig eru dottnar niður í 0% og líkurnar á að ég taki norrænu heim hafa hækkað úr núll uppí eitthvað aðeins hærra, allavega ef flugfélögin ætla að brotlenda í stíl við gjaldþrot bankanna. Nema ég verði bara strand í evrópu sem er algjörlega raunhæfur möguleiki.
Mér hefur verið bent á mjög kurteisislega að sjálfsögðu að þrátt fyrir að það sé nú alveg óskaplega gaman að lesa um ferðir mínar til rómar þá segi ég ósköp lítið um það hvernig mér líður eða nokkuð frá mér yfir höfuð (þannig að ef þið viljið bara lesa ferðasögur endilega sleppid tvi ad lesa tennan kafla... tad kemur annar fljotlega
Með þetta að leiðarljósi get ég sagt hverjum þeim sem hefur áhuga að í augnablikinu er ég að deyja í löppunum enda búin að labba þvert yfir róm en þið fáið að heyra um þá ferð seinna. Ég er búin að koma mér vel fyrir og farin að líta á þetta land og þennan stað sem heimili mitt. Mér og fjölskyldunni kemur alveg sæmilega saman og ég hef ekki yfir neinu að kvarta með hana allavega ekki enn sem komin er og ég vona að það haldist þannig. Eigilega það eina slæma við dvöl mína hér er að ég er ennþá ekki búin að eignast neina vini og er ekki ennþá byrjuð í ítölskuskólanum þó að ég voni að það breytist í bæðum tilvikum eftir u.þ.b. 2 vikur. Kalhæðnislega þá er það einmitt sá tími sem ég eyði í róm sem er hvað mest einmanalegur og minnir mig á það hvað ég er eitthvað ein en það er einmitt sá tími sem þið heyrið mest frá. Á meðan alla hina dagan er ég bara sátt og kannski ekki neitt svaklega upptekin með mín venjulegu vakna of snemma og keyra í skólan drepa dagin og sækja í skólan, borða hádegismat og drepa svo tímann daglegudagskrá.
Það var einmitt núna á föstudagin sem ég hafði extra langan dag til að drepa þar sem edo var að prófa veggja klifur sem er valfag aukalega í skólanum hans – sem hann ætlar reyndar ekki að taka – sem ég ákvað að skoða Frascati sem er sem sagt bærinn sem skólin hans og tilvonandi skólinn minn eru í. Því miður fyrir mig þá voru þær 7 klukkustundir sem ég hafði alltof langur tími en ég var búin að labba miðbæinn þveran og endilangan áður en klukkan varð 10 þannig að ég skemmti mér við að þræða það sem mér fannst vera hver einasta litla gata sem hafði einhverjar búðir í eða var þarna á miðsvæðinu og fara inn í nánast allar búðir sem ég sá. Því miður fyrir mig þá hef ég fylgst nokkuð vel með gengi krónunnar sem veldur því að allt sem ég hef verið að sjá á undanförnum vikuð hefur verið alveg ógeðslega dýrt og allt verðskin mitt algjörlega komin í hass. Ég hef því ákveðið að búa til stöðugt gengi á krónuma sem meikar nokkurnvegin sens og það gleður mig að segja ykkur að krónan er núna í föstum 100kr evran eða allavega í mínum heimi þó svo að þrátt fyrir mínar bestu tilraunir er ég ekki allveg búin að fullkomna sjálfsblekkinguna. Rétt eftir eitt þegar ég var orðin úrkula vonar um að tíminn myndi nokkurntíman ná að verða 3:30, það var búið að loka búðunum fyrir siestuna þó að ég hafi ekki hugmnd um hvað hún er kölluð hér þá fékk ég símtal frá pabbanum sem sagði mér að ég þyrfti ekki að ná í edo úr skólanum og þar með ekki hanga lengur í frascati, sem þýddi reindar að ég hefði getað verið löngu farin en veðrið var til fyrir myndar þannig að ég ætla ekki að kvarta. Það sem var mest áhugavert sem gerðist þennan dag í mínum heimi var ég rambaði inn á búð sem var að selja borðdúka efni sem voru frekar mikið flott og þá sérstaklega eitt sem var hvítt með dökkrauðum kirsuberjum, þannig að ég er ekki frá því að sérgrein mín í framtíðinni verði að hanna og sauma regnjakka sem eru að mestu leiti ætlaðir sem tískuyfirlýsing frekar en nytjahlutir þó svo að sjálfsögðu þá munu þeir vera einstaklega góðir í rigningu þó ég eigi ennþá eftir að prufukeyra minn almennilega.
Hmmm... eitthvað svona aðeins öðruvísi en vanalega frá mér. Hafið það gott
Sunday, October 12, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
"og þar með ekki hanga lengur í frascati"
ReplyDeleteÞetta er náttúrlega bara snilld!
Ó hey og já. Talandi um regnjakka. Muna að henda ekki flottum plastpokum ;)
ReplyDeleteNú geri ég ekkert annað en að hugsa um föndur og aðra nytjahluti svo verð líklega í banastuði þegar þú kemur heim :) :)
hahah gott mal... geri tad :D
ReplyDelete