Saturday, October 4, 2008

matur?

4 okt

jamm og já gott fók það er komin nýr mánuður sem þýðir að ég er búin að vera hér í mánuð eða næstum því. Þessi vika er búin að vera ósköp róleg eða þannig... það er ekki mikið buið að gerast. Ég er búin að vera að keyra og lifa ósköp tilbreytingarlausu lífi, en ég er aldrei búin að villast á leiðinni í eða úr skólanum vúhúúú:D

í gær og í fyrradag fór ég samt með Margheritu í golf, ekki að ég hafi verið að spila en það er fín útivera að elta einhvern í golfi og maður labbar allveg helling, ég hef aldrei gert mér grein fyrir því hvað golfvellir eru stórir, mögulega afþví ég hafði aldrei komið á golfvöll og vissi eigilega ekkert um golf.... nema náturulega að maður væri að reyna að koma kúlunni í holuna í sem fæstum höggum. Ég get nú samt ekki sagt að ég sé farin að skilja golf eða neitt í kringum það nema að maður getur fengið fullt af refsingum fyrir að virða ekki reglurnar, jamm og það er allveg nóg af þeim. Við förum á golf völl í Castell Gandolfo sem ótrúlega fallegur og er í eldfjallagíg (hann er víst einn af 15 fallegusu golfvöllum í ítalíu). Ég held samt að Castell Gandolfo sé sá bær í Castelli Romano (þetta svæði í kringum róm er kallað það og er sem sagt samansafn af fullt af bæum) sé uppáhalds bærinn minn þó að ég hafi ekki komið þangað oft og aldrei labbað um. Fyrsta kvöldið mitt fórum við einmitt á veitingastað í CG en bærinn liggur í kringum vatn sem er allveg frekar stórt og liggur ofaní dal sem gæti verið annar eldfjallagígur en ég er ekki viss. En það er allgjörlega á “to do” listanum mínum að heimsækja CG og sem fyrst.

Nóg um það allavega. Ég er búin að vera frekar mikið á vappi þó ég geri ekki margt en er búin að læra að elda rétt sem er alveg ekta Napólí og ekki slæmur þannig að ég mæli með því að þið prófið þetta er semsagt:
Polpitte (kjötbollur) – hakk, egg og brauð sem er lagt í bleiti í vatn, salt pipar og hvítlaukur.
Kreistið vatnið úr brauðinu og miljið það niður í höndunum (ég mæli með því að nota eitthvað gott brauð –ekki samlokubrauð- helst heimabakað. Blandið uþb 300gr af hakki í ca 100gr af brauði og 2-3egg slatti af salti og pipar og 1-2 hvítlauksrif skorin smátt! Úr þessu eru svo gerðar bollur sem eru steiktar uppúr nóg af olíu þar til þær eru stökkar að utan
Með þessu er svo ótrúlega gott að borða eldaðar paprikur (við borðum mikið af þessu og ég er ekki að kvarta) maður byrjar á að skella paprikunum beint á gaseldavél og láta þæt eldast og verða brunnar að utan, það tók mig smá tíma að komast að því að besta leiðin til að gera þetta ef maður er ekki með gaseldavél er að grilla þær, ég held allavega að það sé best er samt ekki viss. En eg grillið er vantvið látið eða komið út í horn fyrir veturinn er mögulega hægt að helda þeim bara inn í ofn. Aðalatriðið er að það þarf svo að taka skinnið utanaf þeim. Þegar það er búin er þeim svo hennt á pönnu með nóg af olíu og þær steiktar við láganhita í smástund. Ef maður hinsvegar nennir ekki að standa í ölluveseninu með að taka utanaf þeim er mögulega hægt að hendaþeim bara á pönnu og sjóða þær aðeins og steikja eftir á. Ef þið prófið þetta verðiði endilega að láta mig vita hvernig gegg og hvernig smakkaðist.
Og til að fullkomna þetta er að sjálfsögðu borðað með þessu gott brauð og ég mæli með hvítvíni með líka en það virðist fara vel með öllum ítölskum mat. Hmmm afhverju ætli ég viti það??

Allavega þá er þetta orðið gott í bili, mögulega ekemur eitthvað annað fljótlega, fer allveg eftir því hvernig næsta rómarferð mín verður.
Ef þið lesið þetta blogg og viljið fá fleiri uppskriftir eða eitthvað sérstakt endilega skrifið comment og þó þið hafið engar athugunarsemdir (hvernig sem það er skrifað) endilega látið vita að þið hafið komið og látið mig vita hvað ykkur finnst. Allt vel þegið.

Auguri

PS. Er einhver sem er búin að prófa að gera ítalska pizzu? Ég mæli líka með að setja zukkini og gulrætur á pizzapotn það er merkilega gott.... Linda tilvalið fyrir þig:D

1 comment:

  1. hæ hæ krúttið mitt og takk fyrir frabæra uppskrift af kjotbollum og grilludum paprikum sem mer finnst mjog godar. Vid vorum i afmæli hja Alexander Emil i dag og þar voru öll litlu börnin samankomin lika Aron fra Norge og voda mikið fjör. Gestirnir mínir fra Colorado flugu lika heim i dag svo nu er sma fri hja mér sem er vel þegið. Það væri gaman að koma til þín en ástandið í gjaldeyrismálum hamlar því að maður versli sér gjaldeyri. Vona að þú kynnist einhverjum vinum fljótlega. Um að gera að vera nógu mikið á ferðinni og opna munninn þegar maður sér spennandi FÓLK! knús og knús og knús frá okkur öllum. Ma

    ReplyDelete