jæja... eftir langt langt hlé held ég að það sé komin tími til að byrja aftur að færa fólki fréttir af mér heima á fróni
eins og þeir sem lesa þetta ættu að vita er ég að hefja nám við London college of fashion jeijj þvílík gleði, ég er semsagt mætt til london og hingað til hefur þetta verið örlítið skrautleg ferð. það byrjaði á því að ég var ekki með neinn stað til að sofa á kvöldið fyrir flugið mitt út, það reddaðist samt svona frábærlega. ég fór á hostel í kensington sem var bókstaflega í holland park, ekki hliðiná garðinum heldur inní honum, og í gamalli villu, alveg frábær staður
fyrstu 2 dagarnir fóru svo í almennt manic panic þar sem ég var að reyna að finna mér samastað fyrir veturinn og það var ekki að ganga vel. svo í einni hendingu hefur það reddsat eða svona nánast. það er ekkert ákveðið enn en mér hefur verið boðið herbergi á stúdentagarði í hoxton - sem er massa góð staðsetning og mjög flottur (opnaði 2008) eini gallinn er að þar deili ég eldhúsi með 7 öðrum, sem væri mögulega í lagi ef ég gæti deilt með fólki sem borðar bara brauð með sultu og bacon en því miður er mjög mikið af asíubúum á þessum garði (og reyndar bara allstaðar) og það þýðir mikið af fisk, fiskisósum og mögulega hnetum, en mér virðist að það sé engin leið að komast úr þessari klípu. ég er nokkuð viss um að lífið mitt væri alveg töluvert léttara ef ég væri bara með eina hendi en ekkert fæðu ofnæmi
en sem betur fer hef ég annan möguleika, sem er kannski aðeins meira eins og gálgafrestur, þar sem ég get mögulega tekið yfir leigu af íbúð í 3 mánuði frá nóvember sem þýðir að ég þyrfti að flakka á milli sófa næsta mánuðinn en það er alveg geranlegt, það góða við þessa íbúð er að ég væri að deila henni með stelpu sem er líka með hnetuofnæmi... hljómar soldið eins og örlögin en ég vil ekki alveg vita hvað mun gerast þegar febrúar gengur í garð
en fyrir þá sem nenntu ekki að lesa um vandræði mín snúum okkur að aðeins skemmtilegri hlutum
síðustu tvo daga er ég búin að vera töluvert róleg, eftir að mér tókst að gleyma að taka vegabréfið mitt með í skráninguna á miðvikudaginn (aðeins og típískt ég) mætti ég eldsnemma (kl 9.25) í síðasta hollið af skráningum og er núna formlega orðin nemandi á LCF og get nýtt mér stúdentaafsláttinn sem er nánast allstaðar hér í london
ég fer svo í fyrsta skóladaginn minn á mánudaginn og þá á ég að taka með mér hlut sem lýsir mér og hvaðan ég er.... ég veit ekki með hina sem eru með mér í þessu námi en ég var að flytja til annars lands með 30 kíló.... ég var ekki beint að pakka mikið af persónulegum hlutum.... allavega ekki sem má nota til að lýsa íslandi, en snillinn ég er held ég komin með lausn - tek bara lopó með mér, eini gallinn er að það er hitabylgja í london og búin að vera síðan ég kom þannig að ég er búin að vera að leka niður á meðan ég röllti með 5 kíló á bakinu um allan bæ í slæmum skóm, en maður er samt ekki að kvarta... þetta er alveg frekar nice, en það á reyndar að fara að kólna aftur í næstu viku einhverntíman
en já nú er ég búin að segja helling um ekki neitt
læt þetta duga sem inngang í þetta ævintýri
Saturday, October 1, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Snæfríður að kvarta undan hita?! Nú er ég aldeilis hissa! Spennandi inngangur, hlakka til að lesa meginmálið í þessari ritgerð!
ReplyDeleteKv. Drífsterrr
Meginmálið verður aws- því þú ert aws og aws er nýja uppahalds orðið mitt!!! En mjög nice hlakka til að lesa og heyra meira, ég sagði að þetta myndi allt reddast
ReplyDelete